Morgunblaðið - 16.05.2020, Síða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
Íkófinu fundum viðekki strax réttuorðin til að lýsafyrirbærum og
reglum sem við þekktum
ekki. Við urðum að finna
ný orð og þau streymdu
fram. Þessi orðasmíð var
ekki aðeins samkvæm-
isleikur, heldur vitni um
þrá til að lýsa tilfinn-
ingum og aðstæðum á
nýjum tímum. Orðið kóf
er gott dæmi. Í febrúar
hefðum við sagt það lýsa
þéttu snjófoki í nokkrum
vindi, eins og sagt er í Nútímamálsorðabókinni (sjá málið.is). En þeg-
ar komið var í samkomubann vegna COVID-19 smellpassaði það til
að lýsa þeirri óvissu og þokukenndu tilveru sem við fundum okkur í.
Í þessu samhengi er gaman að rifja upp færsluna um orðið í Orð-
sifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar, einnig á málið.is. Kóf merkir
þar: ‚mikið snæfok; reykjar- eða gufuþykkni, svitabað; andköf, erfiður
andardráttur’; sbr. fær. kógv, kóv ‘dimm þoka, snæfok’, nno. kov
‘dimmt él eða regnskúr; ísstífla, andþrengsli,…’, sæ. máll. kôva ‘skaf-
hríð’. Af kóf er leidd so. kófa ‘fjúka þétt (um snjó)’, sbr. nno. kôva
‘þykkna í lofti,…’; kóf
<*kwōða-. Sjá kaf, káfi,
kvef, kvæfa, kæfa. Sumt í
skýringunni á jafnvel við
sjúkdómseinkenni CO-
VID-19 og í lok færslu er
nefnt skyldleikaorðið kvef.
Svo var það tveggja
metra reglan. Hvernig áttum við að lýsa þessari erfiðu fjarlægð sem
skylt var að halda í heiðri svo vikum skipti milli ástvina og vina? Ei-
ríkur Rögnvaldsson tók nokkrar tillögur saman á fb-síðu sinni þann
sjötta apríl:
bil á milli fólks, fárými, félagsbil, félagsfjarlægð, félagsfjærni, fé-
lagsforðun, félagsgrið, félagsnánd, fjarrými, fjarstaða, fjarstæða,
frákví, frávist, frávígi, friðrými, heilsurými, hæfileg fjarlægð, lýð-
helgi, lýðrými, mannhelgi, millibilsástand, nándarmörk, náunganánd,
olnbogarými, rými, rýmisfirð, rýmisforðun, rýmisnánd, rýmistóm,
samskiptafjarlægð, seiling, smitbil, smitfirð, smithelgi, smitnánd,
smitrýmd, snertibil, snertilaust svæði, sóttvarnabil, sóttvarna-
fjarlægð, sýkingarfjarlægð, sýkingarmörk, tveggja metra reglan,
tveggjaseilingahaf, viðtalsbil, Víðisfjarri.
Tungumálið er í sífelldri endurnýjun, nýjar hugmyndir og ný fyr-
irbæri kalla á sífellt á ný orð. Orwell skrifaði fræga ritgerð um nauð-
syn þess að tala skýrt. Merkingin á að finna orðin, ekki öfugt, segir
hann. Við eigum ekki að vera föst í klafa orðfæris og hugmynda sem
tilheyra öðrum tíma, annars konar samfélagi.
Baráttan um tungumálið er inngróin allri mannréttindabaráttu,
kvennabaráttu og baráttu hinsegins fólks. Orðin mega ekki reisa
hindranir milli okkar sjálfra og tjáningarinnar, milli þessi sem við
hugsum og getum sagt. Og þau verða að hitta í mark. Eftirtektarverð
var grein Berglindar Rósar Magnúsdóttur um umhyggjuhagkerfið og
arðrán ástarkraftsins í Kjarnanum þann níunda apríl. Um leið og hún
kallaði þessi fyrirbæri sínum réttu nöfnum urðu þau sýnileg og ljós,
misskipting og misnotkun afhjúpaðist. Tungumálið á að vera frels-
andi.
Tungumálið á að
vera frelsandi
Tungutak
Guðrún Nordal
gnordal@hi.is
Kóf „Tungumálið er í sífelldri endurnýjun, nýjar
hugmyndir og ný fyrirbæri kalla á sífellt á ný orð.“
Egill Helgason, einn kunnasti sjónvarpsmaðurlandsins, birti fésbókarfærslu fyrir nokkrumdögum þar sem hann segir m.a.:„Kvíði er helvítis melur. Því er líkast að
maður sé sinn eigin fangi og fangavörður. Maður er inni-
lokaður, veit að það er leið út í frelsið en hún lokast jafn-
óðum.
