Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Bandaríkjahergreindi fráþví á þriðju-
dag að Rússar hefðu
nýverið sent orrustu-
þotur til Líbíu til
þess að styðja við
rússneska málaliða í
þjónustu Khalifas
Haftars, sem sækist
eftir að ná völdum í landinu. Rúss-
nesku málaliðarnir eru á vegum
rússnesks einkafyrirtækis, sem
nefnist Wagner-samstæðan og tal-
ið er að hafi tengsl við Vladimír
Pútín, forseta Rússlands. Málalið-
ar á þess vegum hafa einnig verið
að verki í Sýrlandi, að talið er.
Bandaríkjaher birti myndir og
sagði að vélarnar hefðu haft við-
komu í Sýrlandi, þar sem þær
hefðu verið málaðar til að leyna
rússneskum uppruna þeirra. Sam-
einuðu þjóðirnar settu bann við
vopnaflutningum til Líbíu fyrir
níu árum en því hefur lítt verið
fylgt eftir, þótt blóðug átök hafi
geisað í landinu.
Upplausn hefur ríkt í Líbíu frá
því að Moammar Gaddafi var
steypt af stóli með fulltingi Atl-
antshafsbandalagsins (og stuðn-
ingi Íslands) árið 2011. Almenn-
ingur hefur fengið að súpa seyðið
af átökunum. Þúsundir hafa látið
lífið. Í landinu ríkir vöruskortur
og oft er ekki hægt að kaupa mat í
höfuðborginni svo dögum skiptir
vegna bardaga. Reglulega verður
rafmagnslaust.
Átökin standa nú á milli Haft-
ars og sveita Fayez Sarrajs for-
sætisráðherra. Ekki er langt síðan
Haftar virtist eiga sigurinn vísan
og sveitir hans voru við það að
leggja Trípolí undir sig. Nú hefur
taflið hins vegar snúist og er það
einkum vegna inngrips Tyrkja.
Katarar og Ítalir styðja einnig
Sarraj og hann nýtur viðurkenn-
ingar Sameinuðu þjóðanna sem
réttmætur leiðtogi landsins. Sam-
einuðu arabísku furstadæmin,
Rússar, Egyptar og Frakkar eru
hins vegar á bandi Haftars. Auk
Rússa hafa Sameinuðu arabísku
furstadæmin verið sérstaklega at-
kvæðamikil og er talið að þau hafi
gert minnst 850 loftárásir með
drónum og herþotum gegn stjórn
Sarrajs í fyrra.
Líklegt er að án afskipta að ut-
an væri stríðinu lokið. Málaliðar
og vopn streyma hins vegar inn í
landið. Bannið við að flytja þangað
vopn er bitlaust. Hermt er að
meira að segja embættismenn hjá
Sameinuðu þjóðunum lýsi því sem
brandara. Brot á því varðar ferða-
banni og frystingu eigna, en til
þessa hafa aðeins tveir eritrískir
smyglarar verið látnir finna fyrir
því.
Fyrir fjórum mánuðum var
reynt að stilla til friðar með því að
halda fund í Berlín þar sem
fulltrúar hinna stríðandi fylkinga
komu saman ásamt erlendum
stuðningsmönnum þeirra. Nú er
sá fundur að mestu gleymdur.
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, hefur átt mestan þátt í
að snúa átökunum Sarraj í vil. Í
fréttaskýringu í þýska tímaritinu
Der Spiegel er því lýst hvernig
hann hafi sent Sarraj vopn og liðs-
auka og sé á góðri
leið með að verða
leiðtogi landsins bak
við tjöldin. Hann hafi
fullvissað fundar-
menn í Berlín um að
hann myndi draga
sig í hlé frá Líbíu, en
aðeins fimm dögum
síðar hafi verið siglt
af stað með sendingu af skrið-
drekum frá Tyrklandi til Líbíu.
