Morgunblaðið - 23.05.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 23.05.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð BREKKA 34 - 9 fm 518.000 kr. Tilboðsverð STAPI - 14,98 fm 389.000 kr. Tilboðsverð NAUST - 14,44 fm 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það var mikið húllumhæ í kring- um upptökurnar og ég held að fólk hér bíði spennt eftir myndinni. Ég hef líka væntingar um að húsvískir aukaleikarar sjá- ist á hvíta tjald- inu,“ segir Krist- ján Þór Magnússon, sveitarstjóri í Norðurþingi. Mikil eftir- vænting er vegna frumsýningar Eurovision- myndar leikar- ans Wills Ferr- ell. Myndin nefnist Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga og verður frumsýnd á streymisveitunni Netflix 26. júní næstkomandi. Tökur á myndinni fóru að stórum hluta fram hér á landi síðla árs í fyrra. Meðal töku- staða var Húsavík og segir sveitar- stjórinn að hann bindi vonir við að það skili sér í auknum áhuga ferða- manna á heimsóknum þangað í framtíðinni. „Ég er auðvitað ekki búinn að sjá hversu stórt hlutverk bærinn leikur í myndinni en miðað við upp- leggið verður það töluvert. Við munum klárlega vinna með það dæmi þegar ferðaþjónustan kemst aftur í gang. Það munu tugir millj- óna sjá þessa mynd um leið og hún kemur út svo þetta verður gríðar- leg kynning á bænum,“ segir Krist- ján, sem kveðst telja að Húsavík muni kallast Húsavík í myndinni. Kristján segir að vonir standi til að hægt verði að sýna Húsvík- ingum og nærsveitarfólki Euro- vision-myndina á stóru tjaldi til að fagna þessum áfanga. „Við eigum í samtölum við framleiðslufyrirtækið True North um það hvort við get- um verið með einhverja sýningu opinberlega. Þetta var meðal ann- ars rætt á sveitarstjórnarfundi í vikunni og ákveðið að kanna hvort hægt væri að koma myndinni fyrir í bílabíói í sumar. Það er í skoðun og við munum væntanlega fá svör um það um mánaðamótin hvort og hvenær það væri hægt.“ Rachel McAdams leikur aðal- hlutverkið á móti Ferrell. Þau leika Lars Ericssong og Sigrit Ericks- dottir, sem keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision. Pierce Brosnan leikur föður Ferrell, Erick Ericks- song. Þá fara þau Nína Dögg Fil- ippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Björn Hlynur Haraldsson með hlutverk auk fleiri Íslendinga. Tón- skáldið Atli Örvarsson samdi tón- list fyrir myndina. Kynning Myndband við lagið Volcano Man úr væntanlegri Eurovision-mynd vakti mikla athygli á dögunum. Húsavík geti heillað tugi milljóna áhorfenda  Spenna fyrir Eurovision-myndinni og bílabíó undirbúið Kristján Þór Magnússon Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Upptökur Will Ferrell á Húsavík. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við höfum verið að taka sýni hjá fólki sem er að koma í mótefnamæl- ingar til okkar. Það skýrir hvers vegna við erum enn að taka svona mörg sýni,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Vísar hann í máli sínu til mikils fjölda sýna undanfarna daga. Eins og áður hefur komið fram hafa ein- ungis tvö smit greinst síðustu tvær vikur. Þrátt fyrir það virðist ekkert lát á sýnatöku hér á landi. Rétt tæp- lega 600 sýni voru tekin í fyrradag, en fjöldi síðustu tveggja vikna hleyp- ur á þúsundum. Að sögn Kára á þetta sér eðlilegar skýringar. „Ég komst að þeirri niðurstöðu að það væri skynsamlegt að taka fólk í próf þegar það mætti í mótefnamælingu. Sömuleiðis höfum við verið að hjálpa til við að mæla til dæmis áhafnir og kvikmyndatöku- lið,“ segir hann og bætir við að mæl- ingarnar snúist ekki síst um að finna út hvort virk smit séu í samfélaginu. Spurður hvernig mótefnamæling- ar gangi segir Kári að nú hafi verið tekin ríflega 20 þúsund sýni. Þá muni fyrirtækið ekki taka mikið fleiri sýni. „Við förum fljótlega að snúa okkur að dagvinnunni og erum svo sem farin að gera það,“ segir Kári sem kveðst munu vera til staðar blossi veiran upp að nýju í samfélag- inu. „Við verðum auðvitað til staðar. Það hefur sýnt sig að opinbera kerfið þarf á aðstoð að halda.