Morgunblaðið - 16.05.2020, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Málþingið „Samtal um konur, hand-
verk og frjálsa myndlist“ verður
haldið á mánudagsmorgun, 18. maí,
á Kjarvalsstöðum og hefst stundvís-
lega kl. 9. Málþingið er haldið í
tengslum við sýninguna Lífsfletir,
yfirlitssýningu á verkum Ásgerðar
Búadóttur sem var brautryðjandi á
sviði listvefnaðar á Íslandi.
Þátttakendur munu varpa ljósi á
notkun textíls í myndlist á Íslandi
og þróun hans í áranna rás, áhrifa-
valda og þann kraft sem varð til
meðal textíllistakvenna á áttunda
áratug síðustu aldar. Málþinginu
mun ljúka með umræðum.
Vegna fjöldatakmarkana er
nauðsynlegt að skrá sig á vef lista-
safns Reykjavíkur.
Þátttakendur eru Aldís Arnar-
dóttir, listfræðingur og sýningar-
stjóri; Ragnheiður Björk Þórs-
dóttir, veflistamaður, kennari og
sérfræðingur á sviði vefnaðar hjá
Textílmiðstöð Íslands; og Þorbjörg
Þórðardóttir textíllistarmaður.
Viðburðinum verður streymt á vef
safnsins.
Málþing á Kjarvalsstöðum á mánudag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frummælandi Aldís Arnardóttir við eitt
verka Ásgerðar Búadóttur á sýningunni.
Í sýningarrýminu
Harbinger á
Freyjugötu 1 hef-
ur verið opnuð
einkasýning Geir-
þrúðar Finn-
bogadóttur
Hjörvar. Sýn-
ingin nefnist
Retail, eða Smá-
sala, og er opin á
föstudögum og
laugardögum kl. 14 til 17.
Á sýningunni vinnur Geirþrúður
með fagurfræði verslunargeirans og
skoðar viðtekin gildi neyslu-
samfélagsins. Með glettni að vopni
og vitneskjuna um að það er enginn
einn veruleiki rýnir hún í „samtíma--
matrixið“ sem umlykur okkur. Hún
nálgast viðfangsefnið með frum-
spekilegum vangaveltum og bæði á
hugmyndafræðilegum og efnis-
legum forsendum, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Harbinger.
Smásala er áframhald fyrri sýninga
Geirþrúðar þar sem hún vinnur með
hugmyndir um „matrix“ í merking-
unni „hvers kyns kerfi sem skil-
greina útlínur veruleika“.
Smásala Geirþrúðar í Harbinger
Geirþrúður Finn-
bogadóttir Hjörvar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Untold Stories, fyrsta breiðskífa tónlistarmannsins
Birgis Steins Stefánssonar, sem notar fornafnið
sem listamannsnafn, kom út 8. maí sl. á vegum
Öldu Music. Platan var tekin upp í Aeronaut Stud-
ios af Arnari Guðjónssyni sem rekur hljóðverið og
eru öll lög og textar hennar samin af Birgi og
Andra Þór Jónssyni. Platan hefur að geyma safn
allra þeirra laga sem Birgir hefur þegar gefið út
auk nýrra laga og hefur hún verið í vinnslu frá því í
árslok 2018, „alltof lengi“ eins og Birgir orðar það.
„Það er meira að segja lag á plötunni sem kom út
fyrir þann tíma þannig að hún er búin að vera mjög
lengi í vinnslu,“ segir hann.
Birgir segir allt aðra tilfinningu að gefa út breið-
skífu en eitt og eitt lag og mjög skemmtilegt. En
hver er maðurinn? „Það er eðlilegt að þú vitir ekk-
ert hver ég er,“ svarar Birgir kíminn, „en ég er bú-
inn að vera að gefa út tónlist frá árinu 2016 undir
eigin nafni og það sem búið er að koma út nú þegar
er bara þessi litla EP-plata sem ég gerði 2016. Eftir
það hefur þetta bara verið lag eftir lag.“
Ekki frá föðurnum komið
Birgir segir ástæðuna fyrir því að hann byrjaði
að fikta við tónlist ekki þá sem margir halda, þ.e. að
faðir hans hafi smitað hann af tónlistarbakteríunni.
„Ég vissi ekki einu sinni að pabbi væri tónlistar-
maður fyrr en ég var að verða unglingur,“ segir
Birgir en faðir hans er söngvarinn landsfrægi Stef-
án Hilmarsson. „Allt í einu kviknaði áhugi hjá mér
fyrir því að læra á trommur og ég veit ekki hvað
varð til þess. Ég fékk í hendur plötu með rokksveit-
inni Muse og það var ást við fyrstu sýn. Ég bað um
trommusett og fékk í jólagjöf, fór inn í bílskúr og
var bara þar í tvö eða þrjú ár og lærði hvert einasta
Muse-lag á trommur. Það kenndi mér enginn neitt,
ég lærði bara allt sjálfur. Það var búið að reyna að
setja mig í píanótíma en það gekk ekkert, mér
fannst tónfræðin svo leiðinleg og ég hætti mjög
fljótlega í píanónáminu. Ég hafði miklu meiri áhuga
á að læra eftir eyranu.“
„Fattar enginn að
þetta er Íslendingur“
Birgir starfar alfarið við tónlist í dag, semur bæði
fyrir sjálfan sig og aðra. „Ég er með stúdíó og er að
pródúsera og taka upp og svona,“ útskýrir hann.
