Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 25
Þriðjudaginn 17. desember síð-
astliðinn brautskráðust við hátíð-
lega athöfn átta nemendur frá Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Grundar-
firði. Af félags- og hugvísindabraut
brautskráðust Aleksandra Wasie-
wicz, Alma Jenný Arnarsdóttir og
Dawid Einar Karlsson. Af nátt-
úru- og raunvísindabraut braut-
skráðist Finnbogi Steinarsson. Af
opinni braut til stúdentsbrautar
brautskráðust Eva María Sævars-
dóttir, Ísak Þórir Ísólfsson Líndal
og Kolbrún Ösp Guðrúnardótt-
ir. Með viðbótarnám til stúdents-
prófs brautskrifast Björn Viðar Jó-
hannsson og af framhaldsskóla-
braut 1 brautskráðist Patryk Kuc-
zynski. Þess má geta að síðastliðinn
júlímánuð útskrifaði skólameistari
Hraundísi Pálsdóttur af félags- og
hugvísindabraut.
Athöfnin hófst á því að Hrafn-
hildur Hallvarðsdóttir skólameist-
ari brautskráði nemendur í 29. sinn
í sögu skólans og flutti ávarp. Sól-
rún Guðjónsdóttir aðstoðarskóla-
meistari afhenti síðan nemendum
viðurkenningar fyrir góðan náms-
árangur. Sveitarfélögin sem standa
að skólanum gáfu viðurkenning-
ar í formi bókagjafa, en auk þess
gaf Landsbankinn peningagjöf.
Elva Björk Jónsdóttir nemandi
flutti lögin Ef ég nenni og Óska-
listinn minn. Sólveig Guðmunds-
dóttir flutti kveðjuræðu kennara
og starfsfólks, Gunnhildur Gunn-
arsdóttir flutti ræðu fyrir hönd tíu
ára stúdenta og Alma Jenný Arnars-
dóttir hélt kveðjuræðu nýstúdenta.
Að athöf lokinni bauð skólameist-
ari nemendum og gestum að þiggja
veitingar.
„Það er gaman að segja frá því
að þeir útskriftarnemendur sem
ekki sáu sér fært um að vera með
okkur mættu þó í „fjærveru“ okk-
ar sem mikið hefur verið notuð síð-
astliðið ár. Í fyrsta sinn var athöfn-
inni einnig streymt beint af fésbók-
arsíðu skólans,“ segir í tilkynningu
frá skólanum.
mm
Laugardaginn 11. janúar næst-
komandi verður opnuð í Safna-
húsi Borgarfjarðar fyrsta samsýn-
ing hópsins Flæðis. Í honum eru
átta konur sem hittast reglulega og
mála saman. Allar hafa þær bak-
grunn úr Myndlistarskóla Kópa-
vogs hjá Derek Mundell. Einn-
ig hafa þær sótt námskeið erlend-
is jafnt sem innanlands hjá kennur-
um eins og Keith Hornblower, Ann
Larsson Dahlin og Bridget Woods.
Konurnar í Flæði eru: Fríða Björg
Eðvarðsdóttir, Guðrún Steinþórs-
dóttir, Rósa Traustadóttir, Sesselja
Jónsdóttir, Sigríður Ásgeirsdótt-
ir, Svanheiður Ingimundardótt-
ir, Þorbjörg Kristinsdóttir og Þóra
Mínerva Hreiðarsdóttir. Meiri-
hluti hópsins hefur mikla tengingu
við Borgarfjörðinn, ein býr þar og
margar eiga sumarhús á svæðinu
sem oft er uppspretta listrænna
myndefna sem sést í mörgum verk-
um á sýningunni.
„Hópurinn hefur heillast af
vatnslitum og töfrum þeirra þegar
litur og vatn flæða saman. Vatns-
litir eru krefjandi miðill sem erfitt
er að stjórna en glíman við þá leiðir
mann að endalausum möguleikum.
Efni sýningarinnar er eins og heiti
hennar gefur til kynna, flæði vatns,
lita og myndefnis,“ segir í tilkynn-
ingu.
Eftir opnunardaginn er sýning-
in opin alla virka daga frá klukkan
13 til 18 og um helgar samkvæmt
samkomulagi sem þá verður aug-
lýst sérstaklega. Hún stendur til 18.
febrúar. mm
Næstkomandi sunnudag klukkan
14 verður frumsýnd á Sögulofti
Landnámssetursins í Borgarnesi
sýningin Öxin - Agnes og Frið-
rik. Þennan dag 12. janúar eru lið-
in 190 ár upp á dag frá því að síð-
asta aftakan fór fram á Íslandi. Þá
lét Björn Blöndal sýslumaður háls-
höggva þau Agnesi Magnúsdóttur
og Friðrik Sigurðsson. Þau voru
fundin sek fyrir morðið á Natani
Ketilssyni, bónda á Illugastöðum
og Pétri Jónssyni, gestkomandi á
bænum.
Magnús ólafsson fyrrverandi
bóndi á Sveinsstöðum í Vatnsdal er
sagnamaður af guðs náð og gjör-
þekkir þessa örlagasögu. Magnús
hefur á undanförnum árum farið
með gesti í hestaferðir um sögu-
svið Illugastaðamorðanna og sagt
söguna þar sem atburðirnir gerð-
ust.
Magnús mun frumsýna frá-
sögnina Öxin - Agnes og Friðrik
á Söguloftinu í Landnámssetrinu
í Borgarnesi nákvæmlega þegar
190 ár upp á klukkutíma eru lið-
in frá aftökunni. Frumsýningin
hefst klukkan tvö, en aftakan fór
fram klukkan tvö 12. janúar 1830.
Fjölskylda Magnúsar tengist þess-
um voðaatburðum persónulega en
faðir Magnúsar og afi komu báðir
að því árið 1934 að flytja líkams-
leifar sakamannanna í vígða mold,
eða þegar rúmlega 100 ár voru lið-
in frá því þau tvö voru höggvin.
Af þeim gjörningi er dularfull og
merkileg saga sem Magnús mun
rekja í tengslum við sjálfa morð-
söguna.
Um þessa atburði hafa verið
skrifaðar bækur, gerð kvikmynd
og væntanleg er íslensk ópera inn-
an tveggja ára. En Magnús kem-
ur með persónulegan og óvænt-
an vinkil með sýn sinni á efninu.
Áhugafólki er ráðlagt að missa ekki
af þessari sýningu. mm/ fréttatilk.
Útskriftarnemendur sem mættir voru ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm. tfk.
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Botnssúlur er vatnslitamynd eftir Svanheiði Ingimundardóttur í Borgarnesi.
Flæði er samsýning kvenna
með tengingu við Borgarfjörð
Konurnar átta sem mynda Flæði. Í aftari röð f.v: Sesselja Jónsdóttir, Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir, Fríða Björg Eðvarðsdóttir,
Þorbjörg Kristinsdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir. Fremri röð f.v: Svanheiður Ingimundardóttir, Rósa Traustadóttir og Guðrún
Steinþórsdóttir. Ljósm. Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir.
Magnús Sveinsson á staðnum þar sem síðasta aftakan fór fram hér á landi.
Frumsýning þegar 190 ár verða
liðin frá síðustu aftökunni