Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Óperudeild Söngskóla Sigurðar De-
metz sýnir óperuna Schauspieldir-
ektor eða Óperustjórann, eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart, í Tjarnar-
bíói á mánudaginn, 25. maí, kl. 18 og
20.30. Óperan er gamanleikur og
þar sem hlutverkaskipan býður ekki
upp á þann fjölda hlutverka sem
deildin þurfti á að halda var samin
leikgerð sem hentaði og hlutverkum
og tónlistaratriðum fjölgað, aríum
bætt við og þá að
mestu úr óperum
Mozarts en ein
eftir Rossini er í
uppfærslunni.
Óperan fjallar
um óperustjóra
sem vill gjarnan
vera óperulistinni
trúr en er neydd-
ur til að horfast í
augu við nýja
tíma, breytta
heimsmynd, og fjallar verkið um
hugarangur hans og þá oft á fremur
gamansaman hátt, eins og því er
lýst í tilkynningu. Þar segir einnig
að takmarkaður fjöldi gesta geti
mætt og því beðið um að óskir um
miða verði sendar á netfangið song-
skoli@songskoli.is.
Nemendur gátu ekki
stundað leikæfingar
Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri
Söngskóla Sigurðar Demetz, segir
að skólaslitum hafi verið frestað um
hálfan mánuð vegna COVID-19 og
þau verði því 5. júní næstkomandi.
„Við ákváðum, þó að æfingar hafi
ekki náð að vera eins – hvorki í
söngleikjasýningu sem við erum
með í júní né þessari óperusýningu
– að reyna að halda á hlutunum á lífi
meðan ástandið var eins og það var,
í gegnum netið með því að láta fólk
æfa sig heima og gefa því ýmsa hluti
í gegnum netið sem það gat þá unn-
ið með. Svo var farið í samtöl og
slíkt líka á netinu og þannig héldum
við æfingum lifandi en gátum ekki
stundað leikæfingar. Við erum að
reyna að hespa þær af á mjög stutt-
um tíma og það verður líka eitthvað
að gefa eftir, við einföldum báðar
sýningarnar til muna og höfum eins
einfaldar og hægt er að hafa þær en
okkur er mjög mikilvægt að nem-
endurnir fái þetta tækifæri til að
standa á sviði og spreyta sig,“ segir
Gunnar. Hann segir form sýning-
anna fyrir vikið mun einfaldara en
til stóð í upphafi en sem betur fer
hafi æfingar verið hafnar áður en
kom til samkomubanns.
Púsluspil
Hægt er að stunda söngtíma á
netinu með nútímatækni og segir
Gunnar mestu furðu hversu vel það
hafi gengið. „Það lætur fólki misvel
að kenna í gegnum netið en margir
hafa verið nokkuð sáttir við það.
Það veltur líka dálítið á því hvernig
báðir endar eru tæknilega séð, teng-
ingin báðum megin,“ segir hann og
að kennarar hafi staðið sig frábær-
lega í því að halda nemendum við
efnið og vera í sambandi við þá.
Umstangið hafi verið mikið en stöku
kennarar hafi þó kennt allan tímann
með því að virða reglur um fjölda og
fjarlægð milli fólks og með því að
sótthreinsa vel milli tíma.
Nemendurnir sem syngja munu
óperu Mozarts eru níu talsins og
segir Gunnar að uppfærslan sé mik-
il áskorun fyrir þá. „Einföldunin
gerir hlutina ekki mikið einfaldari
fyrir þau heldur gerir hún skipu-
lagningu einfaldari. Það er nánast
engin sviðsmynd og einfaldir bún-
ingar, lítið af leikmunum og þetta
gerir þau miklu berskjaldaðri þann-
ig að áskorunin er gríðarlega stór,“
segir Gunnar.
Söngleikurinn Kysstu mig
Kata tíu dögum seinna
„Venjulega höfum við lagt í ein-
hverja sviðsmyndagerð og haft um-
gjörðina skrautlegri en það er auð-
vitað mjög erfitt þegar tíminn er
svona stuttur og lítill möguleiki á að
komast inn í Tjarnarbíó, það er
mjög þéttsetið þannig að við erum í
raun að æfa þetta mjög lítið þar.
Þess vegna er þetta stór áskorun og
önnur sýning tíu dögum seinna hjá
okkur, söngleikurinn Kiss me Kate.
