Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 16
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í námskeiðinu Nýsköpun og stofn-
un fyrirtækja fá nemendur við Há-
skólann í Reykjavík að sýna hvað í
þeim býr. Þar fá þeir aðeins u.þ.b.
þrjár vikur til að finna og þróa við-
skiptahugmynd og gera viðskipta-
áætlun. Í ár tóku um 560 nemendur
þátt í áfanganum og mynduðu sam-
tals 112 teymi sem skiluðu inn mjög
fjölbreyttum tillögum. Af öllum
verkefnum þótti hugbúnaðurinn
Healie bera af, en um er að ræða
forrit sem hjálpar við greiningu og
meðferð langvinnra sjúkdóma með
því að safna á einn stað upplýs-
ingum um meðferð, einkenni og lífs-
stíl sjúklingsins.
Vaktar áhrifaþætti og líðan
„Healie er ætlað að hjálpa fólki
með hvers kyns langvinna sjúk-
dóma en í verkefninu þurftum við
að afmarka okkur við einn tiltekinn
sjúkdóm og varð sjálfsofnæmis-
sjúkdómurinn Hashimoto‘s fyrir
valinu,“ útskýrir sálfræðineminn
Anný Hermannsdóttir, en auk
hennar var hópurinn skipaður
Ragnheiði Lilju Guðmundsdóttur
lögfræðinema, Ásgeiri Inga Valtýs-
syni viðskiptafræðinema, Andra
Snæ Sævarssyni verkfræðinema og
Arnari Ólafssyni, sem leggur stund
á nám í tölvunarfræði.
Hashimoto‘s er erfiður sjúkdóm-
ur við að eiga og segir Anný að
sjúkdómsgreiningin sé einstaklega
flókin. „Þessi sjúkdómur ræðst á
skjaldkirtilinn, raskar starfsemi
hans og er ein algengasta ástæðan
fyrir vanvirkum skjaldkirtli. Þá
veldur hann einkennum víða um lík-
amann og hefur sjúkdómurinn verið
tengdur við ótal mismunandi ein-
kenni, s.s. óþol gegn vissum matar-
tegundum, svefntruflanir og jafnvel
örmögnun.“
Með Healie getur sjúklingur
skráð inn alls kyns upplýsingar um
þætti á borð við mataræði, svefn,
hreyfingu og líðan frá degi til dags.
Þá má tengja forritið við snjallúr
sem vaktar lífsmörk á borð við lík-
amshita, hjartslátt og blóðþrýsting
til að gera enn nákvæmari mynd af
líkamlegu ástandi einstaklingsins.
Gæti hjálpað mörgum
Þessar upplýsingar nýtast sér-
fræðingi eða sjúklingi við að skilja
sjúkdóminn betur, koma auga á
hvað dregur úr eða magnar upp
einkenni, og gera markvissari
breytingar á lyfjameðferð. Segir
Anný að í framtíðinni mætti jafnvel
nýta gervigreind til að hjálpa til við
greiningu upplýsinganna og koma
auga á orsakasamhengi. „Þetta er
Auðveldar glímuna við sjúkdóma
Andri Snær
Sævarsson
Anný
Hermannsdóttir
Arnar
Ólafsson
Ásgeir Ingi
Valtýsson
Ragnheiður Lilja
Guðmundsdóttir
Vinningsteymi í nýsköpunaráfanga HR þróaði lausn sem hjálpar við greiningu og meðferð lang-
vinnra sjúkdóma á borð við Hashimoto‘s Engin sambærileg lausn virðist til á markaðnum í dag
AFP
Áskorun Healie gæti nýst við ýmiss konar kvillum og mögulega aukið lífsgæði margra milljóna sjúklinga. „Áætlað er að bara í vestrænum löndum glími um
5-7% íbúa við skjaldkirtilsvandamál, en um 150 milljón manns á heimsvísu,“ segir Anný. Myndin sýnir lækna að störfum á gjörgæsludeild í Brasilíu.
Skrá Lyfjadagbók bætir yfirsýn.
erfiður sjúkdómur að halda utan
um og margt sem sjúklingnum
sjálfum gæti yfirsést. Einn með-
limur hópsins er með Hashimoto‘s
og þarf í dag að nota fimm mismun-
andi snjallforrit til að hjálpa við að
skrásetja og vakta margt af því sem
hefur áhrif á heilsu hennar og
líðan.“
Anný segir frumskoðun benda til
að Healie geti gagnast fjölda fólks
með langvinna sjúkdóma og sér
hópurinn fyrir sér að tengja forritið
við sjúkraskrár til að stuðla að enn
betri upplýsingagjöf og læknis-
meðferð og greina fyrir heildrænni
sýn á samspil lífstílsatriða og sjúk-
dóma. „Áætlað er að bara í vest-
rænum löndum glími um 5-7% íbúa
við skjaldkirtilsvandamál, en um
150 milljón manns á heimsvísu.“
Vilja fara alla leið
Hópurinn á bak við Healie er að
vonum brattur og ánægður með ár-
angurinn. Viðskiptahugmyndin mun
keppa fyrir hönd HR á alþjóðlegri
nemendakeppni sem haldin verður í
Kína en Anný segir að í ljósi að-
stæðna sé alls óvíst hvort fulltrúar
háskólans mæti á svæðið. „Við er-
um mjög áhugasöm um að þróa
hugmyndina lengra og væri gaman
að funda með áhugaverðum fjár-
festum og mögulegum samstarfs-
aðilum um framhaldið,“ segir Anný.
„Engin sambærileg lausn er til á
markaðnum í dag, og við höfum
komið auga á gott tækifæri sem
gaman væri að nýta.“
Gagn Healie getur haldið utan um
bæði andleg og líkamleg einkenni.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum