Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 9 Hallsteinssalur er í Safnahúsi, að Bjarnarbr. 4-6 í Borgarnesi. Opið til kl. 16 á opnunardaginn og eftir það 13-18 virka daga. Ókeypis aðgangur. Safnahús Borgarfjarðar 433 7200 - www.safnahus.is safnahus@safnahus.is Sýning á vatnslitaverkum í Hallsteinssal 11. janúar 2020 - 18. febrúar 2020 Sýningin verður opnuð laugardaginn 11. janúar kl. 13.00. Hópinn Flæði skipa átta konur sem lagt hafa stund á myndlist, hittast reglulega og mála saman. Sameiginlegur bakgrunnur er úr Myndlistarskóla Kópavogs. Þær eru: Fríða Björg Eðvarðsdóttir, Guðrún Steinþórsdóttir, Rósa Traustadóttir, Sesselja Jónsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Svanheiður Ingimundardóttir, Þorbjörg Kristinsdóttir og Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir. Verið velkomin! Flæði Þaktúður• Hurðastál• Áfellur• Sérsmíði• Viðgerðir• Málmsuða• www.blikkgh.is • blikkgh@blikkgh.is • Akursbraut 11b • 431-2288 SK ES SU H O R N 2 02 0 Bæjarstjórnarfundur 1305. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar- þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 14. janúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Framsókn og frjálsir í Frístundamiðstöðinni, • laugardaginn 11. janúar kl. 10:30. Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18 • laugardaginn 11. janúar kl. 10:30. Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, • laugardaginn 11. janúar kl. 10:30. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Eins og fram kom í frétt Skessu- horns síðla í nóvember, kvað Hér- aðsdómur Vesturlandi upp úrskurð í máli íslenska ríkisins gegn land- eigendum á Arnarvatnsheiði. Rík- ið höfðaði málið og beindi kröfu sinni gegn Sjálfseignarstofnun um Arnarvatnsheiði og Geitlandi ann- ars vegar en hins vegar eigendum Kalmanstungu I og II. Gerði ríkið kröfu um að felldur yrði úr gildi úr- skurður óbyggðanefndar nr. 4/2014 þess efnis að Arnarvatnsheiði, Geitland ásamt Langjökli tilheyrði sjálfseignarstofnuninni og landeig- endum Kalmanstungu I og II. Þá krafðist ríkið þess jafnframt að við- urkennt yrði fyrir dómi að land- svæðið yrði túlkað sem þjóðlenda. Héraðsdómur Vesturland sýkn- aði landeigendur af öllum kröfum ríkisins. Málskostnaður var felldur niður og allur gjafsóknarkostnaður skal greiðast úr ríkissjóði. Fjármálaráðherra, fyrir hönd Ríkissjóðs, hafði mánuð til að áfrýja dómnum til æðra dómsstigs. Sam- kvæmt heimildum Skessuhorns nýtti hann sér það ekki fyrir tilskil- inn frest 22. desember sl. Dómur héraðsdóms stendur því sem loka- niðurstaða í málinu. Í honum kem- ur meðal annars fram fram að stað- fest er að Eiríksjökull er nú sem fyrr allur í eigu Kalmanstungu I og II og er þannig einn af fáum jöklum hér á landi í einkaeigu. mm Umsóknarfrestur um starf sveit- arstjóra í Borgarbyggð rann út 28. desember síðastliðinn. Að sögn Lilju Bjargar Ágústsdóttur, starf- andi sveitarstjóra, bárust 18 um- sóknir um starfið en þrír drógu umsagnir sínar til baka í kjölfar þess að byggðarráð ákvað í síðustu viku að birta nöfn umsækjenda. Það er ráðningarstofan Intellecta sem hefur umsjón með áfram- haldi ráðningarferlis í samráði við sveitarstjórn. Næsta skref verð- ur að ákveða hvaða umsækjenda verða kallaðir í viðtöl. Stefnan er að nýr sveitarstjóri hefji störf eigi síðar en 1. mars næstkomandi. „Það er einkar ánægjulegt að okkur bárust margar mjög flottar umsóknir um starfið. Þessi mikli áhugi endurspeglar að mínu áliti að fólk hefur trú á framtíðinni hér í Borgarbyggð. Það eru ýmsar já- kvæðar breytingar sem eru að eiga sér stað. Til að mynda er íbúum í dreifbýli að fjölga öndvert við flest önnur dreifbýlissvæði lands- ins. Þá má rekja vöxt til ýmissa breytinga sem miðað hafa að því að gera sveitarfélagið þjónustu- miðaðra. Hér var framkvæmt fyrir tæpan milljarð á síðasta ári án þess að taka ný lán. Batnandi fjárhagur og íbúaþróun gefur því vísbend- ingu um að það séu spennandi tímar framundan í sveitarfélaginu og umsækjendafjöldinn endur- speglar það,“ segir Lilja Björg. Umsækjendur um starf- ið eru í stafrófsröð: Aðalsteinn Júlíus Magnússon, framkvæmdastjóri Árni Hjörleifsson, oddviti Skorradalshrepps. Ásgeir Sæmundsson, rafvirki Bjarni Ó Halldórsson, rekstrarhagfræðingur Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur Eva Hlín Alfreðsdóttir, verkefnastjóri Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, forstöðumaður Guðni Halldórsson, framkvæmdastjóri Hafdís Vala Freysdóttir, forstöðumaður Jón Fannar Guðmundsson, sérfræðingur Ólafur Kjartansson, viðskiptastjóri Umsækjendur um stöðu sveitarstjóra Borgarbyggðar Sæmundur Ásgeirsson, verkstjóri Þorsteinn Valur Baldvinsson, jarðvinnuverkstjóri Þórdís Sif Sigurðardóttir, sviðsstjóri Þórólfur Árnason, verkfræðingur. mm Fjármálaráðherra áfrýjaði ekki héraðsdómi um Arnarvatnsheiði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.