Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 202014
Guðlaug við Langasand er handhafi
Umhverfisverðlauna Ferðamála-
stofu 2019. Verðlaunin voru veitt
við hátíðlega athöfn við Guðlaugu
síðdegis miðvikudaginn 18. des-
ember síðastliðinn. Það var Skarp-
héðinn Berg Steinarsson ferða-
málastjóri sem afhenti verðlaunin
og Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri veitti þeim viðtöku fyrir hönd
Akraneskaupstaðar.
Er þetta í 25. skipti sem Ferða-
málastofa stendur að útnefningu
umhverfisverðlaunanna, en þau
hafa verið veitt óslitið frá árinu
1995. Tilgangur verðlaunanna er
að beina athygli að þeim ferða-
mannastöðum eða ferðaþjónustu-
fyrirtækjum sem sinna umhverfis-
málum í starfi sínu og framtíðar-
skipulagi. Verðlaunin eru nú veitt í
fjórða sinn verkefni sem naut styrks
úr Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða.
Guðlaug við Langasand var
formlega tekin í notkun fyrir rétt
rúmu ári síðan, í byrjun desember
2018. Guðlaug er steinsteypt laug
á þremur hæðum, alls sex metra
hátt mannvirki staðsett á Langa-
sandi fyrir aftan áhorfendastúku
Akranesvallar og Aggapall. Efst er
útsýnispallur sem gengið er út á
af göngustígnum meðfram Langa-
sandi. Undir pallinum er stjórnher-
bergi og samsíða honum heit laug
sem vísar á móti sjónum með út-
sýni út á hafið. Önnur grynnri laug
er á neðstu hæðinni sem nýtir yfir-
fallið úr pottinum fyrir ofan. Á því
rétt rúma ári sem liðið er frá opnun
Guðlaugar hafa ríflega 30 þúsund
gestir baðað sig í lauginni, að því er
fram kom í máli Sævars Freys við
afhendingu verðlaunanna.
Upphafið að byggingu Guðlaug-
ar má rekja til þess þegar minn-
ingarsjóði í nafni Jóns Gunnlaugs-
sonar útvegsbónda og Guðlaug-
ar Gunnlaugsdóttur, húsmóður í
Bræðraparti á Akranesi, var slitið
árið 2014. Ákvað stjórn sjóðsins að
ráðstafa 14 milljónum til uppbygg-
ingar á heitri laug á Akranesi, auk
þess að veita aðra styrki. Upp frá
því hófst undirbúningur að verk-
efninu. Guðlaug naut einnig styrks
úr Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða, sem fyrr segir, upp á tæpar 30
milljónir króna.
Laugin var hönnuð af Basalti arki-
tektum og Mannviti verkfræðistofu
fyrir Akraneskaupstað. Yfirverktaki
var Ístak ehf. og Vélaleiga Halldórs
Sigurðssonar undirverktaki. Raf-
þjónusta Sigurdórs og Pípulagn-
ingaþjónustan önnuðust rafmagns-
og vatnslagnir og Trémsiðjan Akur
smíðaði búningsherbergin undir
stúku Akranesvallar. kgk
Sylvía Hera Skúladóttir tók við
starfi verslunarstjóra Kjörbúðarinn-
ar í Búðardal á áramótum. Hún hóf
störf fimmtudaginn 2. janúar síð-
astliðinn og er mjög jákvæð í garð
nýja starfsins. „Þetta leggst rosalega
vel í mig og ég er spennt að kynnast
nýju fólki á nýjum stað,“ segir Sylvía
í samtali við Skessuhorn. Sylvía er
dóttir Skúla Hreins Guðbjörnsson-
ar og Guðrúnar Estherar Jónsdóttir
á Miðskógi í Dölum. Hún segir að
faðir hennar hafi bent henni á starf-
ið. „Pabbi hringdi í mig og sagði
mér að auglýst væri eftir verslun-
arstjóra hér í Búðardal. Ég hugsaði
með mér „af hverju ekki að slá til,
prófa eitthvað nýtt og kynnast nýju
samfélagi?“ segir hún.
Sylvía er fædd og uppalin á
Hvammstanga en fluttist á Akra-
nes 16 ára gömul. Hún hefur ekki
gegnt starfi verslunarstjóra áður,
en er þó enginn nýgræðingur þeg-
ar kemur að versluarstörfum. „Ég
vann í Nettó eftir að ég flutti fyrst
á Akranes, en fór þaðan í Krónuna
og svo yfir í Bónus. Ég var um tíma
aðstoðarverslunarstjóri Bónuss á
Ísafirði, í hálft ár, en undanfarið hef
ég búið á Akranesi og starfað á leik-
skóla auk þess að vera í námi,“ segir
Sylvía sem er menntaður leikskóla-
liði og stuðningsfulltrúi. „Ég kom
einmitt sem nemi í Auðarskóla síð-
asta vor, var þar í starfsnámi þegar
ég var að læra til stuðningsfulltrúa,“
segir hún.
