Morgunblaðið - 30.05.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
www.hveragerdi.is
VILTUBÚA Í BLÓMABÆNUM
HVERAGERÐI?
Einbýlishúsalóðum er úthlutað án byggingaréttargjalds. Raðhúsa- og fjölbýlis–
húsalóðum er úthlutaðmeð 30% byggingarréttargjaldi. Vakin er athygli á að
umsækjendur sem sækja um lóðir fyrir öll fjögur tveggja hæða fjölbýlishúsin
ganga fyrir. Sæki enginn um allar lóðirnar ganga þeir fyrir sem sækja um þrjár
og að lokum þeir sem sækja um tvær.
Við úthlutun verður farið eftir reglumHveragerðisbæjar um úthlutun lóða.
Úthlutun fer fram þann 2. júlí kl. 8:00 og skulu umsóknir berast skipulagsfulltrúa/
skrifstofu Hveragerðisbæjar fyrir þann tíma.
Nánari upplýsingar um lóðir, skilmála og umsóknareyðublöð er að finna á
www.hveragerdi.is og hjá skipulagsfulltrúa í síma 483-4000 eða tölvupósti
á gfb@hveragerdi.is
Hveragerðisbær auglýsir lóðir til úthlutunar
Til úthlutunar eru eftirfarandi lóðir í Kambalandi:
10 lóðir fyrir einbýlishús við Drekahraun. Fjórar lóðir fyrir fimm
íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum við Langahraun. Þrjár
lóðir fyrir þriggja íbúða raðhús við Langahraun og tvær lóðir
fyrir einbýlishús við Búðahraun.
Kambaland er vestast í Hveragerði. Landinu hallar þar til suðurs og austurs
og þaðan er víða mikið og fagurt útsýni.
Hveragerði er ört vaxandi sveitarfélag þar sem íbúar eru um 2.700.
Höfuðborgarsvæðið er í um 30 mínútna akstursfjarlægð. Öll þjónusta
í bæjarfélaginu er eins og best verður á kosið, glæsilegir leikskólar,
metnaðarfullur grunn- og tónlistarskóli og framhaldsskóli innan seilingar.
Íþrótta- og menningarlíf er í miklum blóma og umhverfi bæjarins gefur kost
á fjölbreyttri útivist í einstöku umhverfi.
KAMBALAND
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Óskar R. Harðarson, einn eigenda
Mikluborgar, stærstu fasteignasölu
landsins, segir vaxtalækkanir Seðla-
bankans hafa örvað markaðinn að
undanförnu. Þvert á fullyrðingar þar
að lútandi hafi Miklaborg ekki orðið
vör við samdrátt í fasteignasölu
vegna kórónu-
veirunnar.
„Markaðurinn
er á blússandi
siglingu. Mikla-
borg var stofnuð
árið 2007 og eftir
fyrstu fimm mán-
uði ársins stefnir í
besta árið hjá
okkur frá upp-
hafi,“ segir Óskar.
Til dæmis sé
Miklaborg að selja langtum fleiri
eignir en þegar síðasta uppsveifla
hófst árin 2014-15. Þegar markaður-
inn hafi farið að glæðast í mars og
apríl hafi verið mikil eftirspurn eftir
notuðum eignum. Síðustu vikur hafi
áhuginn á nýbyggingum einnig auk-
ist töluvert. „Nú eru margar nýbygg-
ingar að koma til afhendingar sem
komu í sölu í fyrra. Það eykur áhug-
ann enda vilja flestir geta flutt strax
inn. Það er mikil hreyfing á eignum
þessa dagana og smátt og smátt virð-
ast vaxtalækkanirnar hafa náð í
gegn. Fólk er farið að átta sig betur á
því hvað þær þýða. Lægri vextir gera
bæði fyrstu kaupendum auðveldara
að eignast eignir og skapar tækifæri
fyrir hina til að endurfjármagna eða
breyta um húsnæði. Til dæmis þá
sem eru að minnka við sig,“ segir
Óskar.
Verðmunurinn minnkað
Fyrir nokkrum misserum var rætt
um miðborgarálag í samhengi við
hærra fasteignaverð í miðborginni.