Fangavörðurinn innra með manni passar upp á að mað-
ur sofni ekki, kveikir skerandi ljósin reglulega og endur-
tekur fyrir manni þráhyggjurnar, sem eru eins og fleyg-
aðar í kollinn á manni.
Maður gerir ekki stærri kröfur en að geta gengið sæmi-
lega áhyggjulaus út í vorið – þeir dagar láta bíða eftir sér
og tíminn sniglast áfram.“
Það þarf mikinn kjark hjá þekktum sjónvarpsmanni,
sem hefur árum saman verið reglulegur gestur á skjánum
heima hjá fólki, að opinbera líðan sína með þessum hætti
og skýra þar með fjarveru sína af skjánum um
skeið – en um leið beinir hann athyglinni að því
sem reynslan hefur kennt okkur að eru, auk
annars, eins konar aukaverkanir þjóðfélags-
legra sviptinga af margvíslegum toga, þótt
þær eigi sér í hans tilviki lengri sögu að því er
fram kemur í samtali Egils við DV.
Við höfum reynslu af því frá hruninu að andlegar þján-
ingar virtust aukast hjá mörgum, ekki sízt þeim sem voru
veikir fyrir. Þeir sem starfa á þeim vettvangi hafa gert sér
grein fyrir að það mætti búast við endurtekningu á því
vegna þeirra atburða sem við upplifum nú. Og nú hafa
Sameinuðu þjóðirnar varað við því sama.
Á nokkrum síðustu vikum hafa gerzt alvarlegir atburðir
í lífi fólks, sem ekki hefur verið sagt frá opinberlega (það á
ekki að segja frá öllu opinberlega) en staðfesta þær
áhyggjur.
Það skortir ekkert á opnar umræður um geðheilbrigðis-
mál nú á tímum en staðan nú ætti að verða okkur hvatning
til þess að gera þær umbætur á heilbrigðiskerfinu, sem
tryggi sterkari miðstýringu á aðgerðum til þess að fylgja
ákvörðunum stjórnvalda eftir.
Fyrir nokkrum árum var samþykkt á Alþingi þings-
ályktunartillaga um geðheilbrigðismál, þar sem þingið
markaði skýra stefnu og setti upp eins konar verkefnalista
á því sviði. Sumt af því hefur gengið vel, annað hefur farið
hægar af stað en æskilegt er, eins og gengur. En kannski
er það vegna þess að þeirri stefnumörkun hefðu þurft að
fylgja einhverjar skipulagsbreytingar hjá framkvæmda-
valdinu.
Þetta er málaflokkur af þeirri gerð að þeir sem stjórna
framkvæmdinni þurfa að hafa brennandi áhuga á umbót-
um á þessu sviði, annaðhvort vegna eigin kynna af þessum
vandamálum eða vegna náinna ættingja eða vina. Það er
nóg til af fólki á Íslandi, sem hefur slíkan brennandi áhuga
á geðheilbrigðismálum, eins og sjá má af þeim fjölmörgu
samtökum sem sprottið hafa upp á því sviði og vinna
merkilegt starf.
Og vegna þess að við vitum að búast má við vaxandi
vandamálum af þessu tagi á næstu mánuðum er tímabært
að stjórnvöld grípi til róttækra skipulagsbreytinga sem
tryggi þá sterku miðstýringu sem að framan var nefnd, nú
á næstu vikum og mánuðum, þannig að þær verði komnar
til framkvæmda með haustinu.
Þessum vandamálum tengjast önnur sem upp koma í
daglegu lífi fólks, og þar er heimilisofbeldi sennilega efst á
blaði. Það eru vísbendingar um það nú þegar að það sé að
aukast.
Egill Helgason talar um „skömmina“ sem þessum þján-
ingum fylgir. Það er sú „skömm“ sem gerði það að verkum
fyrr á tíð að í fjölskyldum var þagað um alkó-
hólisma. Það var sama „skömm“ sem gerði
það að verkum að ekki mátti tala um geðveiki
í fjölskyldum. Það er búið að hrekja hana á
brott bæði vegna alkóhólisma og geðveiki en
hún er enn til staðar vegna heimilisofbeldis og
barnaníðs.
Nú er lag til að gera átak í þessum efnum, sem nær til
margra þátta þessara mála, vegna þess að það er orðinn
svo víðtækur skilningur í samfélaginu á því hversu mik-
ilvægt það er. Þess vegna er tímabært að þau Ásmundur
Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra setjist niður og ræði sín
í milli hvaða skipulagsbreytingar þurfi að gera til þess að
tryggja markvissari og skjótari framkvæmd geðheil-
brigðisáætlunar Alþingis, og hvaða mál það eru sem hafa
komið upp eftir að sú ályktun var gerð og bregðast þarf
við.
