Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 202024
Föstudaginn fyrir jól voru 65 ný-
stúdentar brautskráðir frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Athöfnin fór að mestu fram
með hefðbundnu sniði. Jónína Víg-
lundsdóttir áfangastjóri flutti annál
haustannar og rifjaði upp helstu at-
riði viðburðaríkrar annar. Guðjón
Snær Magnússon, nýstúdent frá Ás-
garði í Borgarfirði, flutti ávarp fyrir
hönd útskriftarnema og rifjaði upp
eftirminnileg augnablik skólagöng-
unnar. Borgnesingurinn Magnús
Geir Eyjólfsson, fyrrverandi nem-
andi skólans, ávarpaði útskriftar-
nema og miðlaði til þeirra hagnýt-
um ráðum á þessum tímamótum í
þeirra lífi.
Nokkur tónlistaratriði voru flutt
við útskriftarathöfnina: Þeir Edgar
Gylfi Skaale Hjaltason og Sigurð-
ur Jónatan Jónsson léku nokkur lög
fyrir gesti fyrir athöfnina. Ragna
Benedikta Steingrímsdóttir söng
og Guðjón Snær Magnússon spil-
aði undir á gítar. Einnig söng Jóna
Alla Axelsdóttir við undirleik Edg-
ars Gylfa á píanó. Hekla Björns-
dóttir lék einnig á píanó verkið Le
Petite Negre eftir Debussy.
Fjölmargar
viðurkenningar
Eftirtaldir útskriftarnemar fengu
verðlaun og viðurkenningar fyrir
ágætan námsárangur og störf að fé-
lags- og menningarmálum. (Nöfn
þeirra sem gáfu verðlaun eru innan
sviga):
Bjartur Finnbogason fyrir góðan
árangur og ástundun í íþróttum (VS-
Tölvuþjónusta).
Guðjón Snær Magnússon fyrir góð
störf að félags- og menningarmálum,
en Guðjón Snær starfaði meðal ann-
ars í aðalstjórn nemendafélags skól-
ans, bæði sem forseti og meðstjór-
nandi. (Minningarsjóður um Karl
Kristinn Kristjánsson).
Hildigunnur Einarsdóttir hlaut
hvatningarverðlaun til áframhaldandi
náms (Zontaklúbbur Borgarfjarðar).
Irma Alexandersdóttir fyrir góð-
an árangur í dönsku (Danska sendi-
ráðið), fyrir góðan árangur í þýsku
(Terra) og fyrir fyrir góðan árangur í
ensku (Penninn Eymundsson).
Ísak Máni Sævarsson fær viður-
kenningu fyrir góð störf að félags-
og menningarmálum, en Ísak Máni
starfaði í aðalstjórn nemendafélags
skólans og var forseti kvikmynda- og
tækniklúbbs. (Minningarsjóður um
Karl Kristinn Kristjánsson).
Jón Hjörvar Valgarðsson fékk við-
urkenningu fyrir góð störf að félags-
og menningarmálum, en Jón Hjörv-
ar starfaði í aðalstjórn nemenda-
félags skólans bæði sem forseti og
meðstjórnandi, gegndi formennsku
í íþróttaklúbbi og viskuklúbbi og tók
þátt í Gettu betur fyrir hönd skólans.
(Minningarsjóður um Karl Kristinn
Kristjánsson).
Ólöf Lilja Magnúsdóttir fær viður-
kenningu fyrir góðan árangur í sér-
greinum á sjúkraliðabraut (Lands-
bankinn á Akranesi).
Sólon Ívar Símonarson fær viður-
kenningu fyrir góðan árangur í raf-
virkjun (Elkem Ísland).
Melkorka Jara Kjartansdóttir fær
viðurkenningu fyrir góðan árangur í
húsasmíði (Skaginn 3x). mm/ Ljósm.
Myndsmiðjan/Guðni Hannesson.
Hekla Björnsdóttir frá Rauðsgili í Hálsasveit lék á flygilinn.
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
Útskriftarhópurinn ásamt forsvarsmönnum skólans.
Þorbjörg Ragnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og Irma Alexandersdóttir, dúx FVA
2019.
Hluti gesta við útskrift frá FVA.
Guðjón Snær Magnússon spilaði á gítar og Ragna Benedikta Steingrímsdóttir
söng.