Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
✝ BjarnfríðurOddný Valdi-
marsdóttir fæddist
29. maí 1928 á
Bíldudal í Arnar-
firði. Hún lést á
sjúkradeildinni á
Húsavík 9. maí
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Valdimar
Guðbjartsson, f.
1895, d. 1972, og
Bjarnfríður Oddný Tóm-
asdóttir, f. 1890, d. 1928. Fóstur-
foreldrar Bjarnfríðar voru Guð-
mundur Arason, f. 1888, d. 1966,
og Þorbjörg Guðmundsdóttir, f.
1887, d. 1953. Bjarnfríður taldi
sig eiga nítján systkini, þ.e. fjög-
ur alsystkini, tíu fóstursystkini
og fimm hálfsystkini.
Bjarnfríður giftist Hauki
Aðalgeirssyni, f. 13. september
1926, d. 31. desember 2017. Syn-
ir þeirra eru: 1) Örn Arnar, f.
17. apríl 1946, kvæntur Þóru
Ottósdóttur, f. 27. maí 1951, og
eiga þau einn son
og þrjú barnabörn.
2) Ellert Aðalgeir,
f. 1. mars 1957,
kvæntur Kristínu
Arnfríði Sigurðar-
dóttur Hammer, f.
9. maí 1958, eiga
þau þrjú börn, sex
barnabörn og eitt
barnabarnabarn.
3) Birgir Valdi-
mar, f. 10. nóvember 1962,
kvæntur Steinunni Ósk Stef-
ánsdóttur, f. 17. október 1964,
eiga þau þrjú börn og fimm
barnabörn.
Útför Bjarnfríðar fer fram
frá Reykjahlíðarkirkju í dag,
23. maí 2020, klukkan 15.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu
geta aðeins nánustu aðstand-
endur verið viðstaddir útförina.
Streymt verður frá athöfninni.
Stytt slóð á streymið: https://
n9.cl/3p32w. Slóðina má nálg-
ast á www.mbl.is/andlat.
Amma, elsku amma. Að setj-
ast niður og ætla að skrifa
nokkur vel valin orð til þín hlýj-
ar mér um hjartað og ég get
ekki varist því að brosa, því
þannig var lífið með þér og afa.
Eflaust hefur þú einhvern tím-
ann þurft að byrsta þig við mig
en það er allt löngu gleymt. Það
sem lifir er gleðin og hláturinn,
því þú gast alltaf hlegið og þá
líklega mest að sjálfri þér. Ég
ólst upp við það og hef aldrei
þekkt annað en að hafa ömmu
Fríðu í lífinu, að kíkja í kaffi og
spjalla um allt og ekkert. Sem
krakki að hlaupa yfir túnin í
hlýjuna hjá afa og ömmu var
ómetanlegt. Að liggja á bekkn-
um hans afa og hlusta á gamlar
sögur á kassettum, byggja
spilakastala með stóru spilunum
í stofunni, leggja kapal í horn-
inu við eldhúsborðið, læðast í
brúnu krúsina með bakkelsinu
og maula súkkulaði sem afi
stakk að mér. Amma á morg-
unsloppnum á sunnudegi og afi
að leggja kapal, líklega svindla
smá, á meðan þau söngluðu við
ástarlag í útvarpinu, þetta er
minning sem ég á af góðri stund
í ömmu- og afahúsi.
Amma, þú varst ótrúleg kona,
glæsileg kona, dugleg, sterk,
hreinskilin, húmoristi, partíp-
inni, vinkona og fyrirmynd í
einu og öllu. Elsku amma, þú
varst mér svo kær og ég átti
alltaf öruggt skjól hjá þér. Góða
ferð í sumarlandið, ég bið að
heilsa afa og ég mun alltaf
geyma ykkur í hjarta mínu.
Aðalbjörg.
Bjarnfríður Oddný
Valdimarsdóttir
✝ Hjónin JóninnaMargrét Pét-
ursdóttir og Reynir
Mar Guðmundsson
létust á Landspít-
alanum í Fossvogi
hinn 23. mars og 2.
apríl síðastliðinn.
Jóninna fæddist
hinn 4. júní 1948 í
Hafnarfirði. For-
eldrar hennar voru
Pétur Pétursson,
sjómaður frá Tjörn á Skaga, f.
26. maí 1906, d. 18. júní 1990, og
Sigríður Hansína Hannesdóttir
frá Keflavík, f. 2. september
1924, d. 4. maí 2015. Hún bjó í
foreldrahúsum í Hafnarfirði og
síðar í Kópavogi þar til hún fór í
húsmæðraskólann á Staðarfelli.
Eftirlifandi systkini Jóninnu eru
Vilhjálmur Björn Hannes Roe, f.
8. des. 1943, Guðmundur, f. 10.
nóvember 1949, og Guðrún
Maríanna, f. 11. júní 1953.
