Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Síða 17

Skessuhorn - 08.01.2020, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 17 Björgunarsveitir á Vesturlandi Björgunarsveitir á Vesturlandi Björgunarsveitin Berserkir hefur verið starfrækt í Stykkishólmi um áratuga skeið. Formaður Berserkja til fjölda ára er Einar Þór Strand. Hann lýsir sveitinni sem almennri björgunarsveit sem starfi mikið við sjóinn, en sé ekki ólík mörgum öðrum sveitum á landsbyggðinni. „Flestar björgunarsveitir úti á landi eru tiltölulega fámennar, kjarninn þetta tíu, tuttugu, kannski þrjátíu manns. Starf sveitanna er almennt séð í beinu hlutfalli við íbúafjölda á hverju svæði, fjárhagslegur bak- hjarl á hverjum stað spilar auðvitað inn í líka,“ segir hann, en Berserkir voru einmitt að selja flugelda þeg- ar Skessuhorn bar að garði mánu- daginn 30. desember, eins og aðrar björgunarsveitir landsins. Einar tel- ur að um helmingur af tekjum Ber- serkja komi af flugeldasölunni. „Við skulum ekki gleyma að við erum búin að vera með Neyðarkallasöl- una sem hefur gengið mjög vel og svo eru bakverðir Slysavarnafélags- ins Landsbjargar. Vissulega, fyrstu árin, var þetta notað til að koma heildarsamtökunum á réttan kjöl. En núna fara bakverðirnir nánast 100% út til sveitanna, eftir ákveðn- um formúlum, sem menn geta svo rifist um hvort eru réttar eða rang- ar. En peningarnir skila sér,“ segir Einar. Helstu verkefni á hafinu Berserkir eru til húsa að Nesvegi 1a í Stykkishólmi, í húsi sem var byggt árið 2002. Í hinum enda hússins er aðstaða Brunavarna Stykkis- hólms og nágrennis. Að mati Ein- ars fer vel á því að björgunarsveit og slökkvilið séu undir sama þaki. „Oft eru sömu menn í björgunar- sveitinni og slökkviliðinu, þannig að vissulega á þetta mjög vel sam- an. Ég hefði reyndar viljað byggja stærra á sínum tíma og taka sjúkra- bílana hingað inn líka,“ segir hann og bætir því við að björgunarsveit- armenn hafi hug á því að stækka húsið á næstunni, það sé orðið of lítið fyrir starfsemi sveitarinnar. „Ef fólk kemur hingað inn þegar ekki er flugeldasala þá sjá allir að það þarf að raða inn nákvæmlega svona en ekki hinsegin, og tækin þurfa að fara inn í þessari röð og út í þessari röð,“ segir hann. „Ég veit ekki hve- nær menn leggja í að stækka en við þyrftum að gera það, bæði við og slökkviliðið,“ segir Einar en bætir því við að menn séu rétt byrjaðir að ræða hugmyndina sín í millum. „En það er hugur fyrir stækkun og ætti að vera tiltölulega auðvelt að stækka húsið með því að tvöfalda dýptina á því. Taka þakið út með skúrhalla og tvöfalda salinn að stærð. Aðstað- an uppi á lofti er kannski alveg nóg fyrir okkur, það vantar aðallega að stækka salina niðri.“ Tækjakostur Berserkja er enda þónokkur, sem þarf að geyma í húsinu. „Við erum með tvo bíla, fjórhjól og sexhjól og svo tvo báta. Einn harðbotna gúmmíbát af stærri gerðinni og annan minni, sem menn kalla tuðru sem hægt er að nota á vötnum og til að komast upp í eyjar og annað slíkt,“ segir for- maðurinn. Stærstu verkefni Ber- serkja á liðnu ári tengdust einmitt sjónum. Einar nefnir strand Blíðu síðasta sumar og síðan þegar sami bátur sökk skammt utan við Stykk- ishólm í byrjun nóvember. Einnig var strand farþegaskipsins Særúnar stórt verkefni björgunarsveitarinn- ar. „Þetta voru svona allra helstu verkefnin á árinu, en þess utan höfum við auðvitað verið í ýms- um verkefnum,“ segir hann. „Öll helstu verkefnin voru á sjónum á þessu ári, það hefur verið þannig í gegnum tíðina. Síðasta stóra verk- efnið á landi var rjúpnaskyttuleit fyrir nokkrum árum síðan,“ seg- ir Einar. Leit að göngumanninum sem týndist á Hnappadal var ekki hafin þegar Skessuhorn var hjá Berserkjum og kom það útkall því ekki til tals. Allir skipta máli Einar er reynslubolti á sviði björg- unarsveitarmála, formaður Ber- serkja til fjölda ára og formaður svæðisstjórnar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á svæði fimm. Það er því ekki úr vegi að spyrja hann hvað felst í því að vera björgunarsveitar- maður? „Það er lífsstíll,“ segir Ein- ar og blaðamaður spyr hvað felist í þeim lífsstíl. „Að vera nörd,“ seg- ir hann og hlær við, en