Við erum með einn sal í skóla-
húsnæðinu og hann er nánast not-
aður alla daga, frá klukkan fjögur til
um tíu eða ellefu á kvöldin, af því
verið er að æfa tvær sýningar. Svo
eru allir að fara í próf og allt á fullu
í lokatónleikum hjá kennurum og
nemendum. Þetta hefur verið ansi
mikið púsl,“ segir Gunnar og dæsir
yfir öllu saman.
Singspiel
Óperustjórinn er gamanópera og
skemmtileg fyrir skóla að setja upp
þar sem hægt er að leika sér tals-
vert með hana, að sögn Gunnars.
„Þetta er það sem við köllum
„Singspiel“ á þýsku, fjórar óperur
eftir Mozart eru hreint og klárt
singspiel. Þekktastar eru Brott-
námið úr kvennabúrinu og Töfra-
flautan þar sem eru töluð samtöl.
Þessi er þannig,“ útskýrir Gunnar.
„Við bjuggum til okkar útgáfu af
þessu þannig að óperan er dálítið
færð inn í nútímann og það á af-
skaplega vel við þessa óperu, hún er
í raun mjög sígild. Það er hægt að
leika sér mikið með formið,“ segir
hann. Öðrum óperum sé svo bland-
að inn í þessa gamanóperu sem var
með þeim fyrstu sem Mozart skrif-
aði.
Mikið hlegið á æfingum
Leikarinn og leikstjórinn Þor-
steinn Bachmann stýrir uppfærsl-
unni og segir Gunnar að þeir hafi
reynt að gefa fleiri nemendum tæki-
færi á að syngja með því að fjölga
aríum. Gunnar giskar á að upp-
færslan verði um 80 mínútur að
lengd og sýningar aðeins tvær, eins
og fyrr sagði. „Ég vona bara að
þetta verði skemmtilegt, það hefur
alla vega verið hlegið mikið á æfing-
um,“ segir hann og blaðamaður spyr
hvort Mozart sé ekki alltaf
skemmtilegur. „Jú, hann er alltaf
skemmtilegur, toppmaður,“ svarar
Gunnar kíminn, „aríurnar sem eru
skrifaðar fyrir stykkið eru mjög
skrautlegar, mikið flúr í þeim.“
Mikilvægt tækifæri fyrir nemendur
Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir Óperustjórann eftir Mozart í Tjarnarbíói Einfald-
ari umgjörð en vanalega og aríum og hlutverkum fjölgað Takmarkaður fjöldi gesta á sýningar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tilhlökkun Nemendurnir níu við óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sem flytja munu gamanóperu Mozarts, Óp-
erustjórann. Á myndina vantar leikstjóra uppfærslunnar, Þorstein Bachmann, en stóllinn er líklega frátekinn fyrir
hann. „Þetta er það sem við köllum „Singspiel“ á þýsku,“ segir Gunnar Guðbjörnsson skólastjóri um óperu Mozarts.
Gunnar
Guðbjörnsson
Sýningin Sóttqueen verður opnuð í
Ásmundarsal í dag kl. 17 og er hún á
vegum prentverkahópsins Postprent
sem sendi 24. mars síðastliðinn frá
sér eftirfarandi auglýsingu, að því er
fram kemur á Facebook:
„Á þessum FORDÆMALAUSU
tímum langar okkur hjá POST-
PRENT að sjá hvers konar list verð-
ur til á tímum sóttkvíar og samkomu-
banns. Sýnið okkur hvað þið eruð að
fást við með því að senda okkur
teikningu/ljósmynd/grafík sem við
birtum svo hérna á Instagram. Eina
reglan er að þetta tengist ástandinu
undanfarnar vikur á einhvern hátt.“
Segir í texta um sýninguna að á
annað hundrað verka hafi borist og
að á sýningunni megi sjá úrval
þeirra. Verkin spanni tveggja mán-
aða tímabil, séu fjölbreytt og spegli
hvert á sinn hátt sálarástand og
stemningu síðustu missera. „Sýn-
ingin er sniðin eftir þeim takmörk-
unum sem við þurftum að innleiða í
kjölfar ástandsins, þar sem tveggja
metra reglan er í hávegum höfð og
mikið lagt upp úr því að tryggja ör-
yggi sýningargesta,“ segir jafnframt
um sýninguna og að þar fari for-
dæmalaus sýning um fordæmalausa
tíma.
Fordæmalaus sýning
um fordæmalausa tíma
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sýningarstaður Í Ásmundarsal verður í dag opnuð sýningin Sóttqueen.