Morgunblaðið - 16.05.2020, Page 26
26 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
Færa má fyrir því rök að hið
opinbera hafi enga heimild í
lögum til að banna samkomur
fólks enda eru þær varðar í 3.
mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar
sem kveður á um að ,,rétt eiga
menn á að safnast saman vopn-
lausir“ án fyrirvara.
Meðalhóf er lykilatriði þegar
kemur að rétti hins opinbera til
inngripa á borð við skerðingu á
atvinnufrelsi en ,,öllum er
frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir
kjósa“.
Þegar gripið er til stjórnvaldsaðgerða
þarf fyrst að skilgreina markmið þeirra og
svo leiðir að markmiðum. Eitt augljóst
markmið er að verja þá sem helst eru næm-
ir fyrir veirufaraldri. Aftur á móti ber
stjórnvöldum skylda til að gæta meðalhófs
við val á leiðum að þessu markmiði, þ.e. að
beita eins vægum úrræðum og mögulegt er
til að ná settum markmiðum. Í tilfelli
ákvarðana til að stemma stigu við CO-
VID-19-faraldrinum geta stjórnvöld því
ekki horft fram hjá því að aðgerðir þeirra
takmarka fyrrgreind réttindi annarra, sem
ekki eru útsettir fyrir veirunni. Í eðli sínu
verður að túlka hugtakið almannahags-
munir af varfærni. Þar af leiðir að ekki
verður séð að þær hörmungar sem hið op-
inbera hefur leitt yfir þorra almennings,
sem ekki er útsettur fyrir COVID-19-
faraldrinum séu með nokkru móti réttlæt-
anlegar. Aðrar leiðir, eins og t.d. að verja
hjúkrunarheimili eða legudeildir sjúkra-
húsa, án takmarkana á rétti annarra til að
koma saman eða að stunda atvinnu skv.
stjórnarskránni, hefðu fullnægt skilyrðinu
um meðalhóf.
Reglugerðir frá heilbrigðisráðherra eru
ekki jafngildar lögum frá Al-
þingi heldur verða að vera á
afmörkuðu sviði og geta aldrei
verið í andstöðu við ákvæði
stjórnarskrárinnar. Heimild
ráðherra til að setja sóttvarna-
reglur geta aldrei falið í sér að
reglugerðarvald geti yfirtekið
stjórn á öllu samfélaginu með
altækum aðgerðum á borð við
að banna öllum allt. Vald-
framsal eins og þetta þarf að
skilja með tilliti til þess að við
búum í lögskipulögðu sam-
félagi sem verður vart breytt
með reglugerðum til lengri tíma, frekar en
hægt er að stýra landinu með bráðabirgða-
lögum.
Hafi einhver réttlæting verið í þeim inn-
gripum sem hið opinbera beitti, mætti vísa
til þeirrar óvissu sem var um faraldurinn í
upphafi. Sú staða sem upp er komin núna,
þar sem viðbragðsbúnaður er til staðar og
þekkt er hverjir eru í mestri hættu, er ljóst
að þau inngrip stjórnvalda í rétt okkar til
að koma saman og stunda atvinnu eru ekki
réttlætanleg á grundvelli almannahags-
muna og uppfylla ekki skilyrði um meðalhóf
sem stjórnvöldum ber að virða í aðgerðum
sínum.
Covid 1984
Eftir Arnar
Sigurðsson
»Ekki verður séð að þær
hörmungar sem hið
opinbera hefur leitt yfir þorra
almennings, sem ekki er
útsettur fyrir COVID-19-
faraldrinum, séu með nokkru
móti réttlætanlegar.
Arnar Sigurðsson
Höfundur er víninnflytjandi.
Nú stöndum við á miklum
tímamótum sem samfélag. Co-
vid-faraldurinn og kreppan sem
hann hefur leitt af sér hefur
varpaði ljósi á bæði styrkleika
og veikleika í grunngerð sam-
félagsins. Framtíðin veltur á
því hvaða lærdóma við drögum
af því og hvaða leiðir við veljum
út úr kreppunni.
