Morgunblaðið - 30.05.2020, Side 48
elkomin
tur
w w w.i tr.i s
L augarnar í Reykjaví k
O
P N A R
LAUGARNAR
ERU
Höldumbilinu
S ý n u m hve r t ö ð r u t i l l i t s s e m i og v i rð u m 2 m e t r a
f ja rl æ gða rm ö rk i n a l l s s t a ða r þa r s e m m ögu l e g t e r
G e s t i r e r u á e i g i n á by r gð
Við erum öll almannavarnir
2m
Efni:viður er heiti sýningar sem verður opnuð í Hafnar-
borg í Hafnarfirði í dag. Er sýningin sett upp í tengslum
við HönnunarMars sem var frestað vegna veirufarald-
ursins en mun fara fram 24. til 28. júní.
Viður er á forgrunni á sýningunni, en á henni er teflt
saman hönnuðum og listafólki með mismunandi bak-
grunn og ólíkar áherslur í myndmáli, sem öll eiga það
þó sammerkt að vinna með og kljást við viðinn í einni
eða annarri mynd. Meðal sýnenda eru Aðalheiður S. Ey-
steinsdóttir, Guðjón Ketilsson, Rósa Gísladóttir, Sindri
Leifsson, Tinna Gunnarsdóttir og Unndór Egill Jónsson.
Sýning með verkum listamanna og
hönnuða sem vinna með viðinn
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson er á leiðinni aftur
í atvinnumennskuna eftir að hafa hætt í handbolta fyrir
tæpu ári. Hann lenti í bílslysi veturinn 2018 og í kjölfar
þess að hafa glímt við erfið meiðsli í baki vegna þess
ákvað hann að leggja skóna á hilluna í fyrrasumar eftir
að hafa varið mark Stjörnunnar í Garðabænum frá
2016. Nú er hann hins vegar að ganga í raðir þýska
B-deildarfélagsins Aue sem hann spilaði með á árunum
2012 til 2016 og verður því annar tveggja Íslendinga
sem spila með liðinu næsta vetur. »40
Sveinbjörn undrandi þegar hans
gamla félag setti sig í samband
ÍÞRÓTTIR MENNING
hefur verið mjög gefandi. Það er í
raun mikill heiður að fá að aðstoða
fólk á svona stundum og geta orðið
að liði. Maður velur ekki alltaf hlut-
verkin í lífinu en ég er þakklát fyrir
að hafa fengið þetta hlutverk.
Vegna starfsins höfum við kynnst
betur fólki sem við þekktum og
eignast nýja vini.“
María leggur áherslu á að
útfararþjónusta sé mjög mikilvæg.
Aðstandendur upplifi alltaf erfiðar
stundir í kjölfar andláts, þeir hafi
um margt að hugsa, viti oft ekki
hvernig og hvert eigi að snúa sér
og öll aðstoð komi sér því vel. „Við
fundum þetta vel, vorum fólki innan
handar og eftir að skipulögð
útfararþjónusta byrjaði sáum við í
raun um allt.“ Hún bætir við að
starfsemin hafi ekki einskorðast við
Borgarnes og nánasta umhverfi
heldur teygt anga sína vestur í
Dali, í Reykhólasveit, á sunnanvert
Snæfellsnes og jafnvel til Reykja-
víkur. „Við höfum séð um útfarir í
um 40 kirkjum og kapellum.“
Þó að hjónin séu hætt með
útfararþjónustuna eru þau ekki
lögst í kör. María hefur verið mikið
í félagsmálum, er meðal annars for-
maður kvenfélagsins og hefur
stjórnað félagsvist fyrir almenning
um árabil, og segist halda áfram á
þeim vettvangi. „Svo bætist alltaf
við í barnabarnahópinn og ég vona
bara að heilsan haldi svo að hægt
verði að njóta lífsins áfram.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Hreggviður Hreggviðsson
og María Jóna Einarsdóttir hafa
annast útfararþjónustu í Borgar-
nesi í um aldarfjórðung. Fyrst með-
an þau unnu hjá Borgarneskirkju
og Borgarneskirkjugarði en eftir að
þau hættu þar tóku þau við rekstr-
inum. Viðar Guðmundsson og Ingi-
björg Sigurðardóttir, sem reka
Strandir útfararþjónustu á Hólma-
vík, hafa nú keypt húsnæði, bíl og
búnað af þeim.
„Viðar ólst upp og bjó lengi
hérna í héraðinu, einnig stjórnar
hann þremur kórum á svæðinu og
þekkir því vel til hér um slóðir,“
segir María um söluna. „Svona
þjónusta er ekki fyrir alla, en hún
er nú komin í góðar hendur.“
Eitt leiddi af öðru
Hreggviður byrjaði sem með-
hjálpari í Borgarneskirkju 1986.
Það þróaðist fljótlega í fullt starf
með kirkju- og kirkjugarðsvörslu.
María hóf skrifstofustörf hjá kirkj-
unni um fjórum árum síðar. Hún
bendir á að á þessum árum hafi
ekki verið nein útfararþjónusta í
Borgarnesi.
„Þörf var fyrir þessa þjónustu,
við byrjuðum með því að aðstoða
við kaup á kistum, innheimta fyrir
kórinn og svo framvegis og smám
saman þróuðum við útfararþjónustu
sem starfsmenn kirkjunnar,“ rifjar
hún upp. Um áramótin 1996/1997
hafi Útfararþjónusta Borgarfjarðar
verið stofnuð á vegum kirkjugarðs-
ins, sem þau störfuðu jafnframt
hjá. Sóknarnefndin hafi óskað eftir
að þau tækju við þjónustunni þegar
María hætti hjá kirkjunni 2005. „Til
að byrja með var maðurinn minn
aðalmaðurinn en hann varð að
hætta vegna heilsuleysis fyrir um
tveimur árum og síðan hef ég verið
ein í þessu með aðstoð dóttur
minnar.“
Tilviljun réð því að þau réðust til
kirkjunnar. María segir að Hregg-
viður hafi lengi verið á sjónum en
eftir að þau kynntust hafi hann
flutt frá Reykjavík til Borgarness.
Fljótlega hafi hann byrjað í kirkju-
kórnum og nokkrum árum síðar
verið beðinn um að vera meðhjálp-
ari. „Eitt leiddi af öðru og starfið
Þjónustan mikilvæg
Hafa séð um útfarir í um 40 kirkjum og kapellum
Ljósmynd/Björn Bjarki Þorsteinsson
Útfararþjónusta María Jóna Einarsdóttir og Hreggviður Hreggviðsson.