Skessuhorn - 08.01.2020, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 11
Gleðilegt heilsuræktarár 2020
Morguntrimm • spinning • hádegispúl • átakstímar • sundleikfimi • leiðsögn í þreksal
Opið alla virka daga kl. 6.00 – 22.00 • Laugardaga og sunnudaga kl. 9.00 – 18.00
Verið velkomin
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi - www.borgarbyggd.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Okkar yndislega, heittelskaða eiginkona,
mamma, dóttir, systir, mágkona, barnabarn,
tengdadóttir, frænka og vinkona
Berglind Rósa Jósepsdóttir
(Begga Jobba)
Grundarfirði
lést á Landspítalanum í faðmi fjölskyldunnar 30. desember.
Útför hennar fer fram í Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 11. janúar
klukkan 13.
Innilegt þakklæti til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítala og
Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein, fyrir sam-
fylgd, hjálp og umönnun.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þau sem vilja minnast
Beggu er bent á skíðadeild UMFG í Grundarfirði, 0321-13-110106,
kt. 630189-2689.
Sigurbjörn Z. Hansson
Hans Bjarni Sigurbjörnsson
Magni Rúnar Sigurbjörnsson
Anna Guðrún Aðalsteinsdóttir
Heiðrún Hallgrímsdóttir
Tómas Freyr Kristjánsson
Dagný Ósk Guðlaugsdóttir
og aðrir aðstandendur
Jósep Magnússon
Aðalsteinn Jósepsson
Guðrún Jóna Jósepsdóttir
Magnús Jósepsson
Júlíus Arnar Jósepsson
Arndís Jenný Jósepsdóttir
Á hverju ári gefur sjávarútvegsráð-
herra út reglugerð um veiðar á grá-
sleppu. Á undanförnum árum hef-
ur ekki verið mikil efnisleg breyt-
ing á reglum sem gilt hafa um veið-
arnar. Föstudaginn 20. desember
síðastliðinn voru sett í samráðsgátt
stjórnvalda drög að reglugerð um
hrognkelsaveiðar fyrir árið 2020.
Í henni felst kúvending á þeim
reglum sem grásleppusjómenn við
Íslandsstrendur hafa þurft að sæta.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu seg-
ir að breytingarnar séu gerðar til að
sporna við meðafla. „Helstu breyt-
ingarnar eru afnám svæðaskipting-
ar, að undanskildum Breiðarfirði,
lenging veiðitímabils, vitjunartími
styttur, fækkun neta, hert á kröfum
um að bátar séu með aflaheimild-
ir fyrir áætluðum meðafla, fellt út
ákvæði um að skila veiðiskýrslu og
lagt til að Fiskistofa geti sett eft-
irlitsmann um borð á kostnað út-
gerðar ef meðafli er óeðlilegur.“
Í reglugerðardrögunum
eru helstu breytingar
frá gildandi reglugerð
eftirfarandi:
Afnám svæðaskiptingar (að •
undanskildum innanverðum
Breiðafirði).
Upphafstími veiða verði 1. •
mars í stað 20. mars.
Áður en veiðiferð hefst skal •
útgerð sjá til þess að bátur-
inn hafi þær aflaheimildir sem
dugi fyrir ætluðum meðafla í
veiðiferðinni.
Grásleppunet skulu dregin eigi •
síðar en þremur sólarhringum,
í stað fjögurra eins og nú er,
eftir að þau eru lögð í sjó.
Hámarkslengd neta á hvern •
bát verði stytt um helming
verði 3.750 m í stað 7.500 m.
Fiskistofu verði heimilt að •
svipta bát veiðileyfi ef um
óeðlilega veiði á botnfisk-
tegundum að ræða þann-
ig að magn botnfiskstegunda
í þorskígildum talið sé ítrek-
að svipað eða meira en magn
grásleppuaflans í þorskígild-
um talið.
Fellt er út ákvæði um skil á •
veiðiskýrslu.
Umsóknarfrestur til grá-•
sleppuveiða verður frá 15.
janúar - 15. febrúar 2020 og
verða umsóknir sem berast
eftir þann tíma ekki teknar til
greina.
Fækka þurfi niður
í einn í áhöfn
Grásleppusjómenn eru afar óhress-
ir við þessar breytingartillögur
Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarút-
vegsráðherra og segja að ef af þeim
verður gangi þær að atvinnugrein-
inni dauðri. Stjórn smábátafélags-
ins Sæljóns á Akranesi fordæm-
ir breytingartillögur ráðherra og
gengur svo langt að lýsa vantrausti
á Kristján Þór Júlíusson. Í ályktun
sem félagið sendir frá sér skömmu
fyrir áramót segir að mótmælt sé
harðlega þeim breytingum sem
fram koma í drögum að reglugerð
um hrognkelsaveiðar á árinu 2020
sem birt eru á samráðsgátt stjórn-
valda. „Breytingar sem koma fram
í þessum drögum eru svo íþyngj-
andi að þær geta leitt til þess að
grásleppuveiðar í Faxaflóa og víðar
leggjast af. Undirtónninn í þessum
aðgerðum/drögum eru gríðarlegt
og hert eftirlit, takmörkuð sóknar-
geta og hámarkslengd neta á hvern
bát verði stytt um helming, verði
3.750 m í stað 7.500 m. Ef þessar
tillögur hljóta brautargengi verð-
ur afkoma grásleppubáta svo léleg
að fækka þarf í áhöfnum grásleppu-
báta, þannig að þeir verða í flestum
tilfellum einungis einn maður.“
Lýsa vantrausti
á ráðherra
Jóhannes Simonsen, formaður Sæ-
ljóns, segir í samtali við Skessu-
horn reglugerðina ekki vera ann-
að en beina aðför að smábátasjó-
mennsku á Íslandi. „Sú síðasta í
langri röð aðgerða og tillagna frá
sjávarútvegsráðherra og opinberra
aðila til þess að veikja smábátaút-
gerð á Íslandi. Við lítum á þetta út-
spil sem herfndaraðgerð af hálfu
Kristjáns Þórs Júlíussonar vegna
andstöðu okkar við kvótasetningu á
grásleppu. Við í Sæljóni höfum lagt
tillögur til lausnar á vandamálum
varðandi meðafla við grásleppu-
veiðar, að gefa mönnum kost á að
gera hlé á veiðum án dagaskerð-
ingar ef um óeðlilegan meðafla er
að ræða. Ráðherra hefur ítrekað
hafnað þeim tillögum. Við í stjórn
Sæljóns, félags smábátaeigenda á
Akranesi, lýsum því yfir vantrausti á
sjávarútvegsráðherra Íslands Krist-
ján Þór Júlíusson og skorum á LS
að gera slíkt hið sama,“ segir Jó-
hannes.
mm
Jóhannes Simonsen við bát sinn Guðmund Þór sem hann keypti nýverið frá Breiðdalsvík.
Lýsa vantrausti á sjávarútvegsráðherra
vegna reglugerðar um hrognkelsaveiðar