Morgunblaðið - 30.05.2020, Qupperneq 18
Ljósmyndir/Pétur Alan Guðmundsson
Á Vífilsstaðavatni Flórgoðaparið lætur fara vel um sig, gleymir stað og stund og einbeitir sér að verki vordagsins, án þess að taka eftir ljósmyndurum á bakka vatnsins.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hvað sem kórónuveirufaraldri líður halda flórgoðarnir á
Vífilsstaðavatni sínu striki, sinna vorverkunum og gera
sig klára til að fjölga stofninum. „Ungarnir koma fljót-
lega,“ segir Pétur Alan Guðmundsson, kaupmaður í
Melabúðinni og áhugaljósmyndari.
Myndavélin hefur lengi verið með Pétri í för. Hann
segist hafa fengið bakteríuna í gönguferðum með vinum
fyrir margt löngu, en fljótlega hafi hann einbeitt sér að
því að mynda fugla. Eitt sinn, þegar hann hafi verið á
rjúpnaveiðum, hafi rjúpa fangað athyglina og hann byrj-
að að mynda hana frekar en að snúa sér að veiðinni.
„Ekki leið á löngu þar til ég fór að veiða rjúpuna á
myndavélina utan veiðitíma,“ rifjar hann upp.
Eitt leiddi af öðru. Fleiri fuglar urðu á vegi Péturs og
fyrir um fjórum árum féll hann gersamlega fyrir flórgoð-
anum, sem hefur átt hug hans allan síðan.
„Flórgoðinn er svo fjölbreytilegur, skemmtilegur,“
segir hann. „Hann er margbreytilegur eftir því hvernig
birtan fellur á hann. Hann getur verið litlaus, gulleitur
og gylltur rétt eins og sólin. Hann getur verið mjög
grimmur, ljúfur og allt þar á milli og það er engu líkt að
sjá ungana, litlu KR-ingana.“
Pétur segist hafa gert sér ferð norður á Mývatn fyrir
nokkrum árum til þess að ná myndum af flórgoða, en nú
hafi þeim fjölgað sunnan heiða og töluvert sé af honum á
vötnum á höfuðborgarsvæðinu. „Ég fer gjarnan að
mynda fuglana eftir vinnu á kvöldin, því þá ríkir gjarnan
kyrrð og friður auk þess sem yfirleitt eru færri á ferð
þótt ekki sé á vísan að róa.“
Flórgoðinn augnayndi
í allri sinni litadýrð
Pétur Alan Guðmundsson
áhugaljósmyndari fylgist með
Ástardans Samfara aukinni nánd hitnar í kolunum.
Tilhugalífið Flórgoðaparið veit hvað stendur til á vatninu.
Í kvöldsólinni Litir flórgoðans breytast eftir birtunni.
Næring Foreldrar fæða unga sína fyrir ári.
Höfuð Kamburinn uppi og tindrandi rautt auga.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina