Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
KOMIN AFTUR Í BÍÓ
TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN !
GÓÐ GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég rétt slapp til Óslóar áðuren kórónuveiran lamaðisamgöngur og naut mín á
by:Larm-tónlistarhátíðinni góðu í
endaðan febrúar (hvar Hildur
Guðnadóttir var einnig verðlaunuð
með Norrænu tónlistarverðlaunun-
um). Ég var staddur í einhverju
hótelanddyrinu er ég rak augun í
Jazznytt, djasstímarit sem Rob Yo-
ung ritstýrir, en sá mektar-
tónlistarpenni hefur nú verið búsett-
ur í Ósló í tæpan áratug. Rak mig þá
enn fremur í rogastans yfir forsíð-
unni, því að þar stóð Oddrún Lilja og
meðfylgjandi mynd af ungum, brött-
um gítarleikara. Þegar ég fletti
blaðinu kom í ljós að hún var Jóns-
dóttir og mig farið að gruna sterk-
lega að hér færi Íslendingur. Reynd-
ist það svo vera. Ég vissi hins vegar
ekkert um viðkomandi og lítið fann
ég af fréttum hérlendis. En greini-
lega nóg í gangi í Noregi, sé téð for-
síða notuð sem vísbending.
Ég setti mig í samband við Odd-
rúnu og forvitnaðist frekar um
hana. Fór svo að við ræddum stutt
saman í síma, fyrir tilstuðlan Whats-
app, og í endann kveikti hún á vef-
myndavélinni og var hún þá stödd í
norskum firði. Hvað annað!
Samtalið fór fram á ágætri
íslensku, eitthvað sem hún hefur
haldið við þrátt fyrir að hafa verið
að mestu í Ósló alla sína ævi. Hún er
íslensk í aðra ættina, bjó á Íslandi
þegar hún var eins árs í smátíma og
svo aftur í eitt ár þegar hún var 11
Sannkallaður djassgeggjari
Ljósmynd/Anne Valeau
ára. Stundaði þá nám í Austurbæjar-
skóla og gat þá nært íslenskuna.
Oddrún segir mér að hún hafi
lært tónlist í Ósló og þrátt fyrir ung-
an aldur er hún þegar orðin afar
víðförul, bæði landfræðilega og tón-
listarlega. Hún hefur þannig leikið
tónlist víða um heim, í Indlandi,
Nepal, Líbanon og í Afríku m.a.
Nítján ára fór hún til New York og
lék þar með þekktum djössurum og
var það kveikjan að öllum þessum
ferðalögum. Hún segir mér að til-
drögin hafi alltaf verið mismunandi,
en ferðalögin hafi eðlilega gert hana
ríkari af reynslunni, auk þess sem
hún leggur sig fram í dag um að
flétta tónlist ólíkra landa saman við
sína eigin. Auk sólóspilamennsku
hefur hún einnig spilað með sveitum
á borð við Moksha, Bugge Wessel-
toft’s New Conception of Jazz og
Frode Haltli’s Avant Folk. Hún fór
þá í tvær ferðir til Íslands, 2014 og
2018 til að átta sig á djasssviðinu
hér. Spilaði hún með Matthíasi Hem-
stock, Sigrúnu Jónsdóttur og Leifi
Gunnarssyni í fyrri ferðinni, en þau
Ingi Bjarni Skúlason, Þorgrímur
Jónsson, Jan Kadereit og Matthías
Hemstock léku með henni í seinni
ferðinni.
Í haust kemur svo út plata eftir
hana sjálfa, Marble, sem hún vinnur
undir hljómsveitarnafninu LILJA,
og bera lögin nöfn þeirra borga sem
hún hefur sótt heim. „Ég er atvinnu-
maður í dag, já,“ segir Oddrún og
brosir kankvíslega. „Nóg að gera.
Senan hérna í Noregi er mjög opin
núna, líklegast sú tilraunakenndasta
á Norðurlöndum akkúrat núna.“
Mikið sé um spuna og stílaflökt, og
„hefðbundinn“ djass fari nánast með
veggjum í augnablikinu. Hún segir
þetta þó ekki alltaf hafa verið svona,
og þetta komi í bylgjum. Við kveðj-
umst loksins með kurt og pí og ég fæ
að líta rétt einu sinni á fjörðinn
fagra áður en útsendingu er slitið.
»Hún segir mér aðtildrögin hafi alltaf
verið mismunandi, en
ferðalögin hafi eðlilega
gert hana ríkari af
reynslunni, auk þess
sem hún leggur sig fram
í dag um að flétta tónlist
ólíkra landa saman við
sína eigin.
Oddrún Lilja Jóns-
dóttir er 28 ára gamall
djassgítarleikari og
hefur verið að gera það
gott í Noregi að undan-
förnu, hvar hún býr og
er uppalin.
Á forsíðunni Oddrún Lilja fram-
an á tímaritinu Jazznytt.
Víðförul Oddrún Lilja
Jónsdóttir býr og starfar í
Ósló og keyrir farsælan feril.
Leikstjórinn Ein-
ar Egilsson var
fenginn til að
taka upp hluta af
myndbandi við
„Bigger Love“,
lag bandaríska
tónlistarmanns-
ins John Legend,
sem framleitt var
með hraði. Lagið
er það nýjasta úr smiðju Legend og
segir í tilkynningu að leikstjórar
víða að úr heiminum hafi verið
valdir til að kvikmynda fólk heima
fyrir á tímum COVID-19-faraldurs-
ins. Var myndefni frá yfir 20 lönd-
um nýtt í myndbandið og ætlunin
að sýna samstöðu og breiða út boð-
skap ástar og umhyggju.
Einar átti í samstarfi við Nova á
Íslandi við gerð síns hluta mynd-
bandsins og var myndabandið svo
frumsýnt í þættinum The Voice í
Bandaríkjunum 12. maí og má nú
finna það á YouTube.
Gerði hluta mynd-
bands Legend
John Legend
Ragnar Hólm
opnar málverka-
sýninguna KÓF í
dag kl. 14 í
Deiglunni á Ak-
ureyri. Ragnar
sýnir olíumál-
verk sem hann
málaði á síðustu
mánuðum og
segir í tilkynn-
ingu að þau end-
urspegli undar-
lega tíma einangrunar og ótta.
„Í kófinu ægir saman sterkum
kenndum. Þar blandast saman inni-
lokun og ótti, einangrun og ofstæki,
ástúð og ofbeldi. Að vera lokaður
frá umheiminum langtímum saman,
aleinn eða með sínum nánustu. Sést
þá úr hverju mannskepnan er gerð
og hvað býr inn við beinið? Hversu
varnarlaust getur mannkynið orð-
ið? Málverkin eru þannig eins kon-
ar óreiðukennd tilraun um mann-
inn,“ segir í tilkynningu.
Kristján Edelstein, Pálmi Gunn-
arsson og Phil Doyle munu leika
djassaðan blús við opnunina í dag
og verður sýningin aðeins opin í
dag og á morgun frá kl. 14 til 17.
Innilokun á striga
Hluti málverks eftir
Ragnar Hólm