Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 23 Sunnudaginn 5. janúar var árleg þrettándasamkoma haldin í Borg- arnesi. Dagskráin hófst síðdegis með lýsingu á kjöri Íþróttamanns Borgarfjarðar í Hjálmakletti, en frá því er greint í annarri frétt hér í blaðinu. Að því loknu var farin kyndilganga frá Hjálmakletti og niður í Englendingavík þar sem boðið var upp á söng og heitt kakó en auk þess flugeldasýningu í boði Borgarbyggðar og björgunarsveit- anna Brákar og Heiðars. Meðfylgj- andi myndir af viðburðinum eru úr fórum félaga í Björgunarsveitinni Brák. mm Menningarnefnd Snæfellsbæjar óskaði eftir tillögum frá íbúum um fallega skreytt jólahús í Snæfellsbæ ásamt keppni um fallegasta pipar- kökuhúsið. Voru piparkökuhúsin til sýnis í Þín Verslun Kassinn og gáta bæjarbúar skoðað þau þar. Menn- ingarnefnd tilkynnti svo sigurveg- arana á sunnudeginum fyrir jól. Að þessu sinni var jólahús Snæfells- bæjar valið Skipholt 1 en þar búa hjónin Gylfi Scheving og Jóhanna Hjelm ásamt dóttur sinni Kristínu Scheving. Verðlaun fyrir fallegasta piparkökuhúsið fékk Soffía Elín Egilsdóttir en mikil fjölgun var á þátttakendum í keppninni um pip- arkökuhúsið að þessu sinni og tóku níu hús þátt. Það voru þær Svandís Jóna Sigurðardóttir og Rut Ragn- arsdóttir sem afhentu viðurkenn- ingarnar. þa Að venju er mikið um dýrðir þeg- ar jólin er kvödd í Snæfellbæ á þrettándanum. Margir voru sam- an komnir við Pakkhúsið í Ólafsvík seinni partinn og var farin skrúð- ganga inn að Hvalsá þar sem álfa- drottning og álfakóngur voru mætt en þau leiddu gönguna inn að Hvalsá. Grýla og Leppalúði voru þarna mætt í leit að óþekkum börn- um, en Grýla var ekki ánægð í þetta skiptið því enginn börn hafa verið óþekk og því fóru þau hjónakornin heldur betur niðurbrotin til fjalla á ný en engin börn fóru í poka þeirra þetta árið. Glæsileg flugeldasýn- ing var svo í lok samkomunnar og börnin enduðu á að sníkja nammi í poka langt fram eftir kvöldi. af Hin árlega þrettándabrenna á Akranesi var haldin að kvöldi þrett- ándans, mánudaginn 6. janúar síð- astliðinn. Að venju hófst viðburð- urinn með blysför frá félagsmið- stöðinni Þorpinu og gengið var sem leið lá að þyrlupallinum við Jaðars- bakka. Álfar, tröll og jólasveinar leiddu gönguna að vanda. Bæjarbú- ar gerðu sér glaðan dag við söng og dans og kvöddu jólin saman. Við- burðinum lauk síðan með flugelda- sýningu Björgunarfélags Akraness. Að svo búnu bauð Íþróttabanda- lag Akraness gestum upp á heitt kakó í íþróttamiðstöðinni að Jað- arsbökkum, áður en greint var frá úrslitum í kjörinu á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2019. Nánar er fjallað um það í annarri frétt hér í blaðinu. kgk Fallega skreytt hús og glæsilegasta piparkökuhúsið Skipholt 1. Piparkökuhúsin voru hvert öðru fallegri. Sigurvegarar með viðurkenningar sínar. Jólin kvödd í Snæfellbæ Allnokkrir gripu með sér stjörnuljós í tilefni dagsins. Jólin kvödd með blysför og brennu Gengið að Þyrlupallinum. Í broddi fylkingar var trommusveit, álfar, tröll og jólasveinar. Fjölmenni sótti þrettándabrennu og flugeldasýningu á Akranesi á mánudags- kvöld. Borgnesingar kvöddu jólin í Englendingavík

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.