Hann hafi fram að þessu starfað náið með félaga
sínum Ragnari Má Jónssyni. „Við erum með stúdíó
saman og erum aðeins að byrja að semja fyrir aðra
og pródúsera.“
Lög Birgis á breiðskífunni eru poppuð, sungin á
ensku og í raun ekkert sem gefur til kynna að þar
fari Íslendingur. Birgir hlær að þessari athuga-
semd blaðamanns. „Það er ástæðan fyrir því að það
veit enginn hver ég er, það fattar enginn að þetta er
Íslendingur. Ég held að það sé málið. En tekur
maður þessu ekki bara sem hrósi? Ég held það,“
segir hann.
Birgir segir að sér hafi gengið hvað best á er-
lendum markaði, á Spotify. Lag hans „Can You
Feel It“ sé að nálgast tuttugu milljón spilanir og að
mestu leyti sé það spilað í Bandaríkjunum og á
Norðurlöndum. „Það er eins og eitthvað sé í þessari
tónlist sem virkar vel fyrir ákveðna erlenda mark-
aði sem er bara ánægjuefni,“ segir Birgir og fagnar
því hversu vinsælt fyrrnefnt lag er á Spotify.
Hvað fyrirmyndir varðar í tónlistinni nefnir
Birgir Muse og Coldplay og af innlendum tónlistar-
mönnum nefnir hann m.a. föður sinn og Arnar Guð-
jónsson, liðsmann Warmland, sem sá um upptökur
á plötunni.
Breyting til hins betra
Í tilkynningu frá Öldu Music segir um plötuna að
Birgir fari í lögum hennar yfir persónulegar sögur
og lífsreynslu. Birgir segir textana í einfaldari
kantinum og að í fyrstu lögunum séu þeir meira
skáldskapur. Það breytist þegar líða taki á plötuna.
„Ég samdi lag sem heitir „Letting Go“ sem var svo-
lítið persónulegt, ég fór djúpt ofan í mína persónu-
legu skúffu og fann hvað mig langaði að segja um
eitthvað sem ég hefði lent í. Eftir það lag má segja
að opnast hafi allar flóðgáttir og ég fór að semja
meira um sjálfan mig og fannst það bara fínt en þó
erfitt til að byrja með,“ segir Birgir.
Eftir því sem lögunum fjölgaði varð þessi frá-
sögn skemmtilegri og segir Birgir að þeir sem
þekki hann best átti sig eflaust á því um hvað hann
sé að syngja. „Ég er ánægður með að hafa tekið
þessa ákvörðun, að fara að semja meira um sjálfan
mig,“ segir hann að lokum.
Opnar flóðgáttir
Tónlistarmaðurinn Birgir gefur út sína fyrstu breiðskífu Eitt laganna
nálgast tuttugu milljónir spilana á Spotify Persónulegir textar á ensku
Ljósmynd/Vignir Daði
Persónulegt Birgir segist ánægður með að hafa tekið þá ákvörðun að semja persónulegri texta.
Listaþonið STAF/ÐSETNING
nefnist sýning Hörpu Daggar
Kjartansdóttur og Brynjars Helga-
sonar sem opnuð verður í dag kl. 16
í sýningarrýminu Midpunkt í
Hamraborg í Kópavogi og er hún
sú fyrsta sem haldin er eftir lokun
vegna samkomubanns.
Harpa og Brynjar eru ólíkir lista-
menn en eiga í samtali í gegnum
verk sín í rýminu, að því er fram
kemur í tilkynningu og er þetta
jafnframt fyrsta listaþonið sem fer
fram í Midpunkt. Leggja þau upp í
listaþon í einum þætti þar sem á sér
stað væntanlegur hittingur svokall-
aðra listhluta, sem þau hvort
tveggja leggja til úr sínu safni, seg-
ir þar og að í kapphlaupi geti besti
hlauparinn aldrei tekið fram úr
þeim hægasta því sá sem er á eftir
þarf fyrst að komast að þeim punkti
þar sem sá sem er á undan hóf
hlaupið. Sá hægari haldi því ávallt
forskotinu.
Opnun í Midpunkt
Sinfóníuhljóm-
sveit Norður-
lands mun hljóð-
rita núna um
helgina kvik-
myndatónverk
eftir Grammy-
verðlaunahafann
Steve McLaugh-
lin og tónskáldið
Stefan Gregory
við kvikmynd
sem streymisveitan Netflix fram-
leiðir. Ekki má að svo stöddu segja
frá því hvaða kvikmynd það er en
upptökurnar eru hluti af kvik-
myndatónlistarverkefninu Sin-
foniaNord í Hofi á Akureyri.
Segir í tilkynningu að í sam-
komubanninu hafi um sextíu tón-
listarmenn, hljóðmenn og sviðs-
stjórar fengið aukavinnu við tvær
stórmyndir fyrir Netflix. Fram-
undan hjá sveitinni í sumar eru
pantanir fyrir tvær stórar Holly-
wood-myndir, alþjóðlega kántrí-
plötu, upptökur fyrir söngleik og
sjónvarpsþætti.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er
tónlistarstjóri Menningarfélags Ak-
ureyrar og framkvæmdastjóri Sin-
foniaNord.
Taka upp tónlist
við Netflix-myndir
Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson