Morgunblaðið - 30.05.2020, Side 1
Ást á Íslandi
Grillað
góðgæti
Hinn brasilíski Georg Leite og
hin franska Anaïs Barthe fundu
ástina á Íslandi og vilja núhvergi annars staðar vera. Þau
segjast elska Ísland en finnst að
fólk hér mætti faðmast oftar. 14
31. MAÍ 2020SUNNUDAGUR
Gróska oggróðursæld
Nú er tími tilað anda að sérfersku sumarloftiog henda steik ágrillið. 22
Byltingarkennd tækniNý og spennandi erfðatækni, sem bæði vekurgleði og óhug, ryður sér rúms. 8
Við Ægisíðunahafa Ásdís Aldaog Árni Þórræktað einnfallegasta garðbæjarins. 18
L A U G A R D A G U R 3 0. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 127. tölublað 108. árgangur
Njóttu ferðalagsins!
Mitsubishi Outlander PHEV
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · hekla.is/mitsubishisalur
Tilboðsverð
4.890.000 kr.
FÆR ALDREI NÓG
AF ÞVÍ AÐ TEIKNA
ÍSLENSK HROSS
HEILLAÐIST
SNEMMA
AF FÖRÐUN
DAGLEGT LÍF 12RÁN Í GRYFJUNNI 42
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Bændasamtökin leita nýrra hluthafa
að rekstrarfélagi Hótels Sögu. Fyrir-
tækið stefnir að öllu óbreyttu í þrot.
Félagið skilaði 450 milljóna króna
tapi í fyrra og er eigið fé félagsins
neikvætt um hundruð milljóna
króna.
Spilaði fall WOW air og kyrrsetn-
ing Boeing 737-MAX-véla inn í
versnandi stöðu á liðnu ári að sögn
Ingibjargar Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
„Leitað verður eftir því að fá inn
nýtt fé í formi nýrra hluthafa og fjár-
hagslegrar endurskipulagningar að
öðru leyti. Sú vinna er á viðkvæmu
stigi. Ferðaþjónustufyrirtæki eru öll
í erfiðleikum eins og kunnugt er og
Hótel Saga er þar engin undantekn-
ing. Við vonumst til að ná árangri við
okkar endurskipulagningu á þessu
ári og trúum því að það takist.“
Á þessari stundu er ekki ljóst
hvort Grillið, eitt frægasta og virt-
asta veitingahús landsins til áratuga,
verður opnað aftur og mun það að
sögn Ingibjargar ráðast af því hvort
rekstrarfyrirkomulag staðarins verð-
ur hagkvæmt eða ekki. Á síðustu ár-
um hefur Hótel Saga staðið í miklum
framkvæmdum á hótelinu og nemur
fjárfesting í þeirri uppbyggingu um
tveimur milljörðum á árunum 2017-
2018.
Hótel Saga leitar nýrra hluthafa
Tæplega hálfs milljarðs taprekstur í fyrra Óvissa um framtíð Grillsins
MHótel Saga á heljarþröm »22
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hótel Saga Bændasamtökin leita
nýrra hluthafa að Hótel Sögu.
Lífið er óðum að fara í fyrra horf, menn og skepnur að rétta
úr sér og sumarið að minna á sig. Flórgoðinn er í viðbragðs-
stöðu eins og aðrir, farinn að sinna vorverkunum og bíður
spenntur eftir því sem koma skal. Pétur Alan Guðmundsson,
kaupmaður í Melabúðinni og áhugaljósmyndari, hefur fylgst
vel með fuglalífinu á Vífilsstaðavatni. »18
Ljósmynd/Pétur Alan Guðmundsson
Flórgoði í
viðbragðsstöðu
á Vífilsstaðavatni
Óskar R. Harðarson, einn eig-
enda Mikluborgar, stærstu fast-
eignasölu landsins, segir vaxta-
lækkanir Seðlabankans hafa örvað
markaðinn að undanförnu.
Kjartan Hallgeirsson, formaður
Félags fasteignasala, segir vís-
bendingar um að uppsöfnuð þörf
hafi myndast í kórónuveirufaraldr-
inum. Hún hafi svo birst í meiri
sölu þegar slakað var á samkomu-
banninu.
„Salan hefur verið mjög góð í
maí og vel yfir meðaltali fyrir
þennan árstíma. Hvað segir þetta
um eftirspurn í framtíðinni? Það er
erfitt að segja,“ segir Kjartan. »9
Vaxtalækkanir örva
fasteignamarkaðinn