Við erum sem samfélag komin nægilega langt á þroska-
ferli okkar í þessum málum til þess að skilja mikilvægi
þess að þeir sem hafa kynnzt þessum vandamálum á eigin
skinni komi við sögu þegar kemur að því að móta og fram-
kvæma viðbrögð samfélagsins. Með frumkvæði sínu hefur
Egill Helgason varpað skýru ljósi á þennan þátt málsins.
Þeir sem þekkja vandann sjálfir eru bezt færir um að tak-
ast á við hann.
Þeir dagar eru liðnir að þunglyndi, hvort sem það er
vægt eða djúpt, flokkist undir „aumingjaskap“, en það er
orðið sem notað var í gamla daga um þann sjúkdóm.
Kórónuveiran er erfið viðureignar en hún getur leitt til
betra samfélags í framtíðinni vegna þess að hún varpar
kastljósi samtímans á veika punkta í samfélagsgerðinni,
sem hafa ekki notið nægilegrar athygli.
Og með því að taka til hendi á því sviði getum við tryggt
að þrátt fyrir allt leiði hún til einhvers góðs.
Það er ekki ólíklegt að sá kvíði sem Egill Helgason lýsir
sem „helvítis mel“ nái í vægri mynd til stórs hluta þjóð-
arinnar, þegar horft er fram á veg.
Enda má finna í viðbrögðum fólks við færslu hans bæði
skilning og samkennd.
Skilningur og
samkennd
samfélags
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
„Sinn eigin fangi og
fangavörður“
Allt frá árinu 1024 hefur máttskipta Íslendingum í Þveræinga
og Nefjólfssyni. Þetta ár sendi Ólafur
digri Noregskonungur íslenskan
hirðmann sinn, Þórarin Nefjólfsson,
til landsins í því skyni að auka hér
ítök sín. Mælti Þórarinn fagurlega
um kosti konungs á Alþingi. Einar
Þveræingur svaraði því til, að Ólafur
digri kynni að vera kostum prýddur.
Hitt vissu menn þó, að konungar
væru misjafnir, sumir góðir og aðrir
ekki, og væri því best að hafa engan
konung. Íslendingar skyldu vera vin-
ir konungs, ekki þegnar.
Snorri Sturluson, sem færði þessa
ræðu í letur, var með henni að segja
hug sinn. Hann vildi ekki gangast
undir yfirráð Noregskonungs, en
halda þó vináttu við Norðmenn. Eins
sagði Jón Þorláksson í minning-
arorðum um Hannes Hafstein, að
stefna hans í utanríkismálum hefði
verið að afla þjóðinni þess fyllsta
sjálfstæðis, sem farið gæti saman við
gott samstarf við Dani, ekki síst um
fjárfestingar á Íslandi. Þeir Snorri,
Hannes og Jón voru allir Þveræing-
ar.
Í sjálfstæðisbaráttunni bar lítt á
Nefjólfssonum. En upp úr 1930 kom
til sögu hópur, sem talaði um Stalín
af sömu hrifningu og Þórarinn forð-
um um Ólaf digra, enda hafði hóp-
urinn þegið gull úr hendi hins aust-
ræna harðstjóra eins og Þórarinn
mála forðum af konungi. Þeir Einar
Olgeirsson og Kristinn E. Andrésson
áttu tíðar ferðir í sendiráð Ráðstjórn-
arríkjanna við Túngötu til að sækja
fé, sem raunar virðist ekki hafa skilað
sér í fjárhirslur flokks þeirra, blaðs
eða bókafélags. Þeir voru sannkall-
aðir Nefjólfssynir.
Í Icesave-deilunni 2008-2013 mátti
greina sömu skiptingu. Við Þveræ-
ingar vildum virða allar skuldbind-
ingar Íslendinga við erlendar þjóðir,
en töldum íslensku þjóðina ekki þurfa
að taka ábyrgð á viðskiptum einka-
aðila erlendis. Þótt kostað hefði
stórfé, vildu Nefjólfssynir, þar á með-
al flestir samkennarar mínir, hins
vegar ólmir þóknast ríkisstjórn
breska Verkamannaflokksins, sem
hafði farið fram af óbilgirni í garð Ís-
lendinga. Sem betur fer sigruðum við
Þveræingar.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Þveræingar
og Nefjólfssynir
SHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
s
RKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DAL
A4 tréskrúfur
fráArvidNilsson
Ryðfríar og sýru-
heldar tréskrúfur
fyrir krefjandi
aðstæður.
vfs.i
A4TRÉSKRÚFUR
MAÍTILBOÐ
4,2 x 42mm
250 stk
1.790
4,2 x 56mm
250 stk
2 190 kr. 4,8 x 75mm
200 stk
2.890 kr.
k
.
25%
afsláttur
af öðrum
A4 tréskrúfum