Reynir var frá Geirshlíð í
Flókadal. Foreldrar hans voru
Guðmundur Bergsson frá Lundi
í Stíflu, Skagafirði, síðar bóndi í
Guðný, f. 31. mars 1947, Svan-
fríður Kristín, f. 24. júlí 1951,
Lovísa, f. 15. des. 1951, Bergur
Geir, f. 18. júlí 1954, Birna, f. 7.
maí 1956, Pétur Benedikt, f. 10.
janúar 1959, Erna Björk, f. 27.
júlí 1960, og Guðni Kristinn, f.
12. des. 1967.
Synir Ninnu og Reynis eru: 1)
Pétur, f. 10. febrúar 1967,
kvæntur Áslaugu Einarsdóttur.
2) Jón Vilberg, f. 28. janúar
1971, sambýliskona hans er
Guðný Elísabet Ísaksdóttir. 3)
Þröstur, f. 23. nóvember 1975.
Ninna og Reynir fluttu til
Hveragerðis árið 1974 og hóf
Reynir þá störf hjá Kristjáni
Jónssyni við rútuakstur og við-
gerðir en Ninna fór fljótlega að
vinna hjá Kjörís sem Reynir
gerði líka nokkru síðar. Reynir
starfaði alltaf í tengslum við bif-
reiðir, bæði við akstur og við-
gerðir. Ninna var í vinnu hjá
Kjörís í nokkur ár en síðustu 30
starfsárin var hún hjá Dvalar-
heimilinu Ási.
Útför þeirra fór fram hinn 15.
apríl 2020.
Hvammi, Ölfusi, f. 2. júní 1915,
d. 26. júní 2000, og Ljótunn
Jónsdóttir, saumakona frá
Geirshlíð í Flókadal, Borg-
arfirði, f. 16. apríl 1914, d. 7.
september 2008. Hann flutti
ungur með móður sinni og eldri
bróður, Pálma Jónssyni (sam-
mæðra), f. 8. október 1938, til
Reykjavíkur þar sem hann ólst
upp í Vesturbænum. Hann lærði
bifvélavirkjun og vann hjá Ræsi,
síðar vann hann einnig hjá Vest-
fjarðaleið. Eftirlifandi systkini
Reynis eru (samfeðra) Halldór
Ómar, f. 28. apríl 1945, Lovísa
Elsku mamma og pabbi.
Mikið er ótrúlega erfitt að
skrifa þessi orð. Ég bara hrein-
lega trúi því varla ennþá að þið
séuð farin og ég geti ekki komið
í heimsókn og tekið utan um
ykkur. Sest niður, fengið kaffi
og rætt málin. Mig langar til að
birta hérna orðin sem voru lesin
við útförina ykkar, þau lýsa ykk-
ur og ykkar lífshlaupi svo vel.
Fyrstu árin bjuggu mamma
og pabbi í íbúð við Holtsgötuna í
Vesturbæ Reykjavíkur. Þau
giftu sig um jólin 1967. Áður en
þau fluttu til Hveragerðis starf-
aði mamma við afgreiðslu í
verslun í Kópavogi þar sem for-
eldrar hennar bjuggu. Pabbi
lærði bifvélavirkjun hjá Ræsi
sem var þá umboðsaðili Merce-
des Benz á Íslandi. Í einhver ár
starfaði hann síðan hjá Vest-
fjarðaleið en fékk síðan vinnu
hjá Kristjáni Jónssyni í Hvera-
gerði þar sem hann sá um við-
gerðir og akstur á rútum, hann
flutti sig síðan yfir í næsta hús
og fór að vinna fyrir Kjörís þar
sem hann var verkstæðisfor-
maður. Í gegnum árin starfaði
pabbi við margt en þó alltaf
tengt bílum. Hann rak verk-
stæði, keyrði rútur og vörubíla
og vann hjá Frumherja við bif-
reiðaskoðun.
Mamma fór fljótlega að
vinna í Kjörís og starfaði þar í
mörg ár. Hún fór síðar að vinna
hjá Dvalarheimilinu Ási og
vann þar síðustu 30 árin áður
en hún lét af störfum vegna
aldurs. Þó að mamma hafi
starfað lengst af hjá þessum
góðu fyrirtækjum lét hún það
ekki nægja, enda alltaf til í að
prófa allt. Hún tók meðal ann-
ars rútupróf þegar hún var
ófrísk að Þresti, hún keyrði
leigubíl og rak Shell-skálann
ásamt Reyni sínum um tíma.
Mamma var alltaf hress og kát,
hún var mikill vinur og mátti
ekkert aumt sjá. Hún var alltaf
tilbúin að hjálpa öðrum og
standa við bakið á þeim sem
þurftu.
