Skessuhorn - 08.01.2020, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 15
Almannavarnanefnd höfuðborg-
arsvæðisins hefur, í samvinnu við
Rauða krossinn, björgunarsveitir
og Vegagerðina, sett upp skilti við
Vesturlandsveg, sem er fyrsta skilti
sinnar tegundar. Það er gert til að
beina fólki að fjöldahjálparstöð sem
staðsett er í Klébergskóla á Kjalar-
nesi. Sú fjöldahjálparstöð er hvað
oftast opnuð sökum veðurs, að
minnsta kosti fimm sinnum á síð-
asta ári. Nú síðast var hún opnuð
10. desember, þegar óveður skall á
öllu landinu. Var skiltið þá notað í
fyrsta sinn til þess að aðstoða fólk
við að komast að fjöldahjálparstöð-
inni.
„Fólkið sem stendur vaktina í
fjöldahjálparstöðinni í Kléberg-
skóla eru sjálfboðaliðar Rauða
krossins, en einnig eru þau starfs-
menn og stjórnendur skólans, sem
er mikill kostur þar sem þau þekkja
bæði til skólans og svæðisins. Þeg-
ar veður skellur á leggja þau niður
sín störf og fara frá fjölskyldum sín-
um til þess að aðstoða ferðamenn
og aðra sem eru á ferðinni. Þeirra
hluti í slíku verkefni er gríðarlega
mikilvægur og eiga þau hrós skil-
ið fyrir sín störf,“ segir Jón Viðar
Matthíasson, framkvæmdastjóri al-
mannavarnanefndar höfuðborgar-
svæðisins.
„Mikill fjöldi fólks, sérstaklega
erlendir ferðamenn, á leið þarna
um og yfir vetrartímann þarf við
ákveðnar aðstæður að loka veg-
inum vegna veðurs. Í kjölfarið er
nauðsynlegt að opna fjöldahjálpar-
stöð þar sem fólk getur fengið skjól
á meðan versta veðrið gengur yfir.
Það hafði borið á að fólk vissi ekki
hvert það gæti farið og hvar stöðin
væri.“
Fjöldahjálparstöðvar eru starf-
ræktar á neyðartímum til að bjóða
þolendum náttúruhamfara og ann-
arra alvarlegra atburða öruggt
skjól. Þar er þeim séð fyrir helstu
grunnþörfum svo sem mat, fatnaði
og húsaskjóli. Einnig er gert ráð
fyrir að í boði sé ýmis frekari þjón-
usta svo sem skyndihjálp, sálrænn
stuðningur, ráðgjöf og upplýsing-
ar. Á heimasíðu Rauða krossins er
hægt að sjá staðsetningu fjölda-
hjálparstöðva um land allt ásamt
frekar upplýsingum. Það eru marg-
ir sem koma að lokun vega og ferlið
sem fer í gang er margslungið. Veð-
urstofa Íslands gefur viðvaranir um
veður og vegna náttúruvár, Vega-
gerðin veitir upplýsingar um færð
á vegum og tekur ákvörðun um
lokun, lögregla og björgunarsveit-
ir sinna lokunum og Rauði kross-
inn opnar og rekur fjöldahjálpar-
stöðvar.
mm
Umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
ið hefur kynnt í samráðsgátt tvö
frumvörp; um Hálendisþjóðgarð
og um Þjóðgarðastofnun og þjóð-
garða. Frumvarp um Hálendis-
þjóðgarð tekur til stofnunar þjóð-
garðs á miðhálendi Íslands, á land-
svæði sem er í sameign þjóðarinnar;
þjóðlendum og friðlýstum svæð-
um innan miðhálendisins. „Það
er í samræmi við tillögur nefndar
fulltrúa allra þingflokka og stjórn-
valda, bæði ríkis og sveitarfélaga,
sem vann að undirbúningi stofn-
unar þjóðgarðsins,“ segir í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu.
Í frumvörpunum er lögð áhersla
á að stjórnun Hálendisþjóðgarðs sé
bæði hjá ríki og viðkomandi sveit-
arfélögum. Gert er ráð fyrir að sér-
stök stjórn, sem í sitji ellefu stjórn-
armenn, fari með stjórn þjóðgarðs-
ins og að hún verði að meirihluta
skipuð fulltrúum sveitarfélaga, auk
félagasamtaka og hagsmunaaðila.
