Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 202026
Fjölmenni var mætt í Hjálmaklett
í Borgarnesi síðastliðinn sunnudag
þegar uppskeruhátíð íþróttafólks
fór þar fram á vegum Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar. Auk þess
sem kjöri Íþróttamanns Borgar-
fjarðar var lýst, veittu nokkur að-
ildarfélög UMSB og hestamanna-
félagið Borgfirðingur viðurkenn-
ingar. Einnig voru veitt verðlaun úr
Minningarsjóði Auðuns Hlíðkvist
Kristmarssonar.
Bjarki Pétursson golfari var kjör-
inn Íþróttamaður Borgarfjarð-
ar árið 2019. Bjarki stóð sig vel á
árinu en hann var í sigurliði Kent
State í Mid-American Conference
2019. Hann spilar fyrir hönd Ís-
lands á Evrópumóti einstaklinga
og liða í Austurríki og í Svíþjóð.
Bjarki var sá áhugamannakylfing-
ur sem var á besta skori í atvinnu-
mannamóti í Finnlandi sem er á
vegum Nordic League mótaraðar-
innar. Bjarki er einnig einn fimm
Íslendinga sem hafa unnið sér inn
keppnisrétt í Challange Tour móta-
röðinni. Hann var eini áhugakylf-
ingurinn í heiminum árið 2019 sem
komst í gegnum 2. stig og spilaði
á 3. stigi fyrir Evrópumótaröðina
í golfi. Um er að ræða sterkustu
mótaröð í Evrópu og næst sterk-
ustu í heiminum.
Kjörið á íþróttmanni Borgar-
fjarðar var spennandi þar sem afar
litlu munaði á stigum milli íþrótta-
manna. Alls voru tíu íþróttamenn
tilnefndir og röðuðust fimm efstu
sætin þannig:
1. Bjarki Pétursson - golf
2. Alexandrea Rán Guðnýjardóttir
- kraftlyftingar
3. Bjarni Guðmann Jónsson -
körfuknattleikur
4. Helgi Guðjónsson - knattspyrna
5. Brynjar Snær Pálsson – knatt-
spyrna
Aðrir sem tilnefndir voru í staf-
rófsröð: Birgitta Dröfn Björns-
dóttir fyrir dans, Guðrún Kar-
ítas Hallgrímsdóttir fyrir frjálsar
íþróttir, Kristín Þórhallsdóttir fyrir
kraftlyftingar, Randi Holaker fyr-
ir hestaíþróttir og Sigursteinn Ás-
geirsson fyrir frjálsar íþróttir. Minningarsjóður
Einnig var viðurkenning úr minn-
ingarsjóði Auðuns Hlíðkvist Krist-
marssonar afhent. Í ár var það Al-
mar Orri Kristinsson körfubolta-
piltur í Borgarnesi sem hlaut þá við-
urkenningu. Foreldrar Auðuns, þau
Kristmar Ólafsson og Íris Bjarna-
dóttir afhentu Almari farandbik-
ar og eignarbikar, en þetta var í 25.
skipti sem Auðuns er minnst með
úthlutun úr styrktarsjóðnum, en
Auðunn var afar efnilegur íþrótta-
maður þegar hann lést í bílslysi 14
ára gamall.
Aðrar viðurkenningar
Maraþonbikarinn fékk Ingveldur
Herdís Ingibergsdóttir, Inga Dísa,
fyrir gott maraþonhlaup á árinu
2019.
Hestamannafélagið Borgfirðing-
ur afhenti Kolbrúnu Kötlu Hall-
dórsdóttur sérstaka viðurkenn-
ingu félagsins fyrir góðan árangur
á árinu 2019 en hún komst á verð-
launapall á flestum þeim mótum
sem hún keppti á á árinu.
Auk þess veittu aðildarfélög-
in Umf. Íslendingur, Umf. Reyk-
dælir og frjálsíþróttafélag UMSB
íþróttafólki sínu viðurkenningar
og verðlaun. Íþróttamaður Umf.
Íslendings er dansarinn Birgitta
Dröfn Björnsdóttir, Íþróttamað-
ur Umf. Reykdæla er Lisbeth Inga
Kristófersdóttir og Frjálsíþrótta-
félag UMSB veitti Sigursteini Ás-
geirssyni viðurkenningu sem frjáls-
íþróttamaður ársins. mm
Jakob Svavar Sigurðsson, hestaíþróttamaður úr Hestamanna-
félaginu Dreyra, er Íþróttamaður Akraness 2019. Valdís Þóra
Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, varð önnur í
kjörinu og Alexander Örn Kárason, kraftlyftingamaður úr
Kraftlyftingafélagi Akraness, hreppti þriðja sætið. Kjörinu
var að venju lýst við hátíðlega athöfn að kvöldi þrettándans,
mánudaginn 6. janúar síðastliðinn.
