Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 202030 Hið árlega aðventumót púttara í Borgarbyggð fór fram 17. desemb- er síðastliðinn í Eyjunni í Brák- arey. Til leiks mættu ellefu konur og þrettán karlar. Keppt var með og án forgjafar. Konurnar voru í feikna stuði þennan dag og skildu karlana hreinlega eftir. Guðrún Helga Andresdóttir vann kvenna- flokkinn án forgjafar á 56 höggum. Önnur varð Anna Ólafsdóttir á 57 höggum og Lilja Ósk Ólafsdóttir þriðja með 60 högg, en Ásdís B. Geirdal var fjórða á sama högga- fjölda. Ingimundur Ingimund- arson varð efstur í karlaflokki án forgjafar á 60 höggum. Annar var Magnús E. Magnússon á 61 höggi og þriðji Jón Þór Jónasson einn- ig á 61 höggi. Heba Magnúsdótt- ir var fyrst kvenna með forgjöf með 57 högg. Önnur var Rann- veig Lind Egilsdóttir einnig með 57 högg og þriðja Hugrún Björk Þorkelsdóttir með 57 högg, en Ásdís B. Geirdal varð fjórða með sama höggafjölda. Efstur karla með forgjöf varð Valur Thorodd- sen á 53 höggum. Annar var Ágúst M. Haraldsson á 58 höggum og þriðji Guðmundur Auðunn Ara- son á 59 höggum. Pútthópurinn æfði vel á árinu 2019 en skráðar æfingar voru 90 talsins, en margir tóku auk þess aukaæfingar. Hópurinn sýndi veru- legar framfarir og árangur ársins var með besta móti. Á næstunni mun púttstaðan í Eyjunni batna mjög því leggja á púttgrasteppi á völl- inn og breytir það aðstöðunni mjög til batnaðar. Í sumar fer Landsmót UMFÍ 50+ fram í Borgarnesi og bú- ast má við mörgum þátttakendum í þessari grein. mm/ii/ Ljósm. gha. Hlaupahópur Snæfellsbæjar stóð fyrir hlaupi á síðasta degi ársins eins og undanfarin ár. Hittust hlaupar- arnir við Íþróttahús Snæfellsbæj- ar og hlupu allir saman, börn, ung- lingar og fullorðnir ýmist þrjá eða fimm kílómetra. Voru þátttakend- ur hvattir til að mæta í búningum en um 30 manns tóku þátt í hlaup- inu að þessu sinni. Að hlaupi loknu buðu þau Rán Kristinsdóttir og Fannar Baldursson öllum þátttak- endum í heitt súkkulaði í bílskúrn- um heima hjá sér. þa Júlían J. K. Jóhannsson kraftlyft- ingamaður var skömmu fyrir ára- mót útnefndur Íþróttamaður árs- ins 2019 af Samtökum íþrótta- fréttamanna. Martin Hermanns- son körfuknattleiksmaður hjá Alba Berlín hafnaði í öðru sæti og knatt- spyrnukonan Sara Björk Gunnars- dóttir varð í þriðja. Júlían hefur haslað sér völl sem einn af sterkustu keppendum heims í +120 kg flokki. Hann vann til bronsverðlauna fyrir samanlagð- an árangur á heimsmeistaramóti í Dubaí í nóvember en þar bætti hann jafnframt sitt eigið heimsmet í rétt- stöðulyftu með 405,5 kg og tryggði sér gullverðlaun í greininni. Heild- arþyngdin sem Júlían lyfti á heims- meistaramótinu voru 1148 kg., en það er mesta þyngd sem íslensk- ur kraftlyftingamaður hefur lyft. Í maí hlaut Júlían silfurverðlaun á Evrópumeistaramóti fyrir saman- lagðan árangur en hlaut þar einn- ig gull í réttstöðu. Hann lýkur í ár sínu þriðja keppnistímabili í opnum flokki og er í þriðja sæti á heimslista IPF Alþjóðakraftlyftingasambands- ins í +120kg. flokki. Það íþróttafólk sem fékk flest at- kvæði í kjörinu þetta árið