Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 16
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í námskeiðinu Nýsköpun og stofn- un fyrirtækja fá nemendur við Há- skólann í Reykjavík að sýna hvað í þeim býr. Þar fá þeir aðeins u.þ.b. þrjár vikur til að finna og þróa við- skiptahugmynd og gera viðskipta- áætlun. Í ár tóku um 560 nemendur þátt í áfanganum og mynduðu sam- tals 112 teymi sem skiluðu inn mjög fjölbreyttum tillögum. Af öllum verkefnum þótti hugbúnaðurinn Healie bera af, en um er að ræða forrit sem hjálpar við greiningu og meðferð langvinnra sjúkdóma með því að safna á einn stað upplýs- ingum um meðferð, einkenni og lífs- stíl sjúklingsins. Vaktar áhrifaþætti og líðan „Healie er ætlað að hjálpa fólki með hvers kyns langvinna sjúk- dóma en í verkefninu þurftum við að afmarka okkur við einn tiltekinn sjúkdóm og varð sjálfsofnæmis- sjúkdómurinn Hashimoto‘s fyrir valinu,“ útskýrir sálfræðineminn Anný Hermannsdóttir, en auk hennar var hópurinn skipaður Ragnheiði Lilju Guðmundsdóttur lögfræðinema, Ásgeiri Inga Valtýs- syni viðskiptafræðinema, Andra Snæ Sævarssyni verkfræðinema og Arnari Ólafssyni, sem leggur stund á nám í tölvunarfræði. Hashimoto‘s er erfiður sjúkdóm- ur við að eiga og segir Anný að sjúkdómsgreiningin sé einstaklega flókin. „Þessi sjúkdómur ræðst á skjaldkirtilinn, raskar starfsemi hans og er ein algengasta ástæðan fyrir vanvirkum skjaldkirtli. Þá veldur hann einkennum víða um lík- amann og hefur sjúkdómurinn verið tengdur við ótal mismunandi ein- kenni, s.s. óþol gegn vissum matar- tegundum, svefntruflanir og jafnvel örmögnun.“ Með Healie getur sjúklingur skráð inn alls kyns upplýsingar um þætti á borð við mataræði, svefn, hreyfingu og líðan frá degi til dags. Þá má tengja forritið við snjallúr sem vaktar lífsmörk á borð við lík- amshita, hjartslátt og blóðþrýsting til að gera enn nákvæmari mynd af líkamlegu ástandi einstaklingsins. Gæti hjálpað mörgum Þessar upplýsingar nýtast sér- fræðingi eða sjúklingi við að skilja sjúkdóminn betur, koma auga á hvað dregur úr eða magnar upp einkenni, og gera markvissari breytingar á lyfjameðferð. Segir Anný að í framtíðinni mætti jafnvel nýta gervigreind til að hjálpa til við greiningu upplýsinganna og koma auga á orsakasamhengi. „Þetta er Auðveldar glímuna við sjúkdóma Andri Snær Sævarsson Anný Hermannsdóttir Arnar Ólafsson Ásgeir Ingi Valtýsson Ragnheiður Lilja Guðmundsdóttir  Vinningsteymi í nýsköpunaráfanga HR þróaði lausn sem hjálpar við greiningu og meðferð lang- vinnra sjúkdóma á borð við Hashimoto‘s  Engin sambærileg lausn virðist til á markaðnum í dag AFP Áskorun Healie gæti nýst við ýmiss konar kvillum og mögulega aukið lífsgæði margra milljóna sjúklinga. „Áætlað er að bara í vestrænum löndum glími um 5-7% íbúa við skjaldkirtilsvandamál, en um 150 milljón manns á heimsvísu,“ segir Anný. Myndin sýnir lækna að störfum á gjörgæsludeild í Brasilíu. Skrá Lyfjadagbók bætir yfirsýn. erfiður sjúkdómur að halda utan um og margt sem sjúklingnum sjálfum gæti yfirsést. Einn með- limur hópsins er með Hashimoto‘s og þarf í dag að nota fimm mismun- andi snjallforrit til að hjálpa við að skrásetja og vakta margt af því sem hefur áhrif á heilsu hennar og líðan.“ Anný segir frumskoðun benda til að Healie geti gagnast fjölda fólks með langvinna sjúkdóma og sér hópurinn fyrir sér að tengja forritið við sjúkraskrár til að stuðla að enn betri upplýsingagjöf og læknis- meðferð og greina fyrir heildrænni sýn á samspil lífstílsatriða og sjúk- dóma. „Áætlað er að bara í vest- rænum löndum glími um 5-7% íbúa við skjaldkirtilsvandamál, en um 150 milljón manns á heimsvísu.“ Vilja fara alla leið Hópurinn á bak við Healie er að vonum brattur og ánægður með ár- angurinn. Viðskiptahugmyndin mun keppa fyrir hönd HR á alþjóðlegri nemendakeppni sem haldin verður í Kína en Anný segir að í ljósi að- stæðna sé alls óvíst hvort fulltrúar háskólans mæti á svæðið. „Við er- um mjög áhugasöm um að þróa hugmyndina lengra og væri gaman að funda með áhugaverðum fjár- festum og mögulegum samstarfs- aðilum um framhaldið,“ segir Anný. „Engin sambærileg lausn er til á markaðnum í dag, og við höfum komið auga á gott tækifæri sem gaman væri að nýta.“ Gagn Healie getur haldið utan um bæði andleg og líkamleg einkenni. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.