Morgunblaðið - 16.05.2020, Page 34
34 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
Við erum sérfræðingar
í malbikun
60 ára Sigríður er
Akureyringur, fædd
þar og ólst þar upp
til 11 ára aldurs en
flutti þá til Reykjavík-
ur og býr þar. Hún er
vaktstjóri í Árbæjar-
laug.
Maki: Sigurður Pétursson, f. 1957,
vélvirki hjá Marel.
Synir: Magnús, f. 1982, Konráð, f.
1985, og Birkir Þór, f. 1993, Sigurð-
arsynir Barnabörnin eru orðin 6.
Foreldrar: Magnús G. Jónsson, f.
1929, d. 2017, sjómaður, og Gunnlaug
Þorláksdóttir, f. 1936, d. 2019, versl-
unarkona. Þau voru búsett á Akureyri
og í Reykjavík.
Jónína Sigríður
Magnúsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur reynst hættulegt að
hlaupa til og kaupa bara til þess að kaupa.
Daginn í dag ættir þú að nota til að læra.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhvernveginn æxlast mál alltaf svo
að þú stendur ein/n eftir í því að sjá um
hlutina fyrir allan hópinn. Ákveddu að þú
hafir þetta ekki svona í framtíðinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert eitthvað ómöguleg/ur
fyrri part dags. Sýndu skoðunum annarra
virðingu og leitaðu samkomulags við þá.
Minnimáttarkennd er ekki til í þinni orða-
bók.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú færð frábæra viðskipta-
hugmynd. Viðraðu hana við góða vini sem
þú treystir. Fall er fararheill.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert í góðu jafnvægi og allt virðist
vera með kyrrum kjörum í kringum þig.
Njóttu þess sem dagurinn hefur upp á að
bjóða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað á eftir að koma þér svo á
óvart að þú munt undrast þín eigin við-
brögð. Þú eignast nýjan vin á furðulegum
stað.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt þér finnist sumar fréttir af vinum
þínum á skjön við það sem þú vilt máttu
ekki láta þær setja skugga á samband ykk-
ar. Spyrðu börnin stundum hvað þau vilja.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Áhugamál þín koma til með
að taka stóran part dagsins og það er í
góðu lagi. Reyndu að borða hollara, þér
líður svo miklu betur þá.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fátt er svo með öllu illt að ei
boði gott. Viljirðu sjálf/ur njóta sannmælis
ættu aðrir að njóta þess líka. Gefðu af þér,
þú færð það margfalt til baka.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að setja þig vel inn í
allar þær breytingar sem orðnar eru á
vinnustaðnum. Ef þér verða á einhver mis-
tök þá í guðanna bænum ekki missa móð-
inn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Kastaðu þér af fullum krafti út í
nýju vinnuna. Þú sérð á eftir góðum vini
en það verður ekki lengi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Tilfinningin um að vera ósigrandi,
sem býr innra með þér í dag; er ekki al-
geng en góð. Ekki flýja erfiðar aðstæður.
samsöngsstundum á Hrafnistu í
Reykjavík og er einn skipuleggj-
enda viðburðarins Syngjum saman
í Hannesarholti. „Það er alveg
ótrúlega að gaman að syngja með
fólkinu á Hrafnistu og er vel tekið
undir þar. Við urðum því miður að
héldum þessu eitthvað gangandi.
Þetta eru bestu stundir dagsins og
ég get fullyrt að meirihluta nem-
enda finnst þetta gaman og þau
söknuðu þessara stunda meðan á
samkomubanninu stóð.“
Harpa stendur fyrir vikulegum
H
arpa Þorvaldsdóttir
er fædd í Reykjavík
16. maí 1980 en ólst
upp á Hvammstanga
til 16 ára aldurs eða
þangað til hún fór í menntaskóla.
Það var alltaf nóg að gera „Ég
æfði sund, bar út blöð, var í tónlist-
arnámi og vann í sjoppunni. Ég
byrjaði snemma að spila og var
alltaf sísyngjandi og tónlistin varð
snemma stór partur af mér.“
Harpa útskrifaðist frá Grunn-
skóla Hvammstanga 1996 og eftir
það fór hún í Menntaskólann á Ak-
ureyri og svo Menntaskólann við
Sund og útskrifaðist þaðan árið
2000. Meðfram grunn- og mennta-
skóla stundaði hún líka tónlist-
arnám í píanó og söng.