Jakob Svavar hefur verið í fremstu röð íslenskra hesta-
manna um árabil, margoft orðið Íslandsmeistari og auk þess
hampað heimsmeistaratitli. „Jakob er agaður keppnismaður
en þó ávallt prúður og til fyrirmyndar. Hann hlaut mörg verð-
laun á árinu fyrir góða reiðmennsku og prúðmennsku. Jakob
sýnir hesta sína af öryggi og hefur fumlaust og létt taumsam-
band við hrossin sem undirstrikar hæfileika hestsins,“ sagði
Hallbera Jóhannesdóttir, sem kynnti íþróttafólk ársins til leiks
áður en greint var frá kjörinu og María Mist Guðmundsdótt-
ir afhenti honum Friðþjófsbikarinn. Bikarinn er gefinn til
minningar um Friðþjóf Arnar Daníelsson af móður hans og
systkinum. Var hann nú afhentur í 29. skiptið. María Mist af-
henti bikarinn fyrir hönd fjölskyldunnar, en hún er langaf-
abarn Helga Daníelssonar, bróður Friðþjófs.
Kjörið á Íþróttamanni Akraness fer sem fyrr þannig fram
að hvert íþróttafélag innan vébanda Íþróttabandalags Akra-
ness tilnefnir sína fulltrúa. Þeir sem hlutu tilnefningu að þessu
sinni eru, í stafrófsröð:
Alexander Örn Kárason, kraftlyftingamaður ársins
Andri Júlíusson, knattspyrnumaður Kára
Brynhildur Traustadóttir, sundmaður ársins
Chaz Malik Franklin, körfuknattleiksmaður ársins
Drífa Harðardóttir, badmintonmaður ársins
Emma Rakel Björnsdóttir, íþróttamaður Þjóts
Fríða Halldórsdóttir, knattspyrnukona ársins
Jakob Svavar Sigurðsson, hestaíþróttamaður ársins
Jóhann Ársæll Atlason, keilumaður ársins
Kristrún Bára Guðjónsdóttir, karatemaður ársins
Óttar Bjarni Guðmundsson, knattspyrnumaður ársins
Sóley Brynjarsdóttir, fimleikamaður ársins
Stefán Gísli Örlygsson, skotmaður ársins
Sylvía Þórðardóttir, klifrari ársins
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur ársins
Var þetta í annað sinn sem Jakobi Svavari hlotnast heið-
ursnafnbótin Íþróttamaður Akraness, en hann varð einnig
efstur í kjörinu árið 2013. Valdísi Þóru Jónsdóttur hefur oft-
ast hlotnast sá heiður, eða sjö sinnum en næstar á eftir henni
koma sundkonurnar Ragnheiður Runólfsdóttir og Kolbrún
Ýr Kristjánsdóttir, sem báðar voru sex sinnum efstar í kjör-
inu.
Íþróttamaður Akraness var nú valinn í 45. sinn. Fyrst var
kosið árið 1965, næst árið 1972 og síðan hefur það verið gert
árlega frá 1977. Konur hafa 22 sinnum orðið efstar í kjörinu
en karlar einu sinni oftar, eða 23 sinnum að kjörinu nú með-
töldu.
Sundfélag Akraness er sigursælast aðildarfélaga ÍA með 21
titil, Golfklúbburinn Leynir kemur þar á eftir með 11 titla og
fulltrúar knattspyrnufélags ÍA hafa tíu sinnum fagnað sigri.
Styrkir vegna Íslands- og bikarmeistara
Akraneskaupstaður veitti á athöfninni sérstaka styrki og
viðurkenningar þeim aðildarfélögum ÍA sem eignuðust Ís-
lands- og/eða bikarmeistara í efstu deildum á liðnu ári. Það
var Ragnar Baldvin Sæmundsson, fultrúi skóla- og frístunda-
sviðs, sem afhenti forsvarsmönnum félaganna styrkina. Ágúst
Júlíusson, formaður Sundfélags Akraness, Einar Örn Guðna-
son, formaður Kraftlyftingafélags Akraness og Kolbrún Pét-
ursdóttir, formaður Badmintonfélags Akraness, veittu styrkj-
unum viðtöku fyrir hönd sinna félaga. kgk
Jakob Svavar er Íþróttamaður Akraness 2019
Íþróttamenn ársins sem tilnefndir voru af aðildarfélögum innan
vébanda ÍA, eða fulltrúar þeirra, ásamt Marellu Steinsdóttur, for-
manni ÍA.
Jakob Svavar Sigurðsson, Íþróttamaður Akraness 2019, tekur við
Friðþjófsbikarnum úr hendi Maríu Mistar Guðmundsdóttur.
Jakob Svavar Sigurðsson, Íþróttamaður Akraness 2019.
Bjarki er Íþróttamaður Borgarfjarðar 2019
Ólafur Flosason formaður hesta-
mannafélagsins Borgfirðings afhenti
Kolbrúnu Kötlu Halldórsdóttur
sérstaka viðurkenningu fyrir góðan
árangur í hestaíþróttum.
Tíu efstu í valinu á Íþróttamanni Borgarfjarðar 2019. Bjarki Pétursson golfari fremst í miðju.
Almar Orri Kristinsson fékk verðlaun úr Minningarsjóði Auðuns Hlíðkvist Krist-
marssonar. Hér er Almar Orri ásamt Kristmari.