Morgunblaðið - 30.05.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
LC02 hægindastóll
Leður – Verð 319.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Samkeppniseftirlitið reiddi hátttil höggs, og ekki í fyrsta sinn,
í ákvörðun sinni gegn Símanum
vegna enska fótboltans. Sekt stofn-
unarinnar hljóðar upp á hálfan
milljarð króna fyrir það sem stofn-
unin telur brot
gegn fimm ára
gömlum sáttum
fyrirtækisins við
stofnunina.
Málið er allthið und-
arlegasta en virð-
ist snúast um það
í grunninn að
Síminn keypti
leyfi til að sýna
enska boltann og
selur svo viðskiptavinum sínum að-
gang að efninu á þann hátt sem
Samkeppniseftirlitinu mislíkar.
Það sem stofnunin finnur að erað Síminn verðleggur efnið
með eftirfarandi hætti, svo vitnað
sé í ákvörðun stofnunarinnar:
„Þannig hafi verð fyrir Símann
Sport/Enska boltann verið 1.000
kr. á mánuði sem hluti af Heim-
ilispakkanum og Sjónvarpi Símans
Premium en 4.500 kr. sem stök
þjónusta.“
Þeir sem lesa þetta hljóta aðspyrja sig: Hvar er glæpurinn?
Skyndibitastaðir bjóða gjarnanupp á frítt gos með pítsunni
eða hamborgaranum en selja stök
glös á allháu verði. Er það óheim-
ilt?
Samskonar dæmi eru út um allt,en í tilviki Símans er þetta
bannað og í því sambandi vísað í
sátt. Síminn er allt annað en sáttur
við þá túlkun, sem von er, og sú
spurning hlýtur að vakna hvort
sáttin sé í takt við tímann eða úrelt.
Svarið virðist blasa við.
Hvar er glæpurinn?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Varðskipin Týr og Þór hafa bæði leg-
ið í Reykjavíkurhöfn undanfarna
daga. Skipin voru síðast saman í
Reykjavík um jólin 2019, samkvæmt
upplýsingum Ásgeirs Erlendssonar,
upplýsingafulltrúa Landhelgisgæsl-
unnar.
Snemma árs 2020 hófst mikil törn
varðskipsmanna. Veturinn var mjög
erfiður. Ótíð mikil, rafmagnstruflanir
víða um land og snjóflóð á Flateyri og
Súðavík. Þurfti því að kalla varðskips-
menn til aðstoðar.
Síðan kom COVID-19 og þá var
gripið til þess ráðs að lengja ferðir
varðskipanna í fimm vikur í senn á sjó
í stað þriggja eins og venjulegt er.
Var þetta gert til að tryggja að Land-
helgisgæslan gæti haldið úti öflugu
viðbragði á hafinu umhverfis Ísland.
Þegar varðskipsmenn komu í höfn
voru samskipti við heimafólk miklum
takmörkunum háð.
Um þessar mundir er verið að
vinna að því að aflétta sóttvarnartak-
mörkunum varðskipanna, samkvæmt
upplýsingum Ásgeirs. Siglingaplani
verður í skrefum komið í hefðbundna
sumaráætlun með 17 daga útiverum
að öllu jöfnu með fjögurra daga inni-
veru á milli. Týr mun brátt leggja af
stað í gæsluferð. „Lífið er því að fær-
ast í eðlilegra horf á varðskipunum,“
segir Ásgeir. sisi@mbl.is
Lífið í eðlilegt horf á varðskipum
Týr og Þór sigla á ný samkvæmt
hefðbundinni áætlun Gæslunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Til hafnar Varðskipið Þór kom í
fyrsta sinn til Grindavíkur í vetur.
Kínversk samfélagsmiðlastjarna, Ye
Ziyi, var nú á dögunum fengin til að
aðstoða íslenska sendiráðið þar í
landi við kynningu á Íslandi. Er Ye
Ziyi með rétt um eina milljón fylgj-
enda á kínverskum samfélags-
miðlum. Þetta kemur fram í skrifum
Gunnars Snorra Gunnarssonar,
sendiherra Íslands í Kína.
Nær fjögur þúsund manns fylgd-
ust með þegar sendiráðið kynnti Ís-
land í beinni útsendingu á síðu Ye
Ziyi. Fór kynningin þannig fram að
áhorfendur fengu að fylgjast með á
meðan samfélagsmiðlastjarnan hélt í
tölvutilbúna hringferð um landið.
Enn má finna útsendinguna á miðlum
Ye Ziyi og nú hafa tugþúsundir Kín-
verja horft á kynninguna.
Að því er fram kemur í pistli Gunn-
ars Snorra vinnur sendiráðið nú að
því að gera Ísland að fýsilegum
áfangastað fyrir kínverska ferða-
menn. Þannig verði landið ofarlega á
blaði þegar landamæri verði opnuð að
nýju. Í gær hóf sendiráðið jafnframt
undirbúning sjónvarpsþáttar sem
tekinn verður upp 17. júní nk. Þar
gefst tækifæri til að kynna Ísland enn
frekar, en sérstök áhersla verður lögð
á kynningu á eldi, jarðhita, ís, ullar-
fatnaði og íslenskum mat.
Kínversk stjarna
auglýsir Ísland
Ljósmynd/Gunnar Snorri
Sendiherra Gunnar Snorri sendiherra ásamt starfsliði Hainan TV.