Morgunblaðið - 16.05.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 16.05.2020, Qupperneq 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020 ✝ Lilja KristínEyjólfsdóttir Kolbeins fæddist í Bygggarði á Sel- tjarnarnesi 10. apríl 1928. Hún lést á dvalarheimilinu Grund í Reykjavík 28. apríl 2020. For- eldrar hennar voru Ásta Helgadóttir Kolbeins (1902- 1996) og Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson (1894-1947), bóndi og verslunarmaður á Sel- tjarnarnesi. Systkini Lilju voru Þórey (1927-1997), gift Ólafi Einari Ólafssyni (1928-1974), Eyjólfur (1929-2002), kvæntur Ernu Kristinsdóttur Kolbeins (f. 1934), Andrea Halla (1930- 2012), gift Peter Lockhart (1918-2008) og Ásta (1933-2018), gift Andrési Péturssyni (1931- 1999). Haustið 1930 fluttist fjöl- skyldan í nýreist steinhús að Kolbeinsstöðum í Lamba- staðamýri á Sel- tjarnarnesi, en hafði þá um sum- arið búið á Grænu- mýri. Haustið 1936 fluttist fjölskyldan aftur vestur í Bygg- garð og var þar fram að hernámi, árið 1940. Fjöl- skyldan bjó þá um hríð á Leifsgötu 9, en flutti árið 1942 að Kolbeinsstöðum. Þar átti Lilja heimili næstu áratugi, lengst af aðeins með móður sinni. Frá 1995 til 2019 bjó Lilja á Vestur- vallagötu 1, en flutti síðan á Grund. Lilja lauk prófi í hárgreiðslu við Iðnskólann 1947 og starfaði við þá iðn um skamma hríð. Hún var þerna og síðar yfirþerna á Gullfossi öll árin sem hann sigldi, 1950-1973. Eftir það starfaði hún stutt á Hótel Sögu, en lengst af við símavörslu í stjórnarráðinu. Útförin fór fram 8. maí 2020. Nú hefur Lilja frænka kvatt okkur og haldið á vit nýrra æv- intýra. Margar góðar minningar koma upp í hugann frá barn- æsku minni og uppvexti. Að eiga frænku sem Lilju sem sigldi á Gullfossi var nokkuð til að vera hreykinn af. Margar góðar gjafir gaf hún mér, t.d. dúkku sem er til enn, dúkkurúm og dúkkuvagn, að ógleymdum nælonsokkum með tíglamunstri og rósóttum, nokk- uð sem enginn annar átti. Þetta var allt nýtt fyrir okkur og nýj- asta tíska. Minningin um allar ferðirnar með pabba að sækja Lilju þegar skipið kom að bryggju og fá að fara um borð. Alltaf var gaman að koma til Lilju, spjalla og sjá alla fínu hlutina hennar. Lilja lét alltaf lítið fyrir sér fara, hún fylgdist vel með okkur öllum, vissi af- mælisdaga og nöfn okkar í stór- fjölskyldunni. Það er ógleymanlegt okkur fjölskyldunni þegar hún og Dúdda systir hennar komu í heimsókn til okkar til Bandaríkj- anna þegar við bjuggum þar. Það var dýrmætur tími sem aldrei gleymist. Síðustu átta ár hef ég búið í Noregi, við Lilja höfum haft mikið símasamband og reyndum að fara á kaffihús þegar ég kom heim til Íslands. Oft var spjallað fram á nótt um heima og geima og rifjaðar upp gamlar sögur og fleira. Þá var mikið hlegið. Lilja varð voða glöð þegar hún vissi að ég væri að flytja heim aftur og við ætluðum að fara á kaffihús, en náðum því ekki vegna Covid 19. En hún beið eftir mér og ég átti mörg samtöl við hana í síma og gegn- um glugga á Grund. Takk fyrir allt. Kveðja, Elín Karólína Kolbeins (Ella). Lilja frænka er látin. Hún var sú eina sem eftir lifði í systk- inahópnum í Bygggarði og á Kolbeinsstöðum og var stundum, að eigin sögn, orðin södd lífdaga. Lilja ólst upp í heimahúsum. Lífið var þá fremur fábreytt, en