“ Áfram verða tekin sýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Að sögn Kjartans Hreins Njálssonar, aðstoðarmanns landlæknis, er sér- staklega mikilvægt að halda sýna- töku áfram á þessu stigi faraldurs- ins. Þannig sé jafnframt hægt að fylgjast grannt með stöðunni. „Við viljum halda áfram að fá upplýsingar um hvernig veiran er að berast í samfélaginu. Að verða værukær núna opnar á ákveðna hættu á að hún komist á flug í ákveðnum hópum. Það viljum við ekki sjá,“ segir Kjartan. Nú á mánudag tekur gildi ný aug- lýsing heilbrigðisráðherra um tak- mörkun á samkomum vegna far- sóttarinnar. Frá þeim degi verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50 nú. Þá verða líkams- ræktarstöðvar opnaðar auk þess sem krár og skemmtistaðir geta haft opið til kl. 23. Helmingur af leyfðum fjölda Með nýrri auglýsingu verður tveggja metra reglu einnig breytt nokkuð. Horft verður til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa aðstæður þar sem þeim er gert kleift að halda framangreind- um fjarlægðarmörkum. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leik- húsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift. Á líkamsræktarstöðvum verður, líkt og á sund- og baðstöðum, tak- mörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarks- fjölda samkvæmt starfsleyfi. Fjöldi sýna á sér eðlilegar skýringar  Einstaklingar sem koma í mótefnamælingu fara í sýnatöku  Mikilvægt að tryggja að veiran komist ekki aftur á flug  Frá mánudegi mega 200 manns koma saman  Tveggja metra reglu verður breytt Morgunblaðið/Styrmir Kári Íslensk erfðagreining „Við verðum auðvitað til staðar,“ segir Kári. 1.803 staðfest smit 0 ný smit 886 í sóttkví 20.194 lokið sóttkví 2 virk smit 1.791 náð bata 0 á sjúrahúsi 10 andlát 58.295 sýni tekin Vegagerðin hyggst í næsta mánuði færa vegslóða á um 700 metra kafla á Dómadalsleið. Umhverfisstofnun hefur fjallað um framkvæmdina og telur að hún hafi jákvæð áhrif á um- ferð um svæðið. Í Dómadal hækkar vatnsyfirborð Dómadalsvatns reglulega það mikið á vorin að vatn liggur yfir veginum fram eftir sumri og er vegurinn þá ófær. Með breytingum á veginum gæti hann opnast fyrr á vorin og þannig væri komið í veg fyrir akstur utan vega þegar vegarslóðinn er ill- fær eða ófær. Öll ummerki vegslóða sem verða aflagðir verða afmáð. Engu efni verður ekið að vegna framkvæmd- anna, en mögulega verða nokkrir steinar fjarlægðir með handafli. Gert er ráð fyrir 2-3 starfsmönnum og notast verður við vörubíla og veg- hefla. Í mati kemur fram að Umhverfis- stofnun telur mikilvægt að vegir inn- an Friðlandsins að Fjallabaki séu skipulagðir og hannaðir með það að markmiði að koma í veg fyrir að ekið sé utan vega og þeir séu vel merktir og vel við haldið. aij@mbl.is Lagfæra vegarslóð- ann um Dómadal Færsla vegar um Dómadal DÓ M AD AL URDómadals- vatn Lifrafjalla- vatn Landmanna- laugar/Fjalla - baksleið nyrðri Búrfell Fyrirhugað er að færa veginn á um 700 m kafl a Loftmyndir ehf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.