Hann hefur einnig sent dróna og
eldflaugavarnarkerfi þangað. Þá
hefur blaðið eftir stjórnarand-
stæðingum í Sýrlandi að allt að
7.000 Sýrlendingar séu á mála hjá
Erdogan í Líbíu. Tyrkir borgi
hverjum málaliða tvö þúsund doll-
ara í laun á mánuði og það sé
fimmfalt meira en uppreisnar-
menn í Sýrlandi fái. Um leið setji
þeir þrýsting á bandamenn sína í
Sýrlandi. Hver hersveit verði að
útvega 200 manns til að berjast í
Líbíu. Annars láti Tyrkir af stuðn-
ingi við þær.
Tyrkir og stjórn Sarrajs skrif-
uðu undir viljayfirlýsingu í
nóvember um að Tyrkir fengju að
nýta gaslindir í Miðjarðarhafi.
Það er því mikið undir og því má
bæta við að talið er að ekkert land
í Afríku búi yfir meiri olíu-
auðlindum. Þetta vakti ekki kátínu
hjá Evrópusambandinu. Þar hafa
einnig kviknað áhyggjur af að Er-
dogan, sem opnaði landamærin að
Grikklandi fyrir flóttamönnum á
dögunum, gæti reynt eitthvað
svipað í Líbíu. Innan Evrópusam-
bandsins er hins vegar ekki ein-
ing, ekki síst vegna þess að Ítalir
styðja einn og Frakkar annan í
átökunum.
Fréttaskýrendur veltu í vikunni
fyrir sér hvort Tyrkir og Rússar
hefðu gert með sér samkomulag
um að skipta Líbíu á milli sín. Til
marks um það var að á meðan
rússneskir málaliðar hörfuðu frá
átakasvæðum suður af höfuðborg-
inni gerðu liðsmenn Sarrajs lát á
loftárásum. Ef það er rétt gæti
verið að draga muni úr átökum.
Það er hins vegar alls ekki víst og
verður að teljast ósennilegt að
sátt verði um að Rússar og Tyrkir
skipti Líbíu á milli sín.
Jean-Yves Le Drian, utanríkis-
ráðherra Frakklands, talaði í vik-
unni um Sýrlandsvæðingu Líbíu
og hafði nokkuð til síns máls. Í
Sýrlandi ríkir pattstaða þar sem
engum hefur tekist að knýja fram
sigur og fjöldi ríkja reynir að hafa
áhrif á gang mála. Í Sýrlandi eru
engir góðir kostir, en sá versti er
að bardagar og blóðsúthellingar
haldi linnulaust áfram. Það sama á
við um Líbíu. Vitaskuld var Gad-
dafi enginn engill. Hann stjórnaði
landinu með grimmd og miskunn-
arleysi. Þú átt það sem þú brýtur,
sagði Colin Powell við George
Bush eldri þegar til greina kom að
halda sókninni áfram inn í Írak
eftir að íraski herinn hafði verið
hrakinn út úr Kúveit árið 1991.
Bush ákvað að láta staðar numið.
Það hefði mátt vera ljóst hvað það
þýddi að styðja uppreisnarmenn
gegn Gaddafi án þess að vilji væri
til þess að taka ábyrgð á eftir-
leiknum. Afleiðingarnar hafa ver-
ið skelfilegar.
Í Líbíu eru Tyrkir og
Rússar meðal þeirra
sem bítast um yfir-
ráð í styrjöld sem
engan endi virðist
ætla að taka}
Vígvöllur stórþjóða
N
ú hillir undir að ný lög um
menntasjóð námsmanna verði
samþykkt á Alþingi. Óhætt er
að segja að um stærsta hags-
munamál stúdenta síðustu
áratugi sé að ræða. Í umræðum um málið á
Alþingi í vikunni mátti heyra að þingmenn
allra flokka töldu nýja frumvarpið mikið
framfaraskref í meginatriðum, þó svo að sum-
ir hverjir vildu breyta einstaka liðum þess.
Það var ánægjulegt að heyra þá þverpólitísku
samstöðu sem hefur skapast um málið.
Löng fæðing
Núgildandi lög um LÍN eru frá árinu 1992.
Frumvarp um menntasjóð hefur verið lengi í
fæðingu en núgildandi lög um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna eru frá árinu 1992. Á
undanförnum árum hafa verið lögð fram tvö
frumvörp til heildarlaga um Lánasjóð íslenskra náms-
manna, vorið 2013, og 2016. Við gerð þessa frumvarps
voru athugasemdir sem bárust við bæði frumvörpin hafð-
ar til hliðsjónar. Leitast var við að koma til móts við þau
sjónarmið.
