Morgunblaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
Elsku pabbi.
Eftir hverja bar-
áttuna á fætur annarri í þínum
erfiðu veikindum færðu nú hvíld.
Margt er búið að streyma fram
í gegnum þennan tíma.
Sem barn þegar þú last fyrir
mig hverja bókina á fætur ann-
arri. Og við höfðum gaman af
sömu höfundunum í gegnum tíð-
ina, Enid Blyton, Desmond Bag-
ley, Arnaldur og Lisa Marklund
koma strax upp í hugann en svo
varstu einnig með gæðahöfund-
ana líka.
Ragnar H.
Guðmundsson
✝ Ragnar H.Guðmundsson
fæddist 16. maí
1942. Hann lést 30.
apríl 2020.
Útför Ragnars
fór fram 14. maí
2020.
Eins og Laxness
sem þú hélst svo
mikið upp á en ég
hef aldrei náð. Bóka-
safnið þitt er magn-
að safn enda varstu
svo mikill bókamað-
ur. Man alltaf hvað
þú straukst bækurn-
ar af mikilli vænt-
umþykju og virð-
ingu.
Studdir svo vel við mig í íþrótt-
unum og skákinni. Ófáar ferðirn-
ar í taflfélagið þar sem þú ekki
bara keyrðir heldur fylgdist með
skákunum, á íþróttaæfingum og
leikjum. Komst með góð ráð og
stuðning þegar á þurfti að halda.
Og minningarnar þjóta áfram.
Hestamennskan, hvað það var
skemmtilegur tími með 3 hesta og
Trygg okkar með í för. Þegar
Perla, hesturinn minn, ákvað að
ferðast ein um landið og valdi sér
erfitt svæði.
Þolinmæðin og ákveðnin sem
þurfti til að leysa það. Útreiðar-
túr fallegt kvöld á sandströndinni
í Þorlákshöfn þar sem við þutum
um á góðum lánshestum, góðlát-
legt grín um hvernig ég náði að
láta minn valhoppa svo skemmti-
lega.
Þegar við unnum saman og fór-
um á sýningar erlendis, útsjónar-
semin og hve vel þér gekk að
vinna með stundum skrýtnum
fuglum þar í bland við eðalfólk.
Allir jafnir fyrir þér.
Þú veiktist allt of snemma,
tveimur árum eldri en ég er núna
og það var erfitt og sárt að upplifa
það. En þú gerðir það af reisn og
baráttu og ótrúlegri þolinmæði.
Styrkurinn sem maður hafði
alla tíð af því hve þú og mamma
stóðuð saman alla tíð og við
hverja raun.
Og hve sterk og þétt við vorum
og erum sem fjölskylda, ómetan-
lega dýrmætt!
Eins og Bubbi Morthens segir
í sínum fallega sálmi:
Um aldur og ævi þú verður mér nær
Aldrei ég skal þér gleyma.
Hvíl í friði, faðir minn, og takk
fyrir allt!
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Jóhann Hjörtur Ragnarsson.
Það er með sár í
hjarta og miklum
söknuði sem ég
minnist æskuvin-
konu minnar. Við kynntumst ár-
ið 1979 og má segja að við höfum
alist upp saman. Ég þurfti nú
aðeins að hafa fyrir því að kynn-
ast henni en síðan eru liðin 40 ár
og var vinátta okkar aldrei dýpri
né sterkari en þessi síðustu ár.
Þrátt fyrir feimni og óframfærni
var Ástrún alltaf til í að gera
eitthvað skemmtilegt, því eru
margar minningar af ævintýrum
okkar í gegnum tíðina. Við vor-
um mjög samrýndar og gengum
við með okkar fyrsta barn á
sama tíma.
Ástrún mín var harðdugleg,
einstaklega hjartahlý, gjafmild
og tryggur vinur. Hún mátti
ekkert aumt sjá og styrkti
rausnarlega hjálparsamtök og
safnanir barna vina og ættingja.
Heimili hennar var ávallt öllum
opið sem til hennar leituðu, því
var mikill gestagangur alla daga
fram á síðustu stundu. Hún vildi
allt fyrir alla gera og þoldi illa
Ástrún
Sigurbjörnsdóttir
✝ Ástrún Sig-urbjörnsdóttir
fæddist 24. mars
1970. Hún lést 20.
apríl 2020.
Útför Ástrúnar
fór fram 15. maí
2020.
leiðindi og læti.
Fjölskyldan var
Ástrúnu mikilvæg
og gerði hún sér far
um að heimsækja
þá sem henni voru
næstir. Hún lagði
mikið á sig fyrir
strákana sína til að
búa þeim gott
heimili og til að þá
skorti ekki neitt.
En í lífinu eru líka
erfiðleikar og við vörðum mörg-
um klukkutímum í heita pott-
inum, eins og við orðuðum það:
„að leysa heimsmálin“, það var
bara svo mikið sem þurfti að
ræða og leysa. Eina eftirsjá Ást-
rúnar var að hafa ekki notið
fleiri stunda með strákunum sín-
um þegar þeir voru litlir, frekar
en að vinna svona mikið. Hún
var svo stolt af þeim.