Breytingar þurfa að vera á
forsendum fólksins en ekki
fjármagnsins. Við þurfum að
tryggja fólki lífsviðurværi, góð störf, góð
réttindi og gott stuðningsnet. Nú er tæki-
færið til að rýna dýpra í það í hvernig sam-
félagi við viljum búa. Hvernig viljum við
beita okkur til varnar náttúrunni? Hvernig
ætlum við að takast á við áskoranir sem
framundan eru?
Atvinnusköpun
og örugg framfærsla
ASÍ birti í vikunni framtíðarsýn sína und-
ir yfirskriftinni Rétta leiðin – frá kreppu til
lífsgæða og öryggis fyrir okkur öll. Þar eru
settar fram metnaðarfullar tillögur um at-
vinnusköpun með það að markmiði að
byggja fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf þar
sem allir sem vilja geta fengið störf við
hæfi. Sett er fram skýr framtíðarsýn um
framfærslutryggingu, traust húsnæði, öfl-
uga innviði og gjaldfrjálsa grunnþjónustu.
Þetta eru lykilþættir til að búa Ísland undir
fyrirsjáanlegar breytingar á atvinnu- og
lifnaðarháttum og tryggir að þær verði ekki
til að auka á ójöfnuð og fátækt.
Eitt af stóru verkefnunum fram undan er
að móta ferðaþjónustuna upp á nýtt. Ferða-
þjónustan hefur á skömmum tíma orðið einn
af grunnatvinnuvegum landsins en það er
augljóst að þessi stoð samfélagsins mun
gefa eftir á komandi mánuðum og fram á
næsta ár hið minnsta. Þessi samdráttur
verður tímabundinn, ferðamönnum mun
fjölga aftur en það er í okkar hendi að stýra
því hvernig við viljum að ferðaþjónustan sé
til framtíðar. Við getum nýtt lægðina til
markvissrar uppbyggingar inn-
viða í ferðaþjónustunni. Upp-
bygging göngustíga, útsýn-
ispalla, salerna og
þjónustumiðstöðva við nátt-
úruperlur landins er tilvalin
fjárfesting á samdráttartímum.
Til þess að tryggja öllum
landsmönnum sambærileg
tækifæri til atvinnusköpunar og
lífsgæða þá verður að hraða
uppbyggingu raforku- og fjar-
skiptakerfisins. Við þurfum að
hraða orkuskiptum í sam-
göngum þar sem það er mögu-
legt og efla vistvænar almenningssam-
göngur.
Vegvísir til framtíðar
Samfélagið þarf að nýta þessa tíma til að
efla menntakerfið og opna það þeim sem
ekki hafa fengið tækifæri til þess að afla sér
menntunar, þar á meðal sí- og endurmennt-
unar. Tímabært er að setja á laggirnar sér-
stakt fagháskólastig til að efla iðn- og verk-
menntun en eins og staðan er í dag komast
færri að en vilja í þeim fögum. Vinnustað-
anámssjóð þarf jafnframt að stórefla til að
tryggja nægt framboð á starfsþjálfun.
Upp úr stendur að á krepputímum er
hægt að taka ákvarðanir sem gera kreppuna
dýrari, langvinnari og skaðlegri, eða ákvarð-
anir sem skila samfélaginu sterkara en það
var áður. Um það snýst valið. Með tillögum
ASÍ er settur fram vegvísir til framtíðar
þar sem samhliða er tekist á við áskoranir
vegna loftslagsbreytinga og tækninýjunga.
Nú er tíminn til að velja réttu leiðina út úr
erfiðri stöðu, fjárfesta í fólki og hafna sér-
hagsmunum. ASÍ mun ekki láta sitt eftir
liggja.
Rétta leiðin út
úr kreppunni
Eftir Kristján Þórð
Snæbjarnarson
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
»Nú er tækifærið til að rýna
dýpra í það í hvernig sam-
félagi við viljum búa.
Höfundur er 1. varaforseti
Alþýðusambands Íslands.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er Svavar Alfreð
Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrar-
kirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi
Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson
þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti
er Krisztina Kalló Szklenár. Söngur
Margrét Einarsdóttir og Einar Clausen.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Sigurður Jónsson sóknarprestur pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt Jó-
hönnu Maríu Eyjólfsdóttur djákna. Kór
Áskirkju syngur. Organisti er Bjartur
Logi Guðnason. Aðalsafnaðarfundur
Ássóknar 2020 verður haldinn í Ási
strax að guðsþjónustu lokinni. Dag-
skrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur
mál.
Guðsþjónusta uppstigningardag, 21.
maí, kl. 14. Jóhanna María djákni pré-
dikar. Séra Sigurður þjónar fyrir altari.
Kór Áskirkju syngur. Bjartur Logi leikur
á orgelið. Kaffi í Ási á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Plokk-
messa; mæting við Fógetatorg kl. 11
og gengin fjaran í átt að Bessastaða-
kirkju. Við ætlum út að plokka og huga
að umhverfinu og í lokin verður öllum
viðstöddum boðið upp á messukaffi
undir kirkjuvegg.
Allir hjartanlega velkomnir og að sjálf-
sögðu virðum við tveggja metra regl-
una.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er Magnús Björn
Björnsson. Organistinn Örn Magn-
ússon stjórnar Kór Breiðholtskirkju.
Lofgjörðar- og bænaguðsþjónusta Al-
þjóðlega safnaðarins verður kl. 14.
Prestur Toshiki Toma.
Samtímis verður sunnudagaskóli.
Steina Þorbergsdóttir djákni sér um
hann.
BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldumessa
17. maí kl. 11.
Daníel Ágúst og Sóley ræða við börn-
in, sr. Pálmi messar. Félagar úr Kór
Bústaðakirkju leiða söng undir stjórn
Jónasar Þóris og messuþjónar að-
stoða.
Aðalsafnaðarfundur Bústaðasóknar
verður haldinn eftir messu. Vegna að-
stæðna verður ekki boðið upp á kaffi
og meðlæti eins og venja hefur verið.
Það bíður betri tíma.
DÓMKIRKJAN | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Elínborg Sturludóttir þjónar og
Dómkórinn syngur undir stjórn dóm-
organistans Kára Þormar. 17. maí
klukkan 20 er æðruleysismessa þar
sem sr. Sveinn Valgeirsson, sr. Díana
Ósk Óskarsdóttir og sr. Fritz Már Jörg-
ensson þjóna. Söngkonan Silja Rós
Ragnarsdóttir syngur frumsamið lag
við undirleik gítarleikarans Kristins
Þórs Óskarssonar. Kristján Hrannar
Pálsson leikur á flygilinn og leiðir
sálmasönginn.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhild-
ar Valgarðsdóttur organista. Reynir
Þormar leikur á saxófón. Sunnudaga-
skólinn er á sama tíma í umsjá Mörtu
og Ásgeirs. Meðhjálpari Helga Björg
Gunnarsdóttir. Verið hjartanlega vel-
komin.
GRAFARVOGSKIRKJA | Helgihald
hefst á ný 17. maí.
Messa verður í kirkjunni kl. 11.
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar
og þjónar. Organisti er Hákon Leifsson
og félagar úr kór Grafarvogskirkju
leiða söng.
Engin messa verður í Kirkjuseli né
verður sunnudagaskóli á neðri hæð
kirkjunnar vegna samkomutakmark-
ana.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir og
sr. María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir
þjóna ásamt messuhópi. Ásta Har-
aldsdóttir spilar og nokkrir kórfélagar
leiða söng. Við virðum 2ja metra regl-
una, þvoum og sprittum hendur og
megum vera 50 samtals. Kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 12. Helgistund
send út á uppstigningardag á FB og
heimasíðum Grensáskirkju og Bú-
staðakirkju, hugleiðingu flytur Hólm-
fríður Ólafsdóttir djákni.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta kl. 11. Sunnudagaskóli
kl. 13.
Sunnudag 17. maí hefst helgihald aft-
ur í kirkjunni. Við fylgjum að sjálfsögðu
öllum fyrirmælum sóttvarnalæknis og
verðum meðal annars með guðsþjón-
ustu og sunnudagaskóla á ólíkum
tíma til að takmarka fjöldann.