ágætt, og enginn skortur um- fram það sem almennt var á Ís- landi á fjórða áratugnum. Hún undi sér með systkinum sínum við leiki í túninu og í fjörunni og lærði til bókar í Mýrarhúsa- skóla. Þótt gangan þangað úr Bygggarði hafi ekki verið lengri en hún er í dag var hún oft erfið, því þá var Nesið óbyggt og hvergi skjól fyrir vetrarstorm- um. Á óveðursdögum leyfði stræt- isvagnstjórinn börnunum á ystu bæjunum að sitja í á leiðinni heim. Það mundi Lilja og var honum þakklát alla ævi. Á unglingsárum lærði Lilja hárgreiðslu í Iðnskólanum og starfaði hún við þá iðn um hríð. Var það henni eftirminnilegt að vinna fyrir peningum í fyrsta sinn og að geta keypt skraut- vöru í búð í Reykjavík til að færa móður sinni á jólunum 1947. Á þeim árum voru notuð ýmis hársnyrtiefni sem fóru illa í Lilju og meðal annars þess vegna réðst hún til starfa á nýja Gullfossi þegar hann var keypt- ur, árið 1950. Auk þess voru launin betri á sjó en í landi. Lilja var þerna og síðar yf- irþerna á Gullfossi allan þann tíma sem hann sigldi frá Íslandi og er sá tími tvímælalaust há- punktur í lífi Lilju. Starfið á Gullfossi og heim- sóknir í erlendar hafnir voru óþrjótandi uppspretta sagna og minninga, ekki síst fyrstu árin, þegar Gullfoss var í siglingum í Frakklandi og Norður-Afríku. Lilja hélt heimili með móður sinni áratugum saman á Kol- beinsstöðum þar til móðir henn- ar flutti á dvalarheimilið Eir í hárri elli. Flutti Lilja þá í íbúð sína á Vesturvallagötu 1, en þeirri íbúð hafði hún safnað sér fyrir með með margra ára spar- semi og nægjusemi. Eins og á Kolbeinsstöðum einkenndist heimili Lilju af smekkvísi og al- úð. Margt var til skrauts, en allir hlutir áttu sér stað og það var aldrei hin minnsta óreiða. Lilja var reglusöm, hagsýn og nýtin. Ekki var nóg með að hún færði systkinabörnum sínum reglulega gjafir frá útlöndum, heldur færði hún árum saman ýmsan varning heim til daglegra þarfa stórfjölskyldunnar, varn- ing sem ýmist var erfitt að fá á Íslandi, eða var dýrari en í út- löndum. En svo var Gullfoss seldur og eftir það starfaði Lilja lengst af á símaborði stjórnarráðsins. Þótt það hafi ekki verið eins mikið ævintýri og árin á sjónum var margs að minnast frá þeim árum. Sérstaklega þótti henni mikið til Vilhjálms frá Brekku koma, en auk þess að vera al- þýðlegur maður hætti hann að veita brennivín í veislum. Það þótti Lilju vel gert. Lilja var mjög umhyggjusöm og ósérhlífin. Hún annaðist móð- ur sína í veikindum og elli dag- lega í mörg ár og síðar systur sínar, Þóreyju og Höllu. Lilja og Þórey systir hennar ferðuðust stundum saman til útlanda, en annars voru áhugamál ekki fyr- irferðarmikil í lífi Lilju og ef hún var spurð um þau sagði hún að lengst af hefði ekki verið tími til margs annars en að vinna, halda heimili, sinna því sem þurfti að sinna, borða og sofa. Haraldur Ólafsson Lilja var góð við mig. Hún var alltaf að hella upp á kaffi fyrir mig. Hún var svo ljúf. Við vorum oft að búa til báta saman. Það var yndislegt að hafa hana hjá mér. Einu sinni þegar við vorum í Keflavík fauk af henni „pott- lokið“. Þá fór hún að hlæja. Þá fórum við öll að hlæja. Hún var alltaf svo góð við mig. Lilja var amma sem ég gat treyst. Haraldur Þorgeirsson. Lilja Kristín Eyj- ólfsdóttir Kolbeins ✝ ÞorsteinnGuttormur