Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 3. M A Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  121. tölublað  108. árgangur  SPENNANDI SUMAR FRAM UNDAN Á ÍSLANDI HUGUR OG METNAÐUR Í ÁRNESSÝSLU NÝTT ÍÞRÓTTAFÉLAG 14TIL BAKA FRÁ KÝPUR 40 Nýr e-up! Rafmagnið er á up!leið Tilboðsverð frá 3.090.000 kr. HEKLA · Laugavegi 170 · Sími 590 5000 · hekla.is/volkswagensalur Sigtryggur Sigtryggsson Baldur Arnarson Fordæmalausar aðstæður í ferða- þjónustu kalla á breytta hönnun svo- nefnds Landsímareits. Þetta er inntakið í minnisblaði sem Icelandair Group hefur sent Reykjavíkurborg, fyrir hönd Flug- leiðahótela og Lindarvatns. Án breytinga sé hætt við að reksturinn standi ekki undir sér. Ein viðamesta breytingin sem Lindarvatn vill gera er að 650 fer- metra skrifstofurými á 3. og 4. hæð næst NASA að Thorvaldsensstræti 2 verði breytt í hótelherbergi. En bent er á að markaður fyrir skrifstofu- rými í miðborginni sé að mettast og því sé ekki gurndvöllur fyrir því að innrétta skrifstofur í rýminu. Við Hörpu er annað lúxushótel í byggingu en vonir eru bundnar við að hótelin tvö muni laða efnaða ferðamenn til landsins. Á þeim verða alls á fimmta hundrað herbergi. Hægði á framleiðslunni Sveinn Björnsson, framkvæmda- stjóri og einn eigenda Íslenskra fast- eigna, segir kórónuveirufaraldurinn hafa tafið uppbyggingu Edition- lúxushótelsins við Hörpu. Faraldur- inn hafi þannig sett strik í reikning- inn við framleiðslu innréttinga og búnaðar í Evrópu. Á þessu stigi sé því erfitt að tímasetja hvenær hót- elið verður opnað. Endurskoða áformin  Aðstæður þykja kalla á breytingar á lúxushóteli við Alþingi  Veiran hefur tafið uppbyggingu lúxushótels við Hörpu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við Austurvöll Óskað er eftir því að hafa spa við hlið gamla Víkurgarðs. MLúxushótel »18, 20 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Icelandair mun bjóða út nýtt hlutafé að fjárhæð 22 til 29 milljarðar króna dagana 29. júní til 2. júlí. Tilgang- urinn er að tryggja rekstur félags- ins til frambúðar vegna áfalla sem það hefur orðið fyrir í kórónu- veirufaraldrinum. Hluthafar sam- þykktu hlutafjáraukninguna á fundi í gær. Áður þarf félagið að eyða óvissu um ýmis atriði. Stefnt er að því að ganga frá samningum við stjórnvöld um ábyrgðir á lánum, lánveitendur, leigusala, söluaðila, Boeing um Max-vélarnar og fleiri fyrir 15. júní. Úlfar Steindórsson, formaður stjórnar Icelandair, hefur fulla trú á að allir þessir samningar takist. Sér- staklega spurður um samninga við Boeing segir Úlfar að samningar um Max-vélarnar muni nást fyrir tilsett- an tíma, spurningin sé aðeins um það hvernig málinu verði lokað. „Ég veit þó að niðurstaðan verður góð fyrir félagið.“ „Ég er mjög bjartsýnn um það,“ segir Úlfar um árangur væntanlega hlutafjárútboðs. „Ég veit fyrir hvað félagið stendur og verðmæti sem í því eru. Ég hef fulla trú á því að þeg- ar þetta verður kynnt fyrir mögu- legum fjárfestum muni þeir sjá sömu mynd og ég er að horfa á.“ »2 Viss um góða samn- inga um Max-vélar  Hlutafé Icelandair boðið út í lok júní Húsbílaeigendur taka sumarið snemma til að geta nýtt góð- viðrisdagana. Nokkrir bílar voru á tjaldsvæðinu á Þingvöllum í gær. Ekki þurftu þeir að elta sólina því hún skein um allt land. Búist er við að Íslendingar ferðist innanlands í sumar og hafa ferðaþjónustufyrirtæki verið að búa sig undir það. Ríkis- stjórnin stuðlar að því með svokallaðri ferðagjöf, 5.000 króna ávísun sem nota má til að greiða fyrir veitingar, gistingu, bíla- leigubíla, ferðir og afþreyingu. Stefnt er að því að ferðagjöfin verði afhent í byrjun næsta mánaðar. »11 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Húsbílaeigendur taka útilegusumarið á Íslandi snemma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.