Réttlátara kerfi
Nýr menntasjóður námsmanna felur í sér aukið jafn-
rétti og gagnsæi í námsaðstoð ríkisins, fjárhagsstaða
námsmanna verður betri og skuldastaða að námi loknu
ræðst síður af fjölskylduaðstæðum. Námslán verða
greidd út mánaðarlega, ekki tvisvar á ári eins og nú er og
hætt verður að velja um verðtryggð eða óverðtryggð lán.
Endurgreiðsla hefst ári eftir að námi lýkur sem mun
minnka greiðslubyrði lánþega. Rúmlega 90 prósent lán-
þega munu koma betur eða jafn vel út úr nýja
kerfinu.
Styrkur með börnum
Meðal nýmæla í frumvarpinu er að sérstakur
stuðningur fæst nú með börnum, skattfrjáls
styrkur – ekki lán! Í fráfarandi kerfi voru sér-
stök lán veitt vegna framfærslu barna og voru
foreldrar í námi því skuldugri en barnlausir við
námslok. Fjölskylduaðstæður mega aldrei
koma í veg fyrir möguleika til menntunar. Sam-
bærilegur stuðningur verður fyrir meðlags-
greiðendur. Um gríðarlegt jafnréttismál er að
ræða. Við gildistöku verður Ísland fyrsta landið
í heiminum til þess að viðurkenna foreldrajafn-
rétti með þessum hætti og horfa hin norrænu
löndin nú til þessara breytinga hjá okkur.
Engir ábyrgðarmenn
Námsmenn eygja nú langþráða grundvallarbreytingu
á stuðningskerfi sínu. Ef fólk lýkur prófgráðu á til-
greindum tíma, þá getur það fengið styrk í formi 30% nið-
urfærslu höfuðstóls námsláns við námslok. Með þeim
kerfisbreytingum má gera ráð fyrir bættri náms-
framvindu námsmanna sem mun stuðla að betri nýtingu
fjármuna í menntakerfinu og aukinni skilvirkni í framtíð-
inni. Við gildistöku laganna falla niður ábyrgðir ábyrgð-
armanna á námslánum niður ef lánþegi er í skilum við
LÍN og ekki á vanskilaskrá.
Frumvarp um menntasjóð er í samræmi við það sem
gengur og gerist annars staðar á Norðurlöndum með
gegnsæjum beinum styrkjum og sjálfbæru lánakerfi.
Silja Dögg
Gunnars-
dóttir
Pistill
Samstaða um betra námslánakerfi
Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Óvissan um fjárhagsleg áhrifCovid-19 er mikil og ljóster að fjöldi íþróttafélagahefur orðið fyrir tjóni,“
segir Andri Stefánsson, sviðsstjóri
hjá Íþrótta- og Ólympíusambands Ís-
lands. Á dögunum greiddi sambandið
út tæpar 300 milljónir króna af þeim
450 sem ríkið veitti til íþróttahreyf-
ingarinnar til að mæta áhrifum far-
sóttarinnar. Allt íþróttastarf var fellt
niður um tíma, sem hafði víðtæk áhrif
á starfsemi og ekki síst á tekjuöflun
íþróttafélaga. „Það er í höndum aðal-
stjórna þeirra félaga sem stuðning
fengu að ráðstafa peningunum til
þeirra þátta sem hafa orðið fyrir
mestu tjóni. Leiðarljósið var að koma
fjármunum sem fyrst til félaga án
flókinna umsókna og pappírsvinnu.
Síðar í sumar verða svo greiddar út
150 milljónir króna til félaga, sér-
sambanda og íþróttahéraða, sem orð-
ið hafa af mikilvægum tekjupóstum
eða þurft að aflýsa stórum íþrótta-
mótum sem hafa verið burðarás í
starfi þeirra. Fyrstu umsóknir í þann
pott eru nú að berast, en umsókn-
arfrestur er til 15. júní næstkom-
andi,“ segir Andri.