Halldórsson fædd- ist á Sætúni á Langanesi, Norð- ur-Þingeyjarsýslu, hinn 5. nóvember 1946. Hann lést á líknardeild Land- spítalans hinn 30. apríl 2020. Foreldrar Þor- steins voru hjónin Helga Gunnlaugsdóttir, f. á Eiði á Langanesi 31. mars 1910, d. 23. nóvember 1992, og Halldór Þorsteinsson, f. á Syðri-Brekkum á Langanesi 6. júní 1904, d. 17. maí 1990. Þau bjuggu fyrst á Sætúni en fluttu síðar að Hallgilsstöðum í sömu sveit og þaðan til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu til ævi- loka. Eftirlifandi alsystkini Þorsteins eru: Jörgen Þór, f. 22. febrúar 1937, maki Hrefna Kristbergsdóttir, Halldóra Þor- björg, f. 6. maí 1940, maki Baldur Fr. Sigfússon, Jóhanna Margrét, f. 8. nóvember 1941, maki Sigurður Skúlason, Arn- þrúður, f. 17. maí 1944, Stefanía Arnfríður, f. 7. apríl 1948, Daníel, f. 20. apríl 1951, og Guðmundur, f. 19. október 1952, maki Anna Kristín Björnsdóttir. Áður höfðu foreldrar Þorsteins eignast dreng sem and- aðist skömmu eftir fæðingu. Hálfbróðir Þorsteins, sammæðra, var Kári Jónsson, f. 20. nóvember 1930, d. 4. maí 2017, maki Guðbjörg Ágústs- dóttir. Þorsteinn nam húsasmíði við Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi árið 1975 og meistaranámi í sömu grein árið 1978. Hann var einn af stofn- endum trésmiðjunnar Fira og síðar annar af stofnendum tré- smiðjunnar Húsunar en við það fyrirtæki starfaði hann þar til hann hætti störfum. Útför Þorsteins fór fram í kyrrþey í Seltjarnarneskirkju hinn 7. maí 2020. Þorsteinn bróðir okkar lést á líknardeild Landspítalans 30. apríl síðastliðinn. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Þor- steinn ólst upp í hópi átta al- systkina, en fyrsta barn for- eldra okkar var drengur sem lést kornabarn. Áður hafði móð- ir okkar eignast dreng, Kára Jónsson, sem nú er látinn. Þor- steinn fæddist á Sætúni á Langanesi en þegar hann var á þriðja árinu fluttist fjölskyldan að Hallgilsstöðum í sömu sveit. Hann naut barnakennslu þess tíma, svokallaðrar farkennslu, sem reyndist ýmsum drjúgt veganesti. Á Hallgilsstöðum var rekið fjárbú, en kýr hafðar til heimilisnota. Langanes er harð- býl sveit og þangað bárust ýms- ar nýjungar í búskap seint og á Hallgilsstöðum byggðist hey- skapur lengst af á vöðvaafli manna og hesta og hjálpsemi góðra granna, þeirra Jónasar á Brúarlandi og Indriða á Syðri- Brekkum, sem töldu það ekki eftir sér að renna yfir í Hallgils- staði og slá nótt og nótt til að létta undir við heyskap. Á fyrri hluta sjöunda áratugarins voru erfið búskaparár og ljóst að bú- skap foreldra okkar yrði ekki fram haldið, enda þau orðin afar heilsutæp. Haustið 1966 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og settist að í Mávahlíð 11. Þar átti Þorsteinn heimili æ síðan. Fljót- lega eftir að suður kom hóf Þor- steinn nám í Iðnskólanum í Reykjavík þaðan sem hann lauk fyrst sveinsprófi og síðan meist- aranámi í húsasmíðum. Hann stofnaði trésmiðjuna Fira árið 1978 ásamt Einari og Atla Hjartarsonum og Árna Sigurðs- syni en seldi síðar sinn hlut og stofnaði trésmiðjuna Húsun, ásamt Brynjari Björgvinssyni innanhússhönnuði, þar sem hann starfaði allt þar til hann hætti störfum. Hinn 28. mars sl. kenndi Þor- steinn mikilla verkja og var fluttur á bráðamóttöku Land- spítalans. Rannsóknir