Miklar leigutekjur, meðal annars af
ferðamönnum, áttu þátt í verðmynd-
uninni. Síðan hafa reglur um útleigu
íbúða verið hertar, WOW air hætt
starfsemi og Icelandair staðið
frammi fyrir endurskipulagningu
vegna kórónuveirufaraldursins.
Landið lokast erlendum ferðamönn-
um.
Óskar segir gistimarkaðinn í mið-
borginni hafa orðið fyrir miklu höggi
vegna faraldursins. Hins vegar séu
íbúðir góð fjárfesting, t.d. fyrir þá
sem eiga laust fé en fá litla innvexti
við þessar aðstæður. Þá sé alltaf
ágæt eftirspurn eftir langtímaleigu í
miðborginni. Verðmunur milli mið-
borgarinnar og úthverfanna hafi
minnkað að undanförnu. Íbúðaverð í
miðborginni staðið í stað en hækkað í
úthverfum. Á sama tímabili hafi vext-
ir lækkað mikið. Fyrir vikið hafi
kaupgeta margra kaupenda á nýjum
eignum aukist. Það hafi m.a. birst í
ágætri eftirspurn eftir nýjum íbúð-
um.
Náði hámarki í árslok 2017
Samkvæmt talningu Samtaka iðn-
aðarins voru um 42% færri íbúðir í
byggingu á fyrstu byggingarstigum í
síðustu vortalningu en árið áður.
Benti það til að verktakar og bankar
hefðu stigið á bremsuna vegna sam-
dráttar og óvissu í hagkerfinu.
„Lóðaverð í nýbyggingum náði há-
marki í lok árs 2017. Síðan kom tíma-
bil þar sem var erfiðara að fjármagna
ný verkefni en áður. Við finnum nú
aftur fyrir auknum áhuga bygging-
araðila og fjárfesta á að finna lóðir og
byggja. Markaðurinn hefur verið
sveiflukenndur. Þeir sem fara af stað
með nýjar framkvæmdir í ár munu
horfa fram á minni samkeppni á
markaði með nýjar eignir eftir 18-24
mánuði en er nú.
Eftirspurnin eftir nýjum eignum
er vaxandi og útlit er fyrir að í lok árs
verði búið að selja stóran hluta eigna
sem nú eru í byggingu og að framboð
nýrra eigna verði mun minna árin
2021 og 2022. Mun það því líklega
valda ójafnvægi á framboðshliðinni,“
segir Óskar.
Uppsöfnuð þörf á markaði
Kjartan Hallgeirsson, formaður
Félags fasteignasala, segir vísbend-
ingar um að uppsöfnuð þörf hafi
myndast í kórónuveirufaraldrinum.
Hún hafi svo birst í meiri sölu þegar
slakað var á samkomubanninu.
„Salan hefur verið mjög góð í maí
og vel yfir meðaltali fyrir þennan árs-
tíma. Hvað segir þetta um eftirspurn
í framtíðinni? Það er erfitt að segja.“
Kjartan segir vaxtalækkanir að
undanförnu hafa örvað markaðinn.
Ekki síst hjá kaupendum sem eru á
miðjum aldri og á leið í stærra hús-
næði. Lægri vextir geri þeim kleift að
fara í sérbýli eða endanlegt húsnæði.
„Orðið vaxtalækkun hefur sömu
áhrif og orðið útsala. Það hefur já-
kvæð áhrif á markaðinn. Hins vegar
vildi maður sjá vaxtalækkanir Seðla-
bankans koma sterkar fram hjá
bönkunum,“ segir Kjartan.
Fasteignamarkaðurinn á uppleið
Einn eigenda Mikluborgar segir söluna fyrstu fimm mánuði ársins þá bestu í sögu fyrirtækisins
Formaður Félags fasteignasala segir vaxtalækkanir hafa stutt við íbúðamarkaðinn að undanförnu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byggt við Hlíðarenda Nýjar íbúðir hafa komið í sölu í áföngum í hverfinu.
Vextir Seðlabankans
Frá ársbyrjun 2016
6%
5%
4%
3%
2%
1%
0%
'16 '17 '18 '19 '20
Heimild: Seðlabanki Íslands
5,75%
1,0%
Óskar R.
Harðarson