Morgunblaðið - 23.05.2020, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is
Katrin Ottarsdóttir er fjöl-hæfur færeyskurlistamamaður, eins ogþetta fína og forvitnilega
sagnasafn sýnir vel. Hún er fædd ár-
ið 1957 í Þórshöfn og er kunnasti
kvikmyndaleikstjóri eyjanna átján,
sannkallaður frumkvöðull á því sviði.
Hún hefur bæði gert leiknar myndir
og heimildakvikmyndir, en hefur
einnig sent frá sér ljóðabækur og
smásögur.
Eins og vísað
er til í titlinum
eru í bókinni 43
örsögur og höf-
undurinn er ná-
kvæmur hvað
lengd varðar:
hver er 301 orð!
Rúm blaðsíða.
Þetta er
býsna heildstætt safn örstuttra og
oft bráðskemmtilegra og afhjúpandi
sagna af fólki í samtímanum. Sagðar
í þriðju persónu og sögumaður kem-
ur sér beint að efninu, byrjar oft á
þennan hátt: „Hún vissi ekki …“,
„Hann vaknar andstuttur …“ eða
eins og í sögunni „Gólfið“: „Hún
rankar við sér á gólfinu undir hon-
um …“ en þar segir af sambands-
slitum fólks sem hefur „hangið of
lengi saman af eintómum leiðindum“
og sem einhvers konar „kveðjugjöf“
virðist sem maðurinn hafi nauðgað
konunni sem „var lömuð, lét hann
bara ljúka sér af“. Sagan er gott
dæmi um margar vel mótaðar og
áhrifaríkar myndir sem leikstjórinn
dregur upp í orðum; lesandinn fær
innsýn í huga persónanna og hér
konunnar sem dregur ekki upp um
sig buxurnar, eins og maðurinn vill,
því hún vill ekki „gera honum eitt
eða neitt auðveldara“ og „hylja sitt
nakta sár“.
Sumar sagnanna fjalla eins og
þessi um kynlíf og samskipti para,
aðrar til að mynda um áhrif sam-
félagsmiðlanna á líf fólks og þar er
höfundurinn iðulega beittur og kald-
hæðinn. Ein sú besta, „Ljósaskipt-
in“, er eins og stuttmynd sem hefst á
staðsetningarskoti, sýnir unga konu
yst á hafnargarði, hún er æf og hefur
ákveðið að dagurinn sé kjörinn til
aðgerða. Dögum saman hefur eng-
inn brugðist við „samviskulegum
uppfærslum hennar“, um allrahanda
vonbrigði yfir vinum, kærustum og
kennurum, og þótt hún hafi gengið
sífellt lengra í myndbirtingum á
miðlunum, sýnt „sig með timbur-
menn og blóðugar skrámur eftir
mislukkuð stefnumót“, þá fækkar
lækunum bara og það er „allt í vit-
leysu“. En nú setur hún á sig fótjárn
og stekkur í sjóinn og í áhrifaríkri
sögunni heyrir hún hljóðin í læk-
unum í símanum sem sendir drukkn-
un hennar út í beinni.
Aðalsteinn Ásberg hefur lagt
rækt við að færa á íslensku verk
skálda og sagnamanna af nágranna-
eyjum, Hjaltlandi og Færeyjum, og
þýðir sögurnar vel og lipurlega.
Örsögur
leikstjórans
Örsögur
43 smámunir bbbbn
Eftir Katrinu Ottarsdóttur.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
íslenskaði.
Dimma, 2020. Kilja, 95 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Katrin Ottarsdóttir
Örsögurnar eru bráð-
skemmtilegar og af-
hjúpandi, segir rýnir.
Engar alþjóð-
legar mynd-
listarkaup-
stefnur fara
fram um þessar
mundir en i8
galleríið, sem á
ári hverju tekur
þátt í nokkrum
þeim helstu, tek-
ur nú þess í stað
þátt í nýrri kaup-
stefnu, Fair. Fer hún fram á netinu
og er vefslóðin thisisfair.org. Á
þriðja hundrað gallería eru með og
skipta gallerí og listamaður þess
sem á verk sem selst helmingi and-
virðis þess á milli sín en hinn helm-
ingurinn skiptist milli allra lista-
manna og gallería, og samtaka
listsala.
Fyrstu vikuna sýnir i8 og býður
til sölu verkin Gyðjur (2019) eftir
Ragnar Kjartansson. Í næstu viku
verða það verk eftir B. Ingrid Olson
og loks verk eftir Örnu Óttars-
dóttur.
i8 gallerí sýnir
verk Ragnars á Fair
Gyðjur eftir Ragnar
Kjartansson.
Ítalía hefur verið hart leikin af
Covid-19-veirunni en í liðinni viku
byrjuðu stjórnvöld í ýmsum hér-
uðum landsins að leyfa opnun safna
að nýju. Sífellt fleiri söfn og menn-
ingarmiðstöðvar eru nú opnuð á degi
hverjum í landinu en með stífum
skilyrðum um fjölda og hreyfingu
gesta innan þeirra. Gestir í Duomo,
dómkirkjuna frægu í Flórens, fá til
að mynda borða með skynjara um
hálsinn sem blikkar og vælir ef gest-
ir koma of nærri hver öðrum.
Stjórnendur safna Ítalíu gera ráð
fyrir gríðarlegu rekstrartapi í ár og
fagna margir opnun safna. Hins veg-
ar eru engir ferðamenn í landinu, en
þeir eru alla jafna langstærsti hluti
gesta safnanna, og þá er svo fáum
gestum hleypt inn í einu að sumir
safnamenn segjast ekki hafa ráð á að
opna að sinni.
AFP
Grímuklæddur Gestur rýnir í brjóstmyndir úr marmara frá tíma Rómaveldis í Capitoline-safninu í Róm.
Opna söfnin
með stífum
skilyrðum
Nálægðarvæla Gestur í dómkirkjunni í Flórens með skynjara sem lætur
vita ef gestir koma of nærri hver öðrum þegar þeir skoða kirkjuna.
Meistaraverk Fáum gestum er hleypt í einu í Galleria Borghese í Róm og
fékk þessi að vera einn með meistaraverkum eftir Caravaggio frá um 1600.
Vígalegur Vel varinn safnvörður
gætir gesta í Galleria Borghese.