leiddu í ljós krabbameinsæxli í ristli og meinvörp í rifbeinum og lifur. Var ljóst að þetta mein væri ekki læknanlegt. Fyrst eftir að meinið greindist dvaldi Þor- steinn áfram á heimili sínu þar sem hann naut aðhlynningar systkina sinna með aðstoð starfsfólks Heru, líknarþjónustu Landspítalans. Þegar sjúkdóm- urinn ágerðist var hann síðan fluttur á líknardeild Landspít- alans þar sem hann lést hinn 30. apríl. Þorsteinn var rólyndur mað- ur og átti fáa vini en trausta. Í hópi vina og ættingja naut hann sín best, var gamansamur og kunni vel að segja frá og var fróður um ýmislegt enda minnið traust. Þorsteinn var smiður góður og vandvirkur. Hann var einstaklega hjálpsamur við fjöl- skyldu sína, ættingja og vini. Hann hafði gaman af að fara með byssu og stöng og spilaði bridds um langt árabil. Það er sárt að missa kæran bróður og vita að skarð hans verður aldrei fyllt. Þorsteinn kvartaði aldrei og ekki voru læknisheimsóknir hans margar um dagana. Óefað var hann búinn að kenna sér meins löngu áður en hann fór loks á spítala nú í lok mars. Þeirri hugsun verður ekki varist að hefði það mein uppgötvaðast fyrr hefði hann getað átt mörg ár enn eftir ólifuð. Þorsteins verður sárt saknað af systkinum sínum, ættingjum og vinum. Blessuð sé minning hans. Fyrir hönd okkar systkin- anna, Guðmundur Halldórsson. Þorsteinn Gutt- ormur Halldórsson Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 11-16 virka daga Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR SJÖFN EINARSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 11. maí. Jarðarför verður auglýst síðar. Lúðvík S. Nordgulen Einar Nordgulen Eva Nordgulen Lúðvík Þ. Nordgulen Margrét H. Helgadóttir Ólafur Nordgulen Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, HULDA ERLENDSDÓTTIR HUDSON, lést föstudaginn 1. maí á hjúkrunarheimili í Purcell, Oklahoma. John Hudson Anita Hudson Richard Hudson Patricia Hudson Rex Hudson Michelle Hudson Erlendur Jónsson Marta Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN ÞRÁINN VESTMANN, lést 9. maí á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útför hans fer fram í kyrrþey. Birna S. Ingólfsdóttir Vestmann Inga Katrín Vestmann Kristján Þ. Kristinsson Þorvaldur Vestmann Þórdís Þórólfsdóttir Margrét Vestmann Aðalbjörn R. Svanlaugsson Valur Vestmann Vera W. Vestmann barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SVAVA JÓNSDÓTTIR, Boðaþingi 24, lést miðvikudaginn 13. maí á hjúkrunar- heimilinu við Sléttuveg í Fossvogi. Grímur Antonsson Björg Freysdóttir Guðrún Clausen Gísli Antonsson Aðalbjörg Katrín Helgadóttir Rúnar Antonsson Guðlaug Hrönn Gunnarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur og frændi, HÖRÐUR SÆVAR SÍMONARSON, lengst af sjómaður, Laugavegi 157, Reykjavík, lést laugardaginn 9. maí á Líknardeildinni í Kópavogi eftir skammvinn veikindi. Útförin mun fara fram frá Fríkirkjunni mánudaginn 18. maí klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana biðjum við þá sem áhuga hafa á að fylgja Sævari að vera í sambandi við aðstandendur. Íris Björk Harðardóttir Helgi Ernir Helgason Anna María Harðardóttir Hafdís Ósk Harðardóttir Haraldur Guðjónsson Þórunn M. Ólafsdóttir Jórunn Helena Jónsdóttir Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.