Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 20208
Reglugerðar-
breyting í þágu
sykursjúka
LANDIÐ: Reglugerð sem
kveður á um greiðsluþátt-
töku sjúkratrygginga í nýj-
um búnaði fyrir sykursjúka
með insúlínháða sykursýki
tók gildi 1. janúar síðast-
liðinn. Búnaðurinn hefur
til þessa ekki staðið til boða
sjúklingum með sykursýki
hér á landi. Með reglugerð-
inni er einnig kveðið á um
aukinn rétt fólks sem er ný-
greint með sykursýki til nið-
urgreiddra blóðstrimla til
blóðsykursmælinga. -mm
Árekstur í hálku
SNÆFELLSBÆR: Á öðr-
um degi jóla varð umferð-
arslys á útnesvegi á Snæ-
fellsnesi við Grísafoss þegar
tveir bílar rákust saman. Til-
drög slyssins voru þau að bif-
reið staðnæmdist í brekku,
þar sem hún dreif ekki upp
sökum hálku. Annarri bif-
reið var ekið niður brekkuna
og rann hún til í hálkunni
og á kyrrstæða bílinn. Einn
kenndi sér eymsla í hálsi og
mjóbaki eftir áreksturinn. Sá
var fluttur með sjúkrabíl til
Ólafsvíkur.
Bílvelta á
Holtavörðu-
heiði
BORGARBYGGÐ: Bíll
valt sunnarlega á Holta-
vörðuheiði stuttu eftir kl.
15:00 laugardaginn 28. des-
ember síðastliðinn. Öku-
maður á leið suður Vestur-
landsveg missti stjórn á bif-
reiðinni í þæfingi og hálku,
með þeim afleiðingum að
bíllinn hafnaði utan vegar
og endaði á hliðinni. Öku-
maður og farþegi voru flutt-
ir með sjúkrabíl í Borgarnes,
en voru ekki taldir alvar-
lega slasaðir. Kalla þurfti til
kranabifreið til að fjarlægja
bílinn. -kgk
Grunsamlegir
iðnaðarmenn
BORGARBYGGÐ: Lög-
reglunni á Vesturlandi var
tilkynnt um grunsamlega
menn á ferð við sumarhúsi
við Helluskóga í Borgar-
byggð kl. 9 að morgni mánu-
dagsins 30. desember. Sást
til þriggja manna með höf-
uðljós að sniglast í kringum
sumarbústaðinn. Lögregla
kannaði málið og kom þá í
ljós að mennirnir reyndust
vera iðnaðarmenn að störf-
um. -kgk
Datt í hálku
BORGARBYGGÐ: Karl-
maður á áttræðisaldri féll í
hálku fyrir utan Arion banka
við Digranesgötu í Borgar-
nesi um kl. 14:30 mánudag-
inn 30. desember. Maðurinn
gat ekki staðið upp og hafði
legið í götunni í smá stund
þegar einhver varð hans var.
Var hann því orðinn örlít-
ið kaldur, en slapp óbrotinn.
Hann var fluttur á heilsu-
gæslustöðina í Borgarnesi til
læknisskoðunar.
-kgk
Hefðbundin verk-
efni á jólum
VESTURLAND: Verkefni Lög-
reglunnar á Vesturlandi voru að
mestu leyti hefðbundin yfir jól-
in. Töluvert var um of hraðan
akstur í umdæminu, að sögn lög-
reglu. Einnig var nokkuð um til-
kynningar um athugavert aksturs-
lag yfir hátíðirnar og kannaði lög-
regla hvort fólk hefði nokkuð ekið
undir áhrifum heim úr jólaboðum.
Aðfararnótt jóladags kl. 4:30 var
ökumaður stöðvaður og reyndist
hann aka eftir að hafa verið svipt-
ur ökuréttindum. Reyndist bifreið-
in sem hann ók enn fremur vera
ótryggð. Föstudaginn 27. desemb-
er um kl. 23 var ökumaður í um-
dæminu stöðvaður fyrir of hraðan
akstur. Reyndist hann enn frem-
ur vera án ökuréttinda og undir
áhrifum ólöglegra ávana- og fíkni-
efna. Á gamlárdag fjarlægði lög-
regla skráningarnúmer af óskoð-
uðum bíl í Borgarnesi, sem enn
fremur var ólöglega lagt. Að öðr-
um kosti fóru hátíðirnar að mestu
friðsamlega fram, fyrir utan heim-
ilisofbeldismálið sem greint er frá
hér í annarri frétt og auðvitað leit
að göngumanni á Heydal. Hef-
ur sú leit verið áberandi í verkefn-
um lögreglu undanfarið og enn er
verið að vinna að henni þegar þessi
orð eru rituð. -kgk
Ofbeldi á jóladag
VESTURLAND: Tilkynnt var
um heimilisofbeldi í umdæminu
á jóladagsmorgun kl. 11:00. Lög-
regla fór á staðinn og handtók
mann, færði hann til yfirheyrslu
auk þess sem skýrslur voru tekn-
ar. Málið er til rannsóknar og hef-
ur jafnframt verið tilkynnt barna-
verndaryfirvöldum. Þá var lögreglu
sömuleiðis tilkynnt um heimilisó-
frið í sumarhúsi 30. desember síð-
astliðinn. -kgk
Áramótaaflatölur
fyrir Vesturland
28. desember - 3. janúar
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu
Akranes: 1 bátur.