Mamma var mikill meistara-
kokkur og eldaði besta mat í
heimi. Enda gekk hún í hús-
mæðraskólann á Staðarfelli á
sínum yngri árum. Þessi
menntun hennar frá Staðarfelli
kom sér vel í öllum þeim störf-
um sem hún tók sér fyrir
hendur í gegnum árin. Hún
prjónaði líka mikið; peysur,
húfur, sokkar og vettlingar
hafa gengið barna á milli innan
sem utan fjölskyldunnar árum
saman. Mamma hafði alla tíð
mikinn áhuga á andlegum mál-
efnum en það var ekki fyrr en
síðari ár að hún fór að sinna
því að einhverju ráði. Hún
ákvað að sækja sér menntun í
þessum fræðum hjá Sálarrann-
sóknarfélagi Íslands, sem hún
hafði mikið gaman af.
Mamma og pabbi voru ein-
stök hjón, þau áttu marga og
góða vini sem minnast þeirra
með hlýju.
Ég kveð þau með ást, sökn-
uði og hlýju. Þakka fyrir árin
sem ég fékk að hafa þau hjá
mér og minningarnar sem þau
hafa gefið mér. Þótt það sé
erfitt að sakna og tárin
streymi bíð ég eftir þeim degi
þar sem á undan tárunum
kemur bros.
Með kærri kveðju, elsku
mamma og pabbi.
Við sjáumst í Sumarlandinu.
Meira: mbl.is/andlat
Ykkar
Pétur.
Jóninna Margrét Pétursdóttir
og Reynir Mar Guðmundsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Elskulegur eiginmaður minn, tengdasonur,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN MATTHÍAS KJARTANSSON
frá Þórisholti,
Lómasölum 12, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
14. maí. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju 25. maí kl. 13.
Einnig verður streymað á Facebooksíðu Kristins.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á sjóð Krabbameinsdeildar 11-EG Lsp.
Guðrún Helgadóttir
Sigríður Skúladóttir
Steinar Þór Kristinsson Sigrún Stefánsdóttir
Sigríður Kristinsdóttir Halldór Bárðarson
Kristín Björg Kristinsdóttir David Hedin
afa- og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN RAGNA PÁLSDÓTTIR,
Lautasmára 1, Kópavogi,
sem lést laugardaginn 11. apríl á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 27. maí klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Gunnar Páll Guðbjörnsson
Björgvin Jens Guðbjörnsson Steinunn G. Jónsdóttir
Rafnar Þór Guðbjörnsson Guðrún Á. Eðvarðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI JÓN SIGURÐSSON
vélstjóri,
Miðtúni 5, Seyðisfirði,
lést á Fossahlíð Seyðisfirði
fimmtudaginn 14. maí.
Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju miðvikudaginn 27. maí
klukkan 14:00.
Pálína Haraldsdóttir
Haraldur Árnason Stefanía Stefánsdóttir
Mekkín Árnadóttir Páll Þórir Rúnarsson
Sverrir Haraldsson Fríða Björk Teitsdóttir
Stefán Haraldsson Ólöf Brynjólfsdóttir
Pálína Haraldsdóttir Halldór Hinriksson
Árni Jón Pálsson Ása Jacobsen
Elínborg Pálsdóttir Tomas Brattelid
barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍSABET ÁSTA DUNGAL,
lést á líknardeildinni í Kópavogi 17. maí.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 29. maí klukkan 13.
Gunnar Haukur Arnarson
Elísabet Arnardóttir Hjálmar Georg Theodórsson
Anna Berglind A. Dungal Victor Strange
Jón Örn Arnarson Margrét Helga Skúladóttir
og ömmubörn
Elskuleg amma okkar, langamma,
langalangamma, tengdamóðir og frænka,
GUÐRÚN STEFANÍA JÓHANNSDÓTTIR,
Bakkakoti í Meðallandi,
lést á Hrafnistu Nesvöllum í Reykjanesbæ
15. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 28. maí klukkan 13.
Brynjar Hólm Sigurðsson Anna María Sveinsdóttir
Guðrún Lilja Sigurðardóttir Víðir Pétursson
Hafliði Már Brynjarsson Arna Hlín Daníelsdóttir
Sigurður Hólm Brynjarsson
Daníel Hólm Hafliðason
Hugrún Anna Hafliðadóttir
Sigurður Vilhjálmsson
Jóhann Grétar Sigurðsson Gréta Sigfúsdóttir
Ástkær faðir, tengdafaðir og afi,
VILHJÁLMUR KNUDSEN
kvikmyndagerðarmaður,
Hellusundi 6a,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
14. maí. Sérstakar þakkir sendum við
starfsfólki B2 í Fossvogi fyrir góða umönnun.
Útför fer fram með nánustu aðstandendum.
Ósvaldur Knudsen Brynhildur Lilja Björnsdóttir
Elín Louise Knudsen Eiríkur Dór Jónsson
Vilhjálmur Louis Knudsen
Alexander Óðinn, Brynja Rán, Kristófer
Elísabet Unnur og Eva Þórunn
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar