Skessuhorn - 08.01.2020, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 13
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Jólatré sótt
8.-10. janúar
Akraneskaupstaður mun sjá um hirðingu jólatrjáa daganna
8.-10. janúar og er það í boði fyrir alla bæjarbúa.
Eina sem þarf að gera er að setja trén út við götu. Ath. eingöngu
jólatré verða tekin, ekki annað sorp.
Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að ganga vel um og hreinsa
upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem fellur til eftir
nýárs- og þrettándagleði.
Á Gamlársdag fögnuðum Grund-
firðingar börnum ársins 2019. Allt
frá árinu 2006 hafa nýfædd börn í
Grundarfirði verið boðin velkomin
í heiminn með gjöfum frá sveitung-
um sínum. Það er Grundarfjarðar-
bær í samstarfi við Leikskólann Sól-
velli, Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands í Grundarfirði og Slysavarna-
deildina Snæbjörgu sem stendur
að þessum viðburði. Hverju barni
eru færð að gjöf hagnýtur fatnað-
ur, tannbursti, bækur og bæklingur
frá leikskólanum, auk þess sem með
fylgja endurskinsmerki og leið-
beiningar til foreldra, t.d. gátlisti
um öryggi barna á heimili. Haldið
var samsæti í Sögumiðstöðinni fyrir
börn ársins og fjölskyldur þeirra, en
í árslok búa 16 börn í Grundarfirði
fædd á árinu, sjö drengir og níu
stúlkur. Börn ársins 2018 voru tíu
talsins, en þó hefur fjölgað og nú
eru í þeim árgangi 14 börn. Grund-
firðingum er því að fjölga.
Gjöfin hefur verið kölluð „sæng-
urgjöf samfélagsins“ og er hluti af
fjölskyldustefnu Grundfirðinga,
sem sett var 2006. Hugmyndin átti
þá rætur sínar að rekja til Finn-
lands, þar sem tíðkast hafði að gefa
börnum hagnýtar gjafir í kassa sem
mátti síðan breyta í vöggu.
„Í okkar litlu samfélögum skipt-
ir hver einstaklingur miklu máli.
Þetta er sú leið sem okkar samfélag
fer til að bjóða nýjustu íbúana sér-
staklega velkomna. Það þarf nefni-
lega heilt þorp til að ala upp barn.
Þannig er þetta líka hugsað til að
minna okkur öll á gildi þess að hlúa
hvert að öðru, ekki síst börnunum,
til að rækta gott samfélag,” segir
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri.
mm
Matvöruverslunin Fresh Market
var opnuð við Stillholt 16 á Akra-
nesi að morgni miðvikudagsins 18.
desember síðastliðins. Fresh Mar-
ket er pólsk búð og þar er að finna
úrval af matvöru frá Póllandi, allt
frá pólskum pylsum og niðursuðu-
vörum til gosdrykkja og sælgætis,
auk hreinlætisvara og dagvara ým-
iss konar.
Upphaflega stóð til að opna
verslunina viku fyrr en ein vöru-
sending skilaði sér ekki til landsins
í tíma. Sú sending innihélt meðal
annars pylsurnar og að sögn starfs-
manns Fresh Market sem Skessu-
horn ræddi við þótti aðstandend-
um verslunarinnar ótækt að opna
pólska búð án þess að bjóða pylsur
til sölu. Var því ákveðið að fresta
opnuninni til 18. desember.
Fresh Market verður opin alla
daga vikunnar. Opnunartíminn
er milli 10:00 og 21:00 á virkum
dögum en frá 10:00 til 20:00 um
helgar. Þeim sem vilja fylgjast með
versluninni á netinu er bent á Fa-
cebook-síðu hennar; Fresh Mar-
ket.
kgk
Pólskir drykkir í ýmsum tegundum.
Pólsk verslun opnuð á Akranesi
Horft inn í sal verslunarinnar.
Pólskar vörur í úrvali.
Nýir Grundfirðingar boðnir velkomnir
And lát:
Magnús Óskarsson