Skessuhorn - 08.01.2020, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 202016
„Við erum sjóbjörgunarsveit svona
fyrst og fremst. Þó að landið hafi
verið að koma sterkt inn undanfarið
erum við sjóbjörgunarsveit í grunn-
inn,“ segir Helgi Már Bjarnason,
formaður Björgunarsveitarinn-
ar Lífsbjargar í Snæfellsbæ í sam-
tali við Skessuhorn. Helstu áhersl-
urnar í starfi sveitarinnar eru enda
björgun á sjó, en einnig er haldið
uppi unglingastarfi. Að sögn Helga
hefur stór hluti þeirra nýliða sem
hafa gengið til liðs við sveitina und-
anfarið komið inn í gegnum ung-
lingastarfið.
Húsakostur Lífsbjargar er ekki
af verri endanum og óhætt að segja
að sveitin búi að einu glæsileg-
asta björgunarsveitarhúsi landsins.
Húsið var vígt 2012 og því deilir
Lífsbjörg með slysavarnadeildinni
Helgu Bárðardóttur á Hellissandi
og slysavarnadeildinni Sumargjöf
í Ólafsvík. Helsti tækjakostur eru
bílar og bátar. Lífsbjörg á Atlantic
21, harðbotna bát og björgunar-
skipið Björgu, sem sveitin fékk af-
hent á nýliðnu sumri og leysir eldri
Björgu af hólmi. „Síðan er það For-
dinn okkar og Unimog trukkur.
Svo vorum við að fá nýjan buggy-
bíl á Þorláksmessu og erum með
hann í breytingum. Hann verður
merktur og sett á hann ljós og þá
er hann tilbúinn. Við erum búin að
safna síðustu tvö árin fyrir tæki með
sölu á Neyðarkallinum og tekin var
ákvörðun um að kaupa svona bíl,“
segir Helgi og bætir því við að hann
megi nota í ýmislegt. „Þegar hann
er kominn á belti komumst við
upp á jökul og þá er hann eiginlega
snjóbíll. Hann mun komast nánast
allt og það er erfitt að festa hann en reyndar enn erfiðara að losa hann
ef út í það er farið,“ segir formað-
urinn léttur í bragði.
Mörg verkefni á sjó
Hafið var áberandi í starfi sveitar-
innar á árinu 2019 og flest verk-
efni sem sveitin kom að tengdust
sjónum. Allnokkrir vélarvana bátar
voru dregnir til hafnar af Björg-
inni, björgunarskipi sveitarinnar,
en einnig kom sveitin til aðstoðar
nokkrum göngumönnum sem slös-
uðust í gönguferðum. „Svo fórum
við norður eftir vonda veðrið núna
í desember til aðstoðar við heima-
menn, sjö saman. Það hefur líklega
verið umfangsmesta verkefnið,“
segir Helgi. „Við fórum að leita
að hestum sem höfðu fælst und-
an veðrinu. Talið var að einhverjir
þeirra hefðu grafist undir, sem varð
síðan raunin, en við fundum þarna
29 hesta stóð,“ skýtur Ægir Þór
Þórsson björgunarsveitarmaður inn
í. „En heilt yfir var þetta tiltölulega
rólegt ár hvað varðar útköll,“ segir
hann. Við þetta má bæta að félagar
í Lífsbjörgu tóku þátt í viðamikilli
leit að manni sem týndist á göngu
í Hnappadal og leit hófst að í síð-
ustu viku. útkallið barst hins vegar
ekki fyrr en eftir að Skessuhorn var
á ferðinni í Snæfellsbæ.
Þakklátt starf
Aðspurður segir Helgi að ekki hafi
verið tekin ákvörðun um nein verk-
efni á nýju ári en að það verði gert
snemma árs. „Eftir áramótasöluna
verður tekin ákvörðun um hvað við
gerum. Það veltur allt á því hvað
selst af flugeldum,“ segir Helgi og
bætir því við að Lífsbjörg hafi nán-
ast allar sínar tekjur af flugeldasöl-
unni. „Það er allt undir henni kom-
ið,“ segir hann.
Spurður hvað felist í því að vera
björgunarsveitarmaður nefnir
Helgi strax að það sé mjög gefandi.
„Þakklætið sem maður fær þegar
maður er að aðstoða fólk, maður
sér það í augunum á fólki og finn-
ur fyrir því. Þakklætið er mjög gef-
andi,“ segir Helgi Már Bjarnason
að endingu.
kgk
Hvert er stofnár sveitarinnar?
2007
Hve margir félagar eru
í sveitinni?
40-50
Hve margir eru á útkallslista?
15
Hvert er starfssvæði
sveitarinnar?