Þá verði þjóðgarðinum skipt upp
í sex rekstrarsvæði og yfir hverju
þeirra sérstakt umdæmisráð, skip-
að fimm fulltrúum sveitarfélaga,
auk fulltrúum frá útivistarsamtök-
um, umhverfisverndarsamtökum,
Bændasamtökum Íslands og ferða-
þjónustuaðilum. Gert er ráð fyrir
að Hálendisþjóðgarður verði sjálf-
stæð eining innan nýrrar stofnun-
ar, Þjóðgarðastofnunar, sbr. drög
að frumvarpi um stofnunina sem
kynnt hafa verið í samráðsgátt.
Með frumvarpi um Þjóðgarða-
stofnun og þjóðgarða er gert ráð
fyrir að í stað tveggja ríkisstofnana,
þ.e. Vatnajökulsþjóðgarðs og Þjóð-
garðsins á Þingvöllum, verði sett á
fót ein ný ríkisstofnun. Auk þess er
gert ráð fyrir að verkefni Umhverf-
isstofnunar á sviði náttúruverndar
verði færð til stofnunarinnar, auk
Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls sem nú
heyrir undir Umhverfisstofnun.
Frestur til að gera athugasemdir
við frumvarpsdrögin í Samráðsgátt
stjórnvalda er til 15. janúar 2020.
Fyrirhuguðum kynningarfundum
umhverfisráðherra um væntanleg-
an Hálendisþjóðgarð var frestað í
gær vegna veðurs. Halda átti fund í
Borgarnesi eftir hádegið og verður
hann síðar, þótt tímasetning liggi
ekki fyrir.
mm
Í lok desember voru síðustu dagarn-
ir sem Byggðasafn Dalamanna var
opið á Laugum í Sælingsdal. Af því
tilefni var gestum boðið frítt inn á
safnið, húslestur var í boði og heitt
á könnunni. Nú á nýju ári verð-
ur síðan hafist handa við að pakka
safnkostinum niður. Frá þessu var
greint á heimasíðu safnsins. Safn-
kosti verður pakkað saman og kom-
ið til geymslu til bráðabirgða þar til
búið verður að finna safninu nýtt
húsnæði. Meðal annars hefur verið
horft til gamla skólahússins á Stað-
arfelli, en það eru í eigu ríkissjóðs.
Engir samningar þó liggja fyrir um
nýtingu þess.
„Skipulögð söfnun muna í Dölum
fyrir væntanlegt Byggðasafn Dala-
manna hófst sumarið 1968. Fyrsta
sýning safnsins var í einu sýninga-
borði sumarið 1974 í tengslum við
þjóðhátíð. Á Laugum voru fyrstu
sýningar safnsins opnaðar sumar-
daginn fyrsta 1977. Sumardaginn
fyrsta 1979 var safnið vígt af þá-
verandi forseta Íslands, Kristjáni
Eldjárn.“ Þá segir á heimasíðu
byggðasafnsins að saga Byggða-
safns Dalamanna verði ekki sögð án
þess að geta Magnúsar Gestsson-
ar (1909-2000) frá Ormsstöðum.
„Magnús var frumkvöðull að stofn-
un safnsins. Fór um Dalina sumar-
ið 1968 og safnaði munum. Hann
gekk frá húsnæði safnsins til sýn-
ingarhalds, smíðaði sýningarkassa,
dyttaði að munum og setti upp sýn-
ingar. Magnús var safnvörður frá
stofnun til 1998, þá 88 ára að aldri.
Magnús var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1985
fyrir störf sín í þágu Byggðasafns
Dalamanna.
Í ár á safnið 40 ára vígsluafmæli
og 51 ár síðan söfnun muna hófst.
Á þessum 40-50 árum hefur margt
breyst í starfsemi safna, þar á með-
al kröfur til húsnæðis. Heitavatns-
lagnir í lofti, leysinga- og rigninga-
vatn hefur flætt inn á safnið, skortur
á geymslum, vinnuaðstöðu og fleira
hefur hamlað allri starfsemi og þró-
un. Tímabært er því að koma safn-
kostinum í öruggt skjól með von
um að með hækkandi sól og hæfi-
legri bjartsýni fáist nýtt húsnæði til
framtíðar,“ segir í færslu á heima-
síðu Byggðasafns Dalamanna.
mm
Fjöldahjálparstöð í Klébergsskóla þegar þarf
Gullakista á Byggðasafni Dalamanna. Í henni er að finna hefðbundin leikföng
barna fyrr á tímum; horn, leggi, bein, skeljar og kuðunga. Allt sem þarf til að hefja
búskap. Kista þessi er úr búi Sesselju Bergþórsdóttur (1871-1958) húsfreyju í Litlu-
Tungu á Fellsströnd. Ljósm. Byggðasafn Dalamanna.
Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins á Laugum
Frumvörp um Hálendisþjóðgarð í samráðsgátt
Á undanförnum árum hafa
Samtök ferðaþjónustunn-
ar kallað eftir því við stjórn-
völd að auka svigrúm varð-
andi notkun negldra hjólbarða
á bílaleigubílum til að auka ör-
yggi í umferðinni. Í erindi til
samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra sem SAF sendu á dög-
unum er þessi skoðun ítrekuð.
„Öryggismál og forvarnir eru
ein af undirstöðum faglegrar
ferðaþjónustu. Umræðan um
öryggismál magnast þegar al-
varleg atvik koma upp og fjöldi
þeirra eykst. Mikilvægt er að
hafa núllsýn í huga og efla að-
gerðir til að draga úr umferð-
arslysum. SAF hafa á undan-
förnum árum átt frumkvæði
að samræðum við stjórnvöld,
viðbragðsaðila og trygginga-
félög um forvarnaraðgerðir og
eru stýrisspjöld bílaleigubíla,
merkingar á ensku o.fl. afrakst-
ur af því starfi,“ segir í tilynn-
ingu.
Samkvæmt reglugerð um
gerð og búnað ökutækja er
heimilt að aka um á negldum
hjólbörðum á tímabilinu 1.
nóvember til og með 14. apríl.
SAF kalla eftir því að heimilt
verði að nota neglda hjólbarða
undir bílaleigubíla á tímabilinu
frá 1. september til og með 31.
maí. „SAF hafa löngum verið
þess sinnis að stór þáttur í að
gæta að öryggi vegfarenda hér
á landi er að heimila bílaleig-
um að bjóða til leigu ökutæki
á nagladekkjum þegar þess er
þörf. Það kallar á aukið svig-
rúm miðað við það sem reglur
gera ráð fyrir í dag. Þörf fyr-
ir aukið svigrúm tilhanda bíla-
leigum skýrist m.a. af miklum
fjölda ökutækja og tímafreku
starfi dekkjaskipta en ekki síð-
ur af því að mikil hálka og erf-
ið færð getur skapast og hefur
skapast utan núgildandi tíma-
bils nagladekkja.
Yfir vetrartímann telur bíla-
leiguflotinn hér á landi um
20 þúsund bifreiðar. Gróflega
má ætla að dekkjaskipti þurfi
að eiga sér stað á allt að fimm
þúsund bílaleigubílum hvert
haust og vor. Reynslan sýnir
að það tekur bílaleigur um sex
vikur að ljúka dekkjaskiptum á
öllum þeim flota. Til að ljúka
við dekkjaskipti fyrir 15. apríl
ár hvert má ætla að bílaleigur
þurfi að hefja dekkjaskipti upp
úr miðjum marsmánuði. Í ljósi
umferðaröryggissjónarmiða er
það vitaskuld ekki raunhæft,
enda geta veður verið válynd á
Íslandi eins og þekkt er. Sam-
tök ferðaþjónustunnar skora
því á samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra að gera breyt-
ingar á reglugerð þannig að
erlendir ferðamenn geti ekið
um á bílaleigubílum búnum
öruggasta búnaði á því tímabili
þar sem aðstæður geta verið
erfiðar.“
mm
Nagladekk eru
mikilvægur
öryggisbúnaður