Heildarlöndun: 10.110kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 10.110 kg
í tveimur róðrum.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 3 bátar. Heild-
arlöndun: 135.985 kg.
Mestur afli: Runólfur SH:
50.566 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 11 bátar.
Heildarlöndun: 63.581 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 13.784
kg í þremur róðrum.
Rif: 8 bátar.
Heildarlöndun: 95.166 kg.
Mestur afli: Gullhólmi SH:
22.956 kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 2.728 kg.
Mestur afli: Kristborg SH: 1.530
kg í einum róðri.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Runólfur SH - GRU: 50.566
kg. 30. desember.
2. Farsæll SH - GRU: 46.409
kg. 30. desember.
3. Sigurbjörg SH - GRU:
39.010 kg. 30. desember.
4. Særif SH - RIF: 15.613 kg.
28. desember.
5. Gullhólmi SH - RIF: 13.329
kg. 30. desember. -kgk
Á föstudag fyrir jól kom upp eld-
ur í vélarrúmi Runólfs SH þar sem
skipið lá við bryggju í Grundarfirði.
Eldurinn kviknaði út frá litlum
mótor í vélarrúmi skipsins. Slökkvi-
lið Grundarfjarðar var kallað á vett-
vang, en búið var að slökkva með
duftslökkvitæki þegar það kom á
staðinn.
tfk
Kraftur hvetur alla sem eru búsettir
á Akranesi og nágrenni til að perla
með sér nýtt „Lífið er núna“ arm-
band í dag, miðvikudaginn 8. janú-
ar. Kraftur mun þá leggja leið sína
í bæjarfélagið og verður í Grunda-
skóla milli klukkan 16:30 og 20:00.
„Armböndin sem um ræðir eru í
sannkölluðum norðurljósalitum og
eru sérstök afmælisarmbönd í til-
efni 20 ára afmæli Krafts. Arm-
böndin eru með áletruninni „Líf-
ið er núna“ og eru auðveld í sam-
setningu svo að allir geta tekið
þátt, börn sem fullorðnir. Þetta er
skemmtileg stund fyrir alla fjöl-
skylduna og tilvalið tækifæri að
láta gott af sér leiða. Með því að
taka þátt í viðburðinum er fólk að
hjálpa Krafti að standa við bakið á
ungu fólki sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendum þar
sem armböndin eru seld til styrkar
félaginu,“ segir í tilkynningu.
Öll armböndin eru perluð í sjálf-
boðavinnu og því mikil hugsjón
lögð í hvert armband. Norður-
ljósaarmböndin eru einnig seld í
vefverslun félagsins www.kraftur.
org/vefverslun en þau eru seld í
takmörkuðu upplagi í tilefni af 20
ára afmæli Krafts, félags ungs fólks
sem greinst hefur með krabbamein
og aðstandendur. mm
Fjöldi björgunarsveitafólks hefur
á liðnum dögum tekið þátt í um-
fangsmikilli leit að karlmanni á
sextugsaldri sem talinn er týndur
í Hnappadal á Snæfellsnesi. Hann
heitir Andris Kalvans, Letti bú-
settur hér á landi. Eftirgrennslan
og leit hófst mánudagskvöldið 30.
desember eftir að bíll mannsins
fannst yfirgefinn í vegarkanti milli
bæjanna Mýrdals og Heggsstaða.
Talið var líklegast að Andris hafi
farið í fjallgöngu á svæðinu, enda
er hann vanur fjallgöngumaður.
Að beiðni Lögreglunnar á Vestur-
landi voru björgunarsveitir kallað-
ar út síðdegis 30. desember. Leit-
in var fjölmennust þá um kvöld-
ið og fram á aðfararnótt gamlárs-
dags og síðan aftur dagana 2. og
3. janúar eftir því sem veðurað-
stæður leyfðu. Komu leitarhópar
Landsbjargar af Vesturlandi, höf-
uðborgarsvæðinu, Suðurnesjum
og Húnavatnssýslu. Leitarsvæðið
hefur einkum beinst að Heydal og
nærliggjandi svæðum.
Björgunarsveitir hafa án árang-
urs leitað á landi og skipað sér
niður í hópa ýmist í sérhæfðum
gönguhópum eða fjallabjörgunar-
hópum þegar farið hefur verið um
mesta brattlendið. Þá hefur verið
reynt að notast við dróna en það
gengið misvel sökum kulda og
hvassviðris. Einnig hafa sérhæfð-
ir leitarhundar verið með í för og
þyrla Landhelgisgæslunnar hefur
einnig flogið yfir. mm
Perlað af Krafti á Akranesi í dag
Eldur út frá mótor í vélarrúmi Runólfs
Andris Kalvans er 57 ára Letti búsettur
hér á landi.
Víðtæk leit að manni í Hnappadal
Aðstæður að kvöldi 30. desember voru erfiðar til leitar. Ljósm. Landsbjörg.