Hún var einstaklega barngóð
og hlakkaði til barnabarns síns
sem von er á í haust og hún
þráði mikið. Við vinkonurnar
höfðum einstaklega gaman af
því að hafa það gaman. Það var
bara alltaf tími til að fagna,
hvort sem það var velgengni
barna okkar, sumrinu eða bara
lífinu. Við fórum margar ferð-
irnar út fyrir landsteinana og
einhvern veginn komu alltaf upp
alls konar atriði, misalvarleg en
oftast spaugileg þegar frá leið
sem gaman er að minnast. Við
höfðum líka sett okkur ýmis
markmið í gegnum tíðina, svo
margt að upplifa og skoða. Við
myndum drekka sérrí á hverjum
degi, skála fyrir lífinu og rifja
upp gamla daga.
Sem betur fer nenntum við nú
ekki að bíða svona lengi og not-
uðum við hvert tækifærið til að
skála fyrir lífinu og því góða. Í
dag er ég þakklát fyrir það og
þrátt fyrir að við getum ekki
klárað markmiðin okkar saman
verður hún alltaf með mér í
huga og hjarta.
Við upplifðum saman og
studdum hvor aðra bæði í sorg
og gleði og er ég þakklát fyrir að
hafa getað verið með henni síð-
ustu mánuðina sem voru henni
erfiðir en sem hún tókst á við
með auðmýkt og þeirri hörku og
dugnaði sem voru einkennandi
fyrir hana. Ég sendi strákunum
hennar, Bjarna og hennar nán-
ustu mínar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Hvað sem þú þráir heitt
sumu verður aldrei breytt.
Sólin hreyfist ekki úr stað
það er útséð allt um það.
Vilt vera öllum allt,
bæði skilur vilt og skalt.
Í allar áttir orkan fer
en þú gleymir sjálfri þér.
Og þegar degi fer að halla
þú sérð ekki handa þinna skil.
Heyrir ótal raddir kalla
geturðu brúað þetta bil.
Stundum er alveg nógu erfitt
að vera bara til.
(Sváfnir Sigurðarson.)
Melkorka Sigurðardóttir.
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Sigurður Bjarni Jónsson
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
Laugarhvammi,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
laugardaginn 9. maí.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 29. maí
klukkan 14. Jarðsett verður í Reykjakirkjugarði. Streymt verður á
facebook-síðu kirkjunnar og útvarpað í nærumhverfi hennar á
FM 107,2.
Erling Jóhannesson Hulda Garðarsdóttir
Helgi Friðriksson Sigríður Viggósdóttir
Sigurður Friðriksson Klara Jónsdóttir
Jónína Friðriksdóttir Stefán Sigurðsson
Sólveig Friðriksdóttir Kolbeinn Erlendsson
Friðrik Rúnar Friðriksson Jóhanna Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Ástkær sambýlismaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
LÁRUS SIGFÚSSON
fv. bifreiðastjóri,
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 13. maí.
Kristín Gísladóttir
Gréta Kristín Lárusdóttir
Indríður Hanna Lárusdóttir
Sigfríður Lárusdóttir
Svanur S. Lárusson Sigurborg Óskarsdóttir
aðrir afkomendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN ÓLÖF BJÖRGVINSDÓTTIR
lést þriðjudaginn 5. maí. Í ljósi aðstæðna
mun útförin fara fram með nánustu
aðstandendum þriðjudaginn 19. maí
klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á facebook síðu hinnar látnu.
Helga Lilja Tryggvadóttir Sigurjón Magnússon
Magnús B. Tryggvason Elsa Maria Alexandre
Þórhallur Tryggvason Þórhalla Guðmundsdóttir
Hanna Tryggvadóttir Torfi Ragnar Vestmann
barnabörn og barnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað
útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar
✝ Haraldur Sig-urðsson fæddist
í Ólafsvík 9. október
1926. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð 12. apríl
2020.
Foreldrar hans
voru Svanfríður Að-
albjörg Guðmunds-
dóttir, f. 30. október
1885 í Ólafsvík, d.
26. ágúst 1964 og
Sigurður Jóhannes Benedikts-
son, f. 24. nóvember 1899 í Ólafs-
vík, d. 22. maí 1981.
Systkini Haraldar móð-
urmegin voru: Steinunn, f. 1915,
d. 1941, Sveinbjörn, f. 1916, d.
1991, Guðmundur, f. 1918, d.
vogsbæ við ýmis störf.
2. júní 1952 giftist Haraldur
Guðrúnu Sigríði Sigurðardóttur,
f. 10. janúar 1929, d. 31. janúar
2015. Foreldrar hennar voru Sig-
urður Einarsson, f. 1878, d. 1963
og Guðrún S. Jónsdóttir, f. 1889,
d. 1980.