Prestur er Leifur Ragnar Jónsson, org-
anisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guð-
ríðarkirkju syngur.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Prestur er Þórhildur
Ólafs, organisti er Guðmundur Sig-
urðsson, forsöngvari. Tilmæli varð-
andi fjarlægðarmörk og fjölda virt.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði
Árna Þórðarsyni. Messuþjónar að-
stoða. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti er Hörður
Áskelsson. Barnastarf kl. 13 í umsjá
Kristnýjar R. Gústavsdóttur og Ragn-
heiðar Bjarnadóttur. Virðum reglur al-
mannavarna.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Félagar úr Kordíu, kór Háteigs-
kirkju, leiða messusöng.
Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prest-
ur er Eiríkur Jóhannsson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Ferming-
armessa kl. 11. Eitt ungmenni fermt.
Prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir, kór
kirkjunnar syngur, organisti er Miklós
Dalmay.
Aðalsafnaðarfundur Hveragerðis-
safnaðar verður haldinn í Hveragerð-
iskirkju þriðjudagskvöldið 19. maí nk.
Venjuleg aðalfundarstörf.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudag-
urinn 17. maí kl. 20. Kvöldmessa, Arn-
ór Vilbergsson leikur undir söng Elm-
ars Þór Haukssonar. Sr. Erla
Guðmundsdóttir þjónar.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sighvatur Karlsson héraðs-
prestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja
undir stjórn Lenku Mátéová, kantors
kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar-
prestur þjónar, félagar úr Kór Lang-
holtskirkju syngja undir stjórn Magn-
úsar Ragnarssonar organista. Að
messu lokinni verður haldinn að-
alsafnaðarfundur Langholtssóknar, á
dagskrá eru hefðbundin aðalfund-
arstörf.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Vegna tak-
markana verður sunnudagaskólinn al-
farið í kjallara kirkjunnar en guðsþjón-
ustan uppi í kirkjurýminu. Sr. Steinunn
messar uppi með Steingrími Þórhalls-
syni organista og félögum úr kór Nes-
kirkju. Sr. Skúli verður með sunnu-
dagaskólann ásamt Katrínu H.
Ágústsdóttur og Ara Agnarssyni sem
leikur undir. Hressing eftir samveruna.
Að loknu helgihaldi verður aðalsafn-
aðarfundur Nessóknar í safn-
aðarheimilinu.
Sandgerðiskirkja | Kvöldmessa kl.
20. Sameiginleg fyrir báðar sóknir
prestakallsins. Kór Útskála- og Hvals-
nessóknar syngur undir stjórn Keith
Reed. Gott hreinlæti, hátt til lofts og
vítt til veggja. Fyrstu 50 velkomnir í
þessa fyrstu messu síðan í mars.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11,
sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar og fé-
lagar úr Kór Seljakirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Organisti er Tómas
Guðni Eggertsson. Kirkjan rúmar vel
50 þátttakendur með tveggja metra
fjarlægð og því auðvelt að framfylgja
öllum fyrirmælum er varðar sóttvarnir.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik
Vignir Stefánsson er organisti. Sig-
urlaug Arnardóttir leiðir almennan
safnaðarsöng. Erla María Sveinsdóttir
sér um sunnudagaskólann. Kaffi og
kleinur eftir athöfn úti á hlaði kirkj-
unnar. Aðalsafnaðarfundur kl. 12.15 í
safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11.
Nú byrjum við ekki saman inni í kirkju-
skipinu heldur verðum í sitt í hvoru lagi
allan tímann til að fylgja reglum al-
mannavarna. Félagar í kór Vídal-
ínskirkju syngja og organisti er Jóhann
Baldvinsson. Sr. Jóna Hrönn Bolladótt-
ir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
messuþjónum. Jóna Þórdís Eggerts-
dóttir, Davíð Sigurgeirsson og Matt-
hildur Bjarnadóttir leiða sunnudaga-
skólann. Messukaffi fyrir utan kirkjuna
og safnaðarheimilið.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Guðsþjónusta hinn almenna bænadag
kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guð-
mundsdóttur og sr. Bragi J. Ingibergs-
son sóknarprestur þjónar með aðstoð
messuþjóna kirkjunnar. Aðalsafn-
aðarfundur í safnaðarsal að guðsþjón-
ustu lokinni. Á dagskrá verða venjuleg
aðalfundarstörf.
ORÐ DAGSINS:
Sending heilags anda
(Jóh. 16)
Morgunblaðið/Einar FalurMelstaður í Húnavatnssýslu.