Sylvía er gift Stefáni Erni Karls-
syni og saman eiga þau þrjú börn.
Sylvía og börnin eru flutt í Dalina
frá Akranesi og munu þau fyrst um
sinn búa hjá foreldrum hennar á
Miðskógi. Stefán flytur síðan vest-
ur þegar hjónin fá íbúðina fyrir ofan
verslunina afhenta. „Sú íbúð er á
vegum Samkaupa og ætluð verslun-
arstjóra. Við flytjum inn í hana þeg-
ar hún losnar,“ segir Sylvía og kveðst
hæstánægð að vera flutt í sveitina.
„Ég elska að vera í sveitinni, þyk-
ir gott að vera nálægt mömmu og
pabba og hef aðeins verið að kynn-
ast fólki í gegnum þau. Dalamenn
hafa tekið vel á móti mér, vilja all-
ir vita hver ég er og hvaðan ég er
og hvort ég sé nú ekki dóttir hans
Skúla á Miðskógi,“ segir hún létt í
bragði.
Spurð hvort að nýjar áherslur
muni fylgja nýjum verslunarstjóra
þá segir hún að svo sé alltaf. „Mað-
ur vill alltaf bæta þjónustuna, gera
betur en sá sem var á undan manni,
sama hver það er og sama hvern-
ig staðan var þegar maður tók við.
Alltaf vill maður bæta hlutina og ná
öllum á sitt band,“ segir hún. „Dala-
menn mega eiga von á jákvæðum
og háværum verslunarstjóra, það
fer ekkert lítið fyrir mér,“ segir hún
og hlær við. „Það þarf ekki að leita
lengi að mér ef ég er á staðnum,“
segir Sylvía létt í bragði að endingu.
kgk
Rakel Óskarsdóttir hefur verið ráð-
in framkvæmdastjóri Golfklúbbs-
ins Leynis á Akranesi. Hún tekur
við starfinu af Guðmundi Sigvalda-
syni, sem stýrt hefur klúbbnum frá
árinu 2013.
Rakel hefur störf föstudaginn 10.
janúar næstkomandi og var að von-
um ánægð með ráðninguna þegar
Skessuhorn ræddi við hana. „Starfið
leggst mjög vel í mig enda einstak-
lega spennandi umhverfi að starfa í
þar sem golfíþróttin fer hratt vax-
andi á Íslandi. Ég hlakka til að
vinna með öllu því góða og duglega
fólki sem stendur að baki klúbbn-
um og veit að ég tek við góðu búi
af fráfarandi framkvæmdastjóra og
stjórn,“ segir Rakel í samtali við
Skessuhorn. „Starfinu fylgja spenn-
andi tækifæri og miklar áskor-
anir. Starfsumhverfi Golfklúbbs-
ins Leynis hefur batnað til muna á
síðustu misserum og ekkert því til
fyrirstöðu að blása í seglin og gera
klúbbinn stærri og völlinn eins og
hann getur orðið bestur,“ bætir hún
við.
Rakel er viðskiptafræðingur
frá Háskólanum á Bifröst og með
meistarapróf í markaðs- og alþjóða-
viðskiptum frá Háskóla Íslands.
Hún hefur meðal annars gegnt
starfi markaðs- og atvinnufull-
trúa Akraneskaupstaðar og starfað
við verslunarrekstur í Versluninni
Bjargi. Rakel hefur verið bæjar-
fulltrúi á Akranesi frá árinu 2014
og var oddviti á lista Sjálfstæðis-
flokks fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar 2018. Samhliða störfum bæj-
arstjórnarfulltrúa hefur hún tekið
að sér ýmis verkefni, hefur meðal
annars setið í stjórn Byggðastofn-
unar, Orkuveitu Reykjavíkur, Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, verið
formaður Sambands sveitarfélaga
á Vesturlandi og formaður sveitar-
stjórnarvettvangs EFTA.
kgk
Rakel stýrir Leyni
Rakel Óskarsdóttir er nýr fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis.
Ljósm. úr safni.
„Maður vill alltaf bæta þjónustuna“
segir Sylvía Hera, nýr verslunarstjóri Kjörbúðarinnar í Búðardal
Sylvía Hera Skúladóttir, nýr verslunarstjóri Kjörbúðarinnar í Búðardal. Ljósm. sm.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir nokkur orð með verðlauna-
gripinn og blómvönd í hönd.
Guðlaug sæmd Umhverfisverðlaunum Ferðamálastofu
Fulltrúar Akraneskaupstaðar ásamt fulltrúum Ferðamálastofu og öðrum gestum að athöfn lokinni.
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri afhenti verðlaunin fyrir hönd
Ferðamálastofu.