og var í efstu tíu sætunum er í stafrófsröð: Anton Sveinn McKee, sundmað- ur úr Sundfélagi Hafnarfjarðar Arnar Davíð Jónsson, keilari úr Keilafélagi Reykjavíkur Aron Pálmarsson, handbolta- maður hjá Barcelona á Spáni Glódís Perla Viggósdóttir, knatt- spyrnukona hjá Rosengård í Sví- þjóð Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, spretthlaupari úr ÍR Guðmundur Ágúst Kristjánsson, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavík- ur Gylfi Þór Sigurðsson, knatt- spyrnumaður hjá Everton Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyft- ingamaður úr Ármanni Martin Hermannsson, körfu- boltamaður hjá Alba Berlín í Þýska- landi Sara Björk Gunnarsdóttir, knatt- spyrnukona hjá Wolfsburg í Þýska- landi Í heiðurshöllina Samtök íþróttafréttamanna veittu nú í áttunda sinn viðurkenningu til þjálfara ársins og var það Ósk- ar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari kar- laliðs Gróttu í knattspyrnu, sem hlaut þann heiður. Viðurkenning til liðs ársins fór til kvennaliðs Vals í körfuknattleik. Loks var Alfreð Gíslason út- nefndur í Heiðurshöll ÍSÍ. Alfreð er nítjándi einstaklingurinn sem ÍSÍ útnefnir í höllina. Vestlendingar í fremstu röð Fyrr um kvöldið fór fram verð- launaafhending til íþróttafólks sem sérsambönd ÍSÍ og íþróttanefnd- ir höfðu tilnefnt úr sínum röðum. Í þeirra röðum voru Valdís Þóra Jóns- dóttir kylfingur úr Leyni sem til- nefnd var af GSÍ sem golfkona árs- ins fyrir frábæran árangur á sterk- ustu mótum kylfinga á heimsvísu. Borgnesingurinn Kristín Sif Björg- vinsdóttir var tilnefnd sem hnefa- leikakona ársins en hún hreppti m.a. silfurverðlaun á Norðurlandamótinu í hnefaleikum annað árið í röð. Þrefaldur heimsmeistari Loks verður að geta Skagfirðingsins Jóhanns Rúnars Skúlasonar sem til- nefndur var sem knapi ársins í fjórða skipti. Jóhann vann það einstaka af- rek á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín 2019 að vinna þre- faldan heimsmeistaratitil á hestinum Finnboga frá Minni-Reykjum. Það vakti töluverða reiði í íslenska hesta- heiminum að Jóhann Rúnar skyldi ekki verða kjörinn í hóp tíu efstu íþróttamanna landsins fyrir þenn- an árangur. Stjórn LH sendi frá sér harðorða yfirlýsingu vegna þess. mm Hið árlega gamlársdagshlaup ÍA fór fram á Akranesi á gamlársdag. Hlaupið var af stað frá Akratorgi kl. 13:00 og var hægt að velja um tvær vegalengdir að þessu sinni; 2 km og 5 km. Prýðileg þátttaka var í hlaupinu sem Sturlaugur Stur- laugsson ræsti með því að sprengja flugeld. mm Íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ sem tilnefnt var til verðlauna. Júlían er Íþróttamaður ársins 2019 Júlían J. K. Jóhannsson íþróttamaður ársins 2019. Guðmundur Arason varð þriðji í keppni karla án forgjafar. Valur og Ágúst urðu í efstu tveimur sætum. Aðventumót púttara í Borgarbyggð Efstu í kvennaflokki án forgjafar. Efstu í kvennaflokki með forgjöf. Efstu þrír karlar í keppninni án forgjafar. Mynd vantar af efstu í karlaflokki með forgjöf. Hlaupið frá gamla árinu Hlaupið á gamlársdag

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.