Morgunblaðið - 23.05.2020, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fordæmalausar aðstæður í ferða-
þjónustu gera það að verkum að
gera þarf skynsamlegar breytingar
á hönnun Landsímareitsins.
Þetta er inntakið í minnisblaði
sem Icelandair Group hf., fyrir
hönd Flugleiðahótela ehf. (Ice-
landair Hotels) og Lindarvatns ehf.,
hefur sent Reykjavíkurborg. Miklar
og umdeildar framkvæmdir hafa
staðið yfir á reitnum á vegum
Lindarvatns, sem er fasteignaþró-
unarfélag í helmingseigu Icelandair
Group og eigandi fasteigna á Land-
símareit. Verklok eru áætluð í lok
árs 2020 og verða Icelandair Hotels
leigutaki og rekstraraðili á reitnum
að framkvæmdum loknum. Hótelið
mun heita Icelandair Parliament
Hotel og verða þar 160 herbergi.
Fram kemur í minnisblaðinu að
tillögum að breytingum sé ætlað að
auka vægi almennings- og menning-
arrýma á Landsímareit á sama tíma
og brugðist er við gjörbreyttum
rekstrarskilyrðum í ferðaþjónustu.
Rekstur standi ekki undir sér
„Að öðrum kosti er hætt við að
rekstur á reitnum standi ekki undir
sér til skamms og meðallangs tíma
og jafnvel lengri tíma ef keðjuáhrif
raska heildarsamhengi hönnunar og
notagildis í húsunum á reitnum,“
segir í minnisblaðinu.
Ein viðamesta breytingin sem
Lindarvatn vill gera er að 650 fer-
metra skrifstofurými á 3. og 4. hæð
næst NASA að Thorvaldsensstræti
2 verði breytt í hótelherbergi. Slík-
ur rekstur er ekki heimill í rýminu
samkvæmt sérskilmálum. Bent er á
í minnisblaðinu að markaður fyrir
skrifstofurými í miðborginni
(Kvosinni) sé að mettast og ekki sé
grundvöllur fyrir því nú að innrétta
rýmið undir skrifstofur. Að auki sé
rýmið óhentugt til útleigu. Að því sé
ekki sérinngangur og aðkoma í
gegnum hótelganga í gamla Land-
símahúsinu.
Í deiliskipulaginu er gert ráð fyr-
ir fylltum kjallara í nýbyggingunni
Thorvaldsensstræti 6, sem stendur
næst Kirkjustræti. Á þessum slóð-
um var um aldir kirkjugarður
Reykvíkinga. Í minnisblaðinu segir
að engin not yrðu af rýminu miðað
við núgildandi skipulag. Leggur
Lindarvatn til breytingu sem miði
að því að heimila rekstur á spa, lík-
amsræktarsal og skrifstofum fyrir
starfsfólk í kjallaranum. Enda verði
engin nýting á þegar byggðum
kjallara ef hann verði fylltur af möl.
Fram kemur í minnisblaðinu að
umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkur hafi tekið jákvætt í til-
lögur um breytingar á kjallara en
neikvætt í breytingar á skrifstofu-
rýmunum, reyndar án rökstuðn-
ings.
Á jarðhæð Thorvaldsensstrætis 6
gerir skipulag ráð fyrir „lifandi
götuhliðum og almenningsrýmum“.
Núverandi hönnun gerir ráð fyrir
litlum verslunum og stóru setu-
svæði fyrir hótelgesti. Þarna verði
hefðbundin starfsemi í tengslum við
hótelrekstur, t.d. litlar minja- og
skartgripaverslanir auk kaffihúss.
Framkvæmdaaðilar telja, miðað
við fyrri reynslu, að erfitt geti
reynst að finna hentuga leigutaka
að rýmunum, a.m.k. til lengri tíma.
