Morgunblaðið - 23.05.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 23.05.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020 Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 15. júní kl. 17:00 á Grand Hóteli, Reykjavík. Dagskrá er samkvæmt samþykktum sjóðsins. Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar rétt til setu á fundinum. Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs Kjörfundur fulltrúa launamanna í Birtu lífeyrissjóði, vegna stjórnarkjörs í lífeyrissjóðnum verður haldinn mánudaginn 8. júní kl. 17:30 í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík. Til fulltrúaráðs launamanna Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Salan í netverslun Nettó tífaldaðist þegar mest lét í miðjum heimsfar- aldri kórónuveiru. Er netsalan nú fimmfalt meiri en hún var áður en út- breiðslu og áhrifa veirunnar tók að gæta hér á landi. Þetta segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs hjá Samkaupum. „Þetta gekk mjög vel til að byrja með. Til að anna eftirspurn, sem var orðin tíföld, ákváðum við að bæta við okkur miðlægu vöruhúsi sem var ætlað að ráða við aukna eftirspurn,“ segir Gunnar og bætir við að sökum faraldursins hafi neyslumynstur Ís- lendinga breyst til frambúðar. „Fólk fór að færa sig yfir á netið í miðri bylgjunni og nú er þetta að ná jafn- vægi á nýjan leik. Við erum að horfa fram á fimmfalt meiri sölu en við gerðum áður,“ segir Gunnar. Breytt neyslumynstur fólks Eins og Morgunblaðið greindi frá tók Nettó í notkun 2.000 fermetra miðstöð í aprílmánuði. Miðstöðin, sem er í Klettagörðum, er notuð til að þjóna netverslun fyrirtækisins. Að sögn Gunnars var þetta gert til að auka flæði netverslunar sökum mik- illar ásóknar í miðjum faraldri. „Við ákváðum að bæta við okkur miðlægu vöruhúsi sem hafði það verkefni að ráða við aukna eftirspurn. Í dag erum við síðan að tína pantanir í gegnum vöruhús og verslanir,“ segir Gunnar. Spurður hvort merkja megi mun á kauphegðun viðskiptavina fyrir og eftir faraldur kveður Gunnar já við. „Fyrir faraldur var þetta fjölbreytt en pasta og niðursuðuvörur voru einna helst áberandi. Núna er allur gangur á þessu en þó er merkjanleg aukning í sölu á heilsu- og lífsstíls- vörum,“ segir Gunnar. Afgreiðsluferli verið lagað Í miðjum faraldri bar talsvert á kvörtunum sökum fyrirkomulags við endurgreiðslu hjá versluninni. Í stað peningagreiðslu var viðskiptavinum veitt inneign þegar tiltekin vara skil- aði sér ekki. Aðspurður segir Gunn- ar að búið sé að breyta umræddu ferli. „Hér áður veittum við inneign fyrir vörum sem ekki höfðu skilað sér. Fólki stóð þó einnig til boða að fá inneignina millifærða aftur inn á kort óskaði það þess. Í dag höfum við breytt greiðslum þannig að nú er ekki tekin greiðsla fyrr en pöntun hefur verið tekin saman. Tekin er heimild af kortinu við pöntun en hún leiðréttist nú sjálfkrafa,“ segir Gunnar. Tíföld netsala hjá Nettó þegar best lét  Kauphegðun talsvert breytt  Fólk noti netverslun áfram Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nettó Salan hjá Nettó tífaldaðist í miðjum heimsfaraldri kórónuveiru. Sjómaðurinn sem talið er að hafi fallið fyrir borð á fiskiskipinu Er- ling KE-140 á Vopnafirði síðastlið- inn mánudag er á nítjánda aldurs- ári, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Hann heitir Axel Jósefs- son Zarioh og er búsettur í Kópa- vogi. Umfangsmikil leit hefur farið fram í Vopnafirði síðan á mánu- dag. Leitað hefur verið á sjó og landi út allan fjörðinn, en án ár- angurs. Í gær var sérstakur prammi not- aður við leitina. Hann er með glærum botni og hægt að skoða sjávarbotn á grunnsævi. Leit- að var meðfram ströndum og sandfjörur ekn- ar. Óskar Þór Guðmundsson, rannsóknarlög- reglumaður hjá lögreglunni á Austurlandi, átti von á því í gær að fjölgað yrði í leitarhópnum um helgina, að minnsta kosti þann daginn sem veður verður betra til leitar. Sjómaðurinn er á nítjánda aldursári Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Framboðsfrestur til forseta Íslands rann út í gær. Tveir skiluðu fram- boðum, Guðni Th. Jóhannesson for- seti og Guðmundur Franklín Jóns- son hagfræðingur. Enn á eftir að yfirfara meðmæli frambjóðendanna tveggja en að sögn Hafliða Helgasonar, upplýs- ingafulltrúa dómsmálaráðuneytis- ins, er þess ekki að vænta að form- legur listi yfir frambjóðendur verði birtur fyrr en eftir viku. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst engu að síður á mánudag. Hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt, sem og í verslunarmið- stöðinni Smáralind. Er nær dregur kjördegi verður utankjörfundarat- kvæðastöðum fjölgað, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, en að sögn Hafliða á enn eftir að ákveða hvar þeir kjörstaðir verða. Er sú ákvörð- un í höndum sýslumanna. Náið samráð hefur verið haft við sótt- varnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um útfærsluna. Betra að kjósa fyrr en síðar Á mánudag hefst sömuleiðis utankjörfundaratkvæðagreiðsla í sendiráðum erlendis. Sums staðar er tekið við kjósendum eftir sam- komulagi. María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu, segir í samtali við Morgunblaðið að verið sé að kanna hjá ræðismönnum Íslands hvort hægt verði að kjósa hjá þeim. „Það liggur fyrir að að- stæður geta haft áhrif á það hvort hægt verður að bjóða upp á utan- kjörfundaratkvæðagreiðslu,“ segir María og vísar í því skyni til út- göngubanns og samkomutakmark- ana sem eru við lýði víða um heim vegna kórónuveirufaraldursins. Hún hvetur Íslendinga erlendis sem hafa áhuga á að kjósa til að hafa samband við þann ræðismann sem er þeim næstur. Betra sé að greiða atkvæði fyrr en síðar, þar sem póst- sendingar gætu tekið lengri tíma en vant er. Kosningabaráttan hefst í dag Guðmundur Franklín Jónsson segir í samtali við Morgunblaðið að kosningabarátta hans hefjist í dag. Hefur hann baráttuna með kosn- ingapartíi á B47 hostel að Baróns- stíg 47 í Reykjavík, milli klukkan 15 og 17 í dag. Hann mun í kjölfarið hefja hringferð um landið til að hitta kjósendur og koma stefnumál- um sínum á framfæri. Þá fer heima- síða Guðmundar í loftið í dag, en þar gefst kjósendum kostur á að kynna sér framboðið frekar. Kosningabarátta Guðna Th. Jó- hannessonar verður lágstemmdari. „Guðni mun halda áfram að vera í sambandi við þjóðina í gegnum starf sitt,“ segir Arndís Þorgeirs- dóttir, fjölmiðlafulltrúi Guðna. Ekki verður opnuð sérstök kosninga- skrifstofa en Facebook-síða Guðna, sem nýtt var í kosningunum 2016, hefur verið endurvakin. Tveir skiluðu framboðum  Kosning utan kjörfundar hefst á mánudag bæði hér og í útlöndum Guðni Th. Jóhannesson Guðmundur Franklín Jónsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hæstu styrkirnir í fyrstu úthlutun úr verkefninu Ritmenning íslenskra miðalda fara til rannsókna á Staðar- hóli í Dölum, Þingeyrum og Odda á Rangárvöllum. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra afhenti styrk- ina við athöfn í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti á uppstigningardag. Verkefnin þrjú fengu sjö milljóna króna styrk hvert. Þau eru Stað- arhóll í Dölum: Höfuðból í minjum, sögu og sagnaritun og Fornleifa- stofnun Íslands er þar umsækjandi, Þingeyrarklaustur: Hjarta ritmenn- ingar í fjórar aldir sem Háskóli Ís- lands stendur fyrir og Oddarann- sóknin. Auk þess var veitt 3,3 milljónum til verkefnisins Náttúrur og fornar frásagnir, 2,7 milljónum til verkefnisins Bókagerð í Helgafells- klaustri á fjórtándu öld og 3 millj- ónum til verkefnisins Sögur og fylgd- armenn. Alls var 30 milljónum úthlutað til sex verkefna en sótt var um styrki til 10 verkefna, alls að fjárhæð tæplega 67 milljónir. Komast af stað aftur Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins, er ánægður með stuðninginn og segir að hann dugi til að komast af stað með fornleifarann- sókn í Odda að nýju. Þar var hafin rannsókn á manngerðum hellum sumarið 2018 en ekki fékkst fjár- magn til framhalds. Nú verður haldið áfram með hellana og einnig gerðar rannsóknir á bæjarhólnum. Ágúst segir að lagt sé upp með þverfaglegt verkefni undir forystu Helga Þorlákssonar, fyrrverandi prófessors í sagnfræði, og komi margir fræðimenn að því með honum. Verkefni til fimm ára Efnt var til verkefnisins í tilefni af því að á síðasta ári voru liðin 75 ár frá stofnun lýðveldis á Íslandi. Mark- miðið er meðal annars að efla rann- sóknir á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og þá sér- staklega þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum þar sem ritmenning blómstraði. Snorrastofu var falið að annast umsýslu verkefnisins. Markmiðið er að úthluta 35 millj- ónum króna á ári, í fimm ár, og var úthlutunin í ár sú fyrsta. Ljósmynd/aðsend Ritmenning Styrkir afhentir, frá vinstri eru þau Bergur Þorgeirsson, Elín Ósk Heiðarsdóttir, Steinunn Kristjáns- dóttir, Viðar Hreinsson, Axel Kristinsson, Árni Daníel Júlíusson, Helgi Þorláksson, Beeke Stegman og Björn Bjarnason. Fyrir framan stendur Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Merkir staðir styrktir  Oddi, Staðarhóll og Þingeyrar fengu hæstu styrkina við fyrstu úthlutun styrkja til rannsókna á ritmenningarstöðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.