KR tapað minnst 50 milljónum
Jónas Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri KR, telur að félagið
hafi tapað á bilinu 50-80 milljónum
króna vegna kórónuveirunnar. Áður
en samkomubann var sett á hafi
meistaralið félagsins í körfuknattleik
karla og kvenna verið á mikilli sigl-
ingu og stefnt í úrslitakeppnina og
karlaliðið keppt að því að ná í sjöunda
titilinn í röð. Þátttöku í útslitakeppn-
inni fylgi jafnan talsverðar auglýs-
ingatekjur og bakhjarlar gefi gjarnan
í með allan stuðning þegar vel gangi.
Fjölsóttir útslitaleikir skili einnig
mjög góðum aðgangseyri. Áætla
megi að tekjutapið í körfuboltanum
sé um 18 milljónir króna. – Um knatt-
spyrnuna sé það að segja að Ís-
landmótið í Pepsi Max-deildinni hefj-
ist ekki fyrr en 13. júní, en þá mætast
KR og Valur á Hlíðarenda. Skv. öllu
eðlilegu ættu nokkrar umferðir að
vera nú þegar að baki og verulega
muni um slíkt fyrir fjárhag KR, bæði
varðandi miðasölu og stuðning frá
fyrirtækjum.
„Við finnum vissulega velvilja
stjórnenda fyrirtækja að leggja okk-
ur lið en menn vilja eðlilega fara gæti-
lega í skuldbindingum eins og landið
liggur nú. Við væntum því þess að fá
aukinn stuðning í sumar. En í stóra
samhenginu get ég sagt að rekstrar-
umhverfi íþróttafélaganna er gjör-
breytt frá því sem var,“ segir Jónas.
Munar um Breiðabliksleik
„Mál hér eru í mikilli óvissu,“
segir Hörður Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Árbæjarfélagsins
Fylkis, um stöðuna þar. Fyrsti leikur
úrvalsdeildarliðs félagsins í knatt-
spyrnu kvenna á sumrinu verður 13.
júní, þegar lið Selfoss kemur í Árbæ-
inn. Þann 21. júní, daginn sem 200
manna reglan svonefnda gildir til,
mætast karlalið Fylkis og Breiðabliks
í Árbæ í leik þar sem hefði mátt búast
við 2.000 gestum. Í tvískiptri stúku á
Fykisvellinum er hægt að taka á móti
samtals 400 manns; það er aðeins 1/5
af því sem vænta hefði mátt.
„Leikurinn við Breiðablik hefði
orðið einn allra stærsti viðburður
sumarsins hjá okkur og tekjurnar
miklar. Auðvitað má þess vænta að
leyfilegur fjöldi gesta verði meiri þeg-
ar kemur lengra fram á sumarið, en
að undanförnu hefur allt farið úr
skorðum. Aðgangseyrir, sala veit-
inga, framlög og styrkir; þetta er allt
miklu minna en við gerðum ráð fyrir
svo munar milljónum. Þá þurfum við
á leikjum í sumar að efla gæslu og
halda aðskilnaði milli áhorfenda og
leikmanna til að fyrirbyggja smit-
hættu. Allt þetta gerir málin flóknari
í framkvæmd,“ segir Hörður.
Þrengri staða en ekki hrap
„Reksturinn hefur þyngst en
ekkert hrap. Flest fyrirtæki standa
enn með okkur, æfingagjöld hafa
haldið sér að mestu en viðburða-
tekjur tímabundið dottið út,“ segir
Viðar Halldórsson, formaður FH.
Rekstur félagsins er umfangs-
mikill, heildarveltan um 700 milljónir
króna í ár og því víða svigrúm til hag-
ræðingar, svo sem í almennum
rekstrarkostnaði og launagreiðslum
og þar hefur verið brugðist við.
„Ríkisaðstoðin kom sér vel og það ber
að þakka. Fjárhagur FH er því í
ágætu jafnvægi eins og er,“ segir Við-
ar.
Rekstur íþróttafélag-
anna er gjörbreyttur
Morgunblaðið/Hari
Knattspyrna Leikmenn KR og Fylkis á vellinum síðasta sumar. Öll íþrótta-
félög í landinu hafa þurft að stokka spilin og bregðast við þrengri fjárhag.
Jónas
Kristinsson
Hörður
Guðjónsson