Snæfellsbær, Breiðafjörður og
Faxaflói
Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ:
„Maður sér þakklætið í augunum á fólki og finnur fyrir því“
Helgi Már Bjarnason er formaður Björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ.
Þær stóðu vaktina í flugeldasölunni í björgunarsveitarhúsinu í Rifi þegar
Skessuhorn bar að garði. F.v. Kristín Olsen, Diljá Birna Gunnarsdóttir, Birgitta Rut
Sigurðardóttir og Ísabella Una Halldórsdóttir.
Þessi ungi piltur sýndi flugeldunum
mikinn áhuga og skoðaði úrvalið
gaumgæfilega.
„Viðbragð okkar er eins og hjá
flestum minni sveitum á lands-
byggðinni. Erum aðeins í flestu,
en þó ekki í sérhæfðri fjallabjörgun
eða slíku,“ segir Kristján Ingi Arn-
arsson, formaður Björgunarsveit-
arinnar Óskar í samtali við Skessu-
horn. „Mannskapur og tæki Ósk-
ar eru klár í minni verkefni á sjó
og flest almenn verkefni á landi.
Helsta sérhæfing okkar er straum-
vatnsbjörgun, sem nokkrir félagar
hafa fengið námskeið í og æft,“ seg-
ir Kristján og bætir því við að undir
Björgunarsveitinni Ósk, í samstarfi
við Slysavarnadeild Dalasýslu, sé
starfrækt Unglingadeildin Óskar.
Telur hún um 15 manns sem taka
þátt í reglulegum fundum og ferð-
um, að sögn formannsins.
Ósk er til húsa að Vesturbrat 12b
í Búðardal. Þar eru tæki sveitar-
innar og búnaður geymdur og smá
krókur þar sem björgunarsveitar-
menn geta tyllt sér og spjallað sam-
an yfir kaffibolla. „Helstu tækin eru
Ford Econoline, sem varð þrítug-
ur í fyrra (2019), mikið breyttur
Landrover, harðbotna slöngubátur,
sexhjól með beltabúnaði sem var
keypt nýtt vorið 2019 og tveir sleð-
ar,“ segir Kristján.
Alls kyns verkefni
Helstu verkefni liðins árs seg-
ir Kristján hafa verið þátttöku í
hópslysaæfingu á Kaldármelum,
ýmis námskeið, þátttaka í skipulagi
Landsæfingar sem haldin var í Rifi
í haust, endurnýjun endurvarpa á
Skeggöxl og fjáraflanirnar. Þar eru
sala Neyðarkalls og flugeldasalan
langstærstu verkefnin. „útköllinn
voru helst minni aðstoðarbeiðn-
ir, fyrir utan leitina á Snæfellsnesi
núna í lok árs,“ segir Kristján. „Föst
verkefni eru fjáraflanir, námskeið
og starf unglingadeildarinnar. En
síðan er alltaf verið að skoða end-
urnýjun eða breytingar á tækjum og
búnaði. Stjórn og félagar hafa ýms-
ar hugmyndir sem vonandi kom-
ast í framkvæmd á árinu. Við vitum
minna um hvort og hvaða útköll við
komum til með að fá,“ segir hann.
Nei, björgunarsveitarmaðurinn
veit aldrei hvað felst í næsta útkalli
og heldur ekki hvenær von er á því.
Er það ekki einmitt það sem felst
í starfinu? „Björgunarsveitarmaður
er tilbúinn að fara út þegar kallið
kemur. Hann leggur tíma í fjárafl-
anir, rekstur tækja og eigna og eigin
þjálfun með þátttöku í námskeiðum
og æfingum,“ segir hann. „Verk-
efnin eru úr öllum áttum og starf-
ið fjölbreytt. En þó að ábyrgðin sé
mikil og verkefnin sum hver alvar-
leg, þarf starfið að vera skemmti-
legt og félagsskapurinn góður,“
segir Kristján Ingi Arnarsson að
endingu.
kgk/ Ljósm. sm.
Björgunarsveitin Ósk í Dalabyggð
„Björgunarsveitarmaður er tilbúinn að fara út þegar kallið kemur“
Salan á gamlársdag var góð.
Hvert er stofnár sveitarinnar?
1978
Hve margir félagar eru
í sveitinni?
65 manns
Hve margir eru á útkallslista?
65 (en framundan í vetur er tölu-
verð tiltekt á listanum)
Hvert er starfssvæði
sveitarinnar?
DalabyggðKristján Ingi Arnarsson er formaður Björgunarsveitarinnar Óskar. Ljósm. sá.
Guðmundur Guðbjörnsson, Sigríður Vigdís Þórðardóttir og Jóhanna Lind Brynj-
ólfsdóttir stóðu vaktina í flugeldasölunni á gamlársdag.
Björgunarsveitir á Vesturlandi Björgunarsveitir á Vesturlandi