Árið 1999 tók Harpa þátt í
menningarborgarverkefninu Raddir
Evrópu og var í því í eitt ár. Hún
útskrifaðist vorið 2005 frá
Kennaraháskólanum með áherslu á
tónmenntakennslu og lauk 8. stigi í
söng frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 2006. Hún flutti þá
til Austurríkis og kláraði meistara-
nám í óperusöng við Mozarteum-
tónlistarháskólann í Salzburg 2011
og útskrifaðist með 1. einkunn.
Hún fékk viðurkenningu úr styrkt-
arsjóði Marinós Péturssonar árið
2007. Hún starfaði sem söngkona
og tónlistarkona í Salzburg með-
fram námi. „Ég hef alla tíð sungið
og spilað á píanóið og gerði það
líka úti. Ég ákvað síðan eftir námið
að leita ekki eftir frama í klass-
íkinni, þetta er harður heimur og
ég var komin með tvær dætur á
þessum tíma. En ég bý alla tíð að
náminu enda er ég að vinna í tón-
listinni alla daga.“
Harpa hefur starfað sem tón-
menntakennari í Laugarnesskóla
síðan haustið 2013 og stjórnar
barnakórum þar. „Ég stjórna
morgunsöng á hverjum morgni í
skólanum en Ingólfur Guðbrands-
son kom honum á, á sínum tíma.
Söngurinn hefur alla tíð haldist þar
til í Covid-ástandinu. En þá sungu
krakkarnir í skólastofunni og ég
var úti í sal með hljóðnema og
heyrði í þeim inni þannig að við
hvíla þær stundir núna en það er
ekki ákveðið hvenær það byrjar
aftur. Á morgun verður hins vegar
aftur hægt að koma í Hannesarholt
og syngja saman. Við höfum verið
að streyma þaðan á hverjum
sunnudegi í samkomubanninu í
gegnum Facebook-síðuna okkar.
Við gerðum það líka áður og því
hefur verið vel tekið, bæði úti á
landi og hjá Íslendingafélögum er-
lendis.“
Harpa hefur gefið út eina sóló-
plötu, Embrace, sem kom út 2015
og hún er í hljómsveitinni Brek
sem er að vinna að sinni fyrstu
breiðskífu. Tvö lög eru komin út á
Spotify og fjögur önnur eru vænt-
anleg. „Við vorum búin að bóka
fullt af tónleikum en höfum verið
dugleg að streyma í staðinn. Við
viljum ekki niðurnjörva okkur í
stílum,“ segir Harpa aðspurð. „En
það má segja að við séum þjóðlaga-
skotið dægurlagaband, við erum til
dæmis með mandólín og notum
mikið raddanir.“
Helstu áhugamál Hörpu eru úti-
vist og hreyfing auk tónlistarinnar
Harpa Þorvaldsdóttir, tónlistarkona og tónmenntakennari – 40 ára
Með dætrunum Harpa ásamt Halldóru Björgu og Matthildi um jólin 2018.
Morgunsöngur á hverjum degi
Tónlistarkonan Tónleikar með
hljómsveitinni Brek árið 2019.
Á Írlandi Guðmundur og Harpa í
Howth á afmælisdegi Hörpu í fyrra.
Hólmfríður Ingvarsdóttir verður sjötug
á morgun, 17. maí. Hún er fædd og upp-
alin í Vestmannaeyjum en býr á Akur-
eyri. Hólmfríður er sjúkraliði að mennt
og starfaði lengstum á Hlíð, öldrunar-
heimili Akureyrar. Eiginmaður hennar
var Kristján Vagnsson, f. 28. maí 1946,
d. 19. október 2015. Börn þeirra eru Álf-
heiður Svana, Rannveig, Vagn og Inga
Jóna. Barnabörnin eru 10.
Árnað heilla
70 ára
50 ára Guðrún er
Norðfirðingur, fædd
og uppalin í Neskaup-
stað en býr í Reykja-
vík. Hún er þroska-
þjálfi að mennt frá HÍ
og er í kennslurétt-
indanámi við Háskól-
ann á Akureyri.
Börn: Sveinn Már Ásgeirsson, f. 1990, og
Stefanía Guðrún Birgisdóttir, f. 2008.
Barnabarn er Alba Rós Sveinsdóttir, f.
2014.
Bróðir: Einar Sveinn Sveinsson, f. 1976.
Foreldrar: Sveinn Guðmundur Ein-
arsson, f. 1952, og Stefanía Steindórs-
dóttir, f. 1952. Þau reka eigið verktaka-
fyrirtæki, Haka ehf., í Neskaupstað.
Guðrún Jónína
Sveinsdóttir
Til hamingju með daginn