Börn Haraldar og Guðrúnar
eru: 1) Guðbjörn Benedikt, f.
16.11. 1952, d. 5.12. 1966. 2) Ólaf-
ur Lárus, f. 19.2.1954, sambýlis-
kona Jóhanna S. Hannesdóttir, f.
1958. 3) Sigurdór, f. 25.6. 1956. 4)
Eygló, f. 9.7.1957. 5) Birgir, f.
20.8. 1958, sambýliskona Hrefna
Vestmann, f. 1966. 6) Haraldur
Rúnar, f. 18.4. 1961, maki Ósk Ei-
ríksdóttir, f. 1966. 7) Ellert, f. 5.9.
1962, maki Brynja K. Péturs-
dóttir, f. 1977. 8) Guðbjörg Svan-
fríður, f. 17.9. 1970, maki Mar-
teinn H. Þorvaldsson, f. 1967.
Barnabörnin eru 32 og barna-
börnin orðin 41.
Útför Haraldar hefur farið
fram.
1994, Björg, f. 1920,
d. 1921, Kristín, f.
1921, d. 1972, Sig-
urður, f. 1921, d.
2003, Þóra Marta, f.
1924, d. 2004. Upp-
eldisbróðir Har-
aldar er Halldór
Sigurðsson, f. 1942.
Haraldur ólst
upp að Eggi í
Hegranesi. Um 17
ára fer Haraldur til
Reykjavíkur og fer að vinna sem
leigubílstjóri, hann sinnti ýmsum
störfum um ævina, gerðist meðal
annars bóndi í Gaulverjabæ og
svo í Biskupstungum. Eftir að
fjölskyldan flytur í Kópavoginn
vinnur Haraldur hjá Kópa-
Nú er komið að kveðjustund-
inni, elsku pabbi, og við trúum því
að þið mamma og Guðbjörn bróðir
hafið sameinast. Pabbi var stoltur
af krakkaskaranum sínum og vildi
helst hafa okkur í nágrenninu,
allavega í kallfæri og var hann
ekkert ánægður með það þegar
eitt af okkur tók upp á þeirri vit-
leysu að flytja alla leið til Akur-
eyrar, það fannst honum allt of
langt frá. Pabbi hafði ákaflega
létta skapgerð, hann var mjög
stríðinn og glettinn kall. Það var
auðvelt að umgangast hann, fólk
laðaðist að honum og hann hafði
góða nærveru. Honum þótti nú
ekkert leiðinlegt að stríða sam-
ferðamönnum sínum en hann gat
líka alveg tekið stríðni til baka.
Pabbi var mikill bílakall og elskaði
að keyra, hann átti í gegnum tíð-
ina nokkra fallega og góða bíla,
m.a. átti hann bíl sem var með
plötuspilara í. Pabbi fór algjörlega
sínar eigin leiðir í lífinu, eins og
t.d. þegar hann fór úr sveitinni
með 6 börn og ólétta eiginkonu til
Svíþjóðar til að fá vinnu þegar
mikið atvinnuleysi var hér, og al-
gjörlega ótalandi á sænsku eða
ensku. Meðan þau bjuggu í Sví-
þjóð vaknaði ferðaáhugi þeirra
hjóna sem þau nýttu sér með því
að fara í tjaldútilegur um Svíþjóð,
Noreg og Danmörku með hluta af
okkur systkinunum. Pabbi elskaði
líka hesta og hefur átt ógrynni af
hrossum. Hann fór nokkrar hesta-
ferðir um landið sem hann hafði
mikla ánægju af. Pabbi elskaði
vorið og sumarið og langaði svo að
komast í einn bíltúr enn þegar
voraði en um leið og veturinn
sleppti sínum krumlum og vorið
fékk að gægjast inn þá var komið
að endastöð hjá honum svo hann
fær bíltúrinn sinn í sumarlandinu
góða þar sem bíltúrinn, vorið og
sumarið tekur engan enda.
Faðmur þinn svo traustur var
fell ég vel að honum.
Leið mér alltaf best hjá þér
en komið er að leiðarlokum.
Minnist ég þín, allt svo gott
í draumaheim ykkar mömmu.
(E.H)
Þú komst með vorið um vetrarnótt
og vaktir hugann minn.
Í húminu bærðist vindurinn,
hann himneskan heyrði sönginn þinn
um ástir og eilífan dans.
Þú söngst í rjóðri um sólarlag
og fluttir sálminn þinn.
Í kyrrð kvaddi helkuldinn.
Hann heilagan kveikti neistann minn
um ástir og eilífan dans.
Þú varst með völdin um vetrarnótt
og sýndir styrkinn þinn.
Á heiðinni heyrðist hljómurinn,
hann háfleygan hreyfði drauminn minn
um ástir og eilífan dans.
(Þórir Kristinsson.)
Takk fyrir allt, elsku pabbi.
Kveðja, börnin þín.
Ólafur Sigurdór, Eygló, Birgir,
Haraldur, Ellert og Guðbjörg.
Haraldur
Sigurðsson