Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 27 Krossgáta Skessuhorns Bæta Skýli Flan Leti Egna Bindi Pípa Óhóf Froða Tónn Ferð Friður Sýl Dvelja Átt Þráður Mynni Þekkt Hrím Siga Leðja Stamp- ur Brúskur Hrær- ingur Kvað 2 5 Til Kona Samhlj. Tónn Grugg A um R Yfir- höfn Kvaka Nóa Rimla- kassi Spurn Ótti Stafina Kvísl Skinn Kúst Ljósker 8 Valdi Sé Sefa Háð Þvaga Slark Kvað Spýta Pappírs- hlíf Þófi Dyr Stofur Galsi Gróður Irrin Kusk Ískra Bók Efni Æti Kennir Ð - a Lita 3 Dyggur 9 Grín Hár Röskur Samtök Spil Étandi Tölur Vein Reikar Hleypur 1000 Sjár Karl Svall 6 Róta Fegruð Þegar Sigti Tónn Nálægð Op Einnig 7 Aumt Trjónur Vitund Tíndi Málmur Sniðug- ur 4 Hrekkir Sk.st. Þófi Þegar Leir Hlífir Samhlj. 1 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vak- in á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@ skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birt- ist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bók að launum. Lausn á krossgátu í Jólablaði Skessuhorns verður ekki birt fyrr en í næstu viku. Við hvetjum fólk til að senda inn lausnir, sömuleiðis lausnir á Myndagátunni. Fáir hafa lifað jafn skipulegu lífi og öðlingurinn Magnús Óskarsson. Tilviljun réði fáu um skref hans, flest voru þau ákveðin og und- irbúin af fyrirhyggju enda varð ævi hans afburða farsæl. Magnús helg- aði Hvanneyrarskóla alla starfs- ævi sína. Þar lauk hann fagnámi sínu og þangað sneri hann til starfa að framhaldsnámi erlendis loknu. Þeim störfum má skipta í þrennt og mundi hver hluti duga til sem ævi- starf meðalmanns og efni í væna bók: kennarinn, fræðimaðurinn og svo allt hitt. Kennslugreinar Magnúsar voru efnafræði og ýmsar greinar jarð- ræktar. Hann var ákaflega áhuga- samur og hugkvæmur kennari og ófáar sögur lifa um brellur hans og kennsluhætti. Margir búfræðing- ar hafa það til dæmis enn á hreinu hvernig vatnssameind lítur út eft- ir að Magnús lét þá sem nemend- ur leika hana. Námsefnið var mat- reitt skipulega og fram borið við hæfi þeirra er neyta skyldu en hæfið skynjaði Magnús flestum betur. Magnús var um árabil tilrauna- stjóri skólans og stóð þá fyrir um- fangsmikilli og fjölbreyttri rann- sóknastarfsemi. Hann gerði sér sér- stakt far um að fylgjast vel með á sínu fagsviði, leitaði endurmennt- unar og sótti fjölþjóða ráðstefnur. Rannsóknaverkefnin snerust eink- um um brýn úrlausnarefni í jarð- rækt. Með félaga sínum, Þorsteini Þorsteinssyni lífefnafræðingi, tókst Magnúsi til dæmis með tilraunum og mælingum á næringu jarðvegs og heyja í bland við erlenda ný- þekkingu og með faglegri heild- arsýn í samvinnu við glögga ná- grannabændur að finna ráð til úr- bóta. Líka varpaði hann ljósi á mik- ilvægi fosfórs í næringu túna. Snemma setti að Magnúsi ugg um að ekki væri allt með felldu hvað snerti meðferð auðlinda og matvælaframleiðslu heimsins. Tímamótabók Rachel Carson, Si- lent Spring (1962), varð honum umhugsunar- og samræðuefni. Í glaumi daganna vöktu orð Magn- úsar lengi vel litla athygli, urðu jafnvel tilefni spaugs og flimtinga. Nú vitum við að Magnús varð með þeim fyrstu hérlendis til að vekja athygli á umhverfismálum, einkum hvað landbúnað snerti. Kemur þá að þeim kafla sem snún- astur er: Öllu hinu. Eitt er að hafa völd. Annað að hafa áhrif. Magnús hefði ekki þurft annað en setja nafn Magnús Óskarsson f. 9.7.1927 d. 28.12.2019 sitt undir viðeigandi bréf til þess að verða skólastjóri á Hvanneyri er sú staða losnaði árið 1972. Það hvarfl- aði þó varla að honum. Hógværð- in varð nefnilega stundum að galla í fari hans. Yfirmenn Hvanneyrar- skóla á starfstíma Magnúsar áttu honum mikið að þakka. Hann var löngum samviska stofnunarinnar, afskaplega næmur á anda starfsum- hverfisins og ráðhollur. Svei mér ef hann var ekki forvitri líkt og Njáll. Ráð hans dugðu enda betur en flestra annarra. Því urðu til þeir tímar í starfi Hvanneyrarskóla, ekki síst í andbyr, að Magnús var límið; bjálkinn sem bar. Sjálfur naut ég leiðsagnar Magn- úsar öll samstarfsár okkar á Hvan n- eyri og við fjölskyldan vináttu hans, hvort tveggja markað af einstökum heilindum og trausti. Til fárra var betra að leita ráða og með fáum var betra að hlæja að góðri sögu. Nú blessum við minningu hans og þökkum af alhug fræðandi, hvetj- andi og skemmtandi handleiðslu og samfylgd. Bjarni Guðmundsson Mynd tekin á afmælisári Bændaskólans á Hvanneyri 1989 af Magnúsi. Táknræn bending. Ljósm. Haukur Júlíusson. Magnús Óskarsson. Mynd tekin í á fjósloftinu 2015. Ljósm. Bjarni Guðmundsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.