Því er lagt til að rýmið verði endur-
skilgreint og notað sem opið al-
menningsrými undir menningar-
tengda viðburði. „Yrði jarðhæðin
þannig aðdráttarafl fyrir almenning
og gesti miðbæjarins með listsýn-
ingum og menningartengdum við-
burðum á borð við Listahátíð í
Reykjavík, Hönnunarmars, Iceland
Airwaves, Food&Fun o.þ.h. en þess
á milli undir ýmsar listsýningar og
gallerý,“ segir í minnisblaðinu.
Loks er að nefna að fram-
kvæmdaaðilar vilja breyta núver-
andi skipulagi fyrir Aðalstræti 7 og
Vallarstræti 4, en þessi hús á Land-
símareit standa við Ingólfstorg.
Þarna er gert ráð fyrir 17 íbúðum,
sem flestar eru um 50 fermetrar.
Þeir telja að erfitt verði að selja
þessar íbúðir á almennum markaði
því þær verði óhjákvæmilega dýrar.
Ólíklegt sé að íbúðirnar henti yngri
kaupendum. Ef litið sé til eldri
kaupenda með meiri fjárráð sé sá
kaupendahópur ekki stór. Sölu-
möguleikar á íbúðunum séu því
mjög takmarkaðir.
„Framkvæmadaaðilar telja það
þjóna hagsmunum þeirra sem hlut
eiga að máli að reisa hótelíbúðir í
húsunum við Aðalstræti 7 og
Vallarstræti 4 í stað lítilla en dýrra
íbúða,“ segir í minnisblaðinu. Ice-
landair Hotels hafi lýst yfir áhuga á
því að leigja íbúðirnar og gera að
hótelíbúðum. Slíkar hótelíbúðir hafi
gefið góða raun við Hótel Marina
við höfnina.
Vilja breyta Landsímareit
Fordæmalausar aðstæður í ferðaþjónustu kalla á breytingar að mati Icelandair Group Vilja
taka skrifstofurými undir hótelherbergi Líkamsrækt og spa í kjallara byggingar við Kirkjustræti
Morgunblaðið/sisi
Landsímareitur Framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarið. Nýbyggingin til vinstri hefur orðið deiluefni, enda reist á fyrsta kirkjugarði Reykvíkinga.
Fram kemur í minnisblaðinu að Ice-
landair Hotels hafi átt náið og gott
samstarf við skipulagsyfirvöld um
uppbyggingu á nokkrum stöðum í
borginni. Á Hljómalindarreit, milli
Laugavegar og Hverfisgöu, hafa
Icelandair Hotels rekið vinsælt hót-
el undir merkjum Canopy by Hilton
frá 2016. Þarna var áður fjölsóttur
samkomustaður, Hjartagarður.
Markmiðið var að þarna yrði, að
loknum framkvæmdum, vinsæll
viðkomustaður gesta og gangandi.
Það hefur ekki raungerst, því mið-
ur, segir í minnisblaðinu. „Reynsla
af rekstri rýma á Hljómalindarreit
leigutaka í verslunarrými og hafi
þurft að ráðast í breytingar á rým-
unum, að höfðu samráði við skipu-
lagsyfirvöld, til að hverfa frá fyrri
áformum og einfalda rekstrarskil-
yrði, eins og gert hafi verið í tilviki
Skelfiskmarkaðarins. Enn standi
rými auð, þrátt fyrir að Icelandair
Hotels hafi boðið kjör undir mark-
aðsvirði og jafnvel boðið afnot af
þeim án endurgjalds.
Þá er bent á að langdregnar
framkvæmdir við Hverfisgötu á
sínum tíma hafi reynst Icelandair
Hotels afar erfiðar og kostn-
aðarsamar.
hefur því miður einkennst af erfið-
leikum frá fyrsta degi,“ segir þar.
Mjög erfitt hafi reynst að fá
Erfiðleikar frá fyrsta degi á Hljómalindarreit
ÁFORM UM FJÖLSÓTTAN SAMKOMUSTAÐ Í HJARTAGARÐI HAFA EKKI GENGIÐ EFTIR
Hjartagarður Áður var þarna mikið líf
og fjör. Myndin er tekin sumarið 2011.
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is