heldur síð- an áfram. „Björgunarsveitarfólk má vera alls konar, mín vegna mega það vera frá 50 kg og undir upp í 250 kg og yfir, og á hvaða aldri sem er. Það sem þarf er fólk sem er hægt að treysta á að komi þegar á þarf að halda og það er á staðnum,“ seg- ir hann, „og síðan að hver og einn þekki sín takmörk,“ bætir hann við. „Í björgunarsveitarstarfi þurfum við ofboðslega fjölbreyttan hóp, við þurfum menn sem eru þindarlaus- ir og geta hlaupið upp á fjall á tíu mínútum. Svo þurfum við reynslu- boltana og fólk sem hugsar um bak- landið,“ segir hann. Allir hafi eitt- hvað fram að færa og framlag allra skiptir máli. „Þú getur byrjað í björgunarsveit 18 ára, jafnvel fyrr í gegnum unglingadeildirnar, og verið í björgunarsveit þangað til þú deyrð, svo lengi sem þú veist hver þín takmörk eru, hvar þinn styrk- ur liggur og þínir veikleikar. Það skiptir öllu að þekkja sjálfan sig,“ segir Einar Þór Strand að endingu. kgk Björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi „Skiptir öllu að þekkja sjálfan sig“ Einar Þór ásamt Arnari Geir Diego Ævarssyni, sem stóð vaktina í flugeldasölunni þegar Skessuhorn bar að garði. Hvert er stofnár sveitarinnar? Ekki vitað, líklega 1976 Hve margir félagar eru í sveitinni? Milli 70 og 80 manns Hve margir eru á útkallslista? 40 til 45 manns Hvert er starfssvæði sveitarinnar? Stykkishólmsbær og Helgafells- sveit Einar Þór Strand er formaður Björg- unarsveitarinnar Berserkja til fjölda ára. Björgunarsveitin Elliði er starf- rækt á sunnanverðu Snæfellsnesi. Formaður hennar er Atli Sveinn Svansson. Skessuhorn hitti hann að máli í björgunarsveitarhúsinu í Laugargerði mánudaginn 30. des- ember, þar sem hann var staddur ásamt Kristjáni Arilíussyni og Ár- sæli Dofra Andréssyni. Atli var að útbúa flugeldasýningu sem skotið er upp ár hvert á Kirkjuhóli í Stað- arsveit, en Kristján og Ársæll stóðu vaktina í flugeldasölunni og hug- uðu að öðrum verkum. Elliði hefur aðstöðu í Laugar- gerði, í húsi sem sveitin deilir með slökkviliðinu. Einnig á sveitin sölu- skúr sem hýsir flugeldasöluna og stendur hann við hlið björgunar- sveitarhússins. „Síðan eigum við öflugan jeppa og Argo, sem er fjölfarartæki sem er hægt að nota í meira og minna allt,“ segir Atli. „Hann flýtur á vatni og allt, en maður hefur ekki mikla stjórn á honum í vatninu, það þyrfti að setja mótor á hann til að væri hægt að stýra honum eitthvað,“ bætir hann við. Verkefnið að tóra Atli segir sveitina ekki hafa nein- ar sérstakar áherslur í sínu starfi. Spurður um helstu verkefni liðins árs segir Atli að félagar í Elliða fái sömu útköll og aðrar sveitir á Nes- inu og reyni að sinna þeim eins og hægt er. „En þetta hefur verið mjög rólegt ár núna, sem betur fer,“ seg- ir Atli. „Allar rjúpnaskyttur skiluðu sér heim aftur. Oft höfum við þurft að aðstoða fólk sem gengur á Eld- borg, sem dettur og slasast á göng- unni og stundum hestamenn sem detta af baki á fjörunum. En þetta hefur allt sloppið í sumar,“ segir Atli og Kristján skýtur því inn að Elliði hafi tekið þátt í stóru hóp- slysaæfingunni á Kaldármelum síðasta vor. Hún hafi verið meðal stærri verkefna Elliða á liðnu ári. Vel að merkja hófst leit að manni sem talið er að hafi týnst á göngu í Hnappadal að kvöldi mánudags- ins 30. desember, innan við átta klukkustundum eftir að Skessu- horn ræddi við Elliðamenn og því kom það verkefni ekki til tals. En eru einhver sérstök verkefni framundan hjá Elliða? „Bara að tóra held ég,“ segir Atli léttur í bragði. „Við erum ekki virk sveit þannig lagað, stundum ekki stíft starf. Við erum mjög lítil sveit og flugelda- salan er það helsta sem framundan er hjá okkur. Við erum ekki með unglingastarf, enda kannski voða lítið af þeim hérna hjá okkur. Við höfum ekki tök á að vera með mik- ið starf, það myndi bitna rosalega á örfáum aðilum. Þess utan erum við flestir, eins og ég sjálfur, kúabænd- ur og mjög bundnir vegna þess.“ Hugsjón að hjálpa fólki Að lokum bað Skessuhorn for- manninn að lýsa því hvað fælist í því að vera björgunarsveitarmaður, í hans huga. „Það er einhver hug- sjón, að geta hjálpað fólki,“ segir Atli og varpar spurningunni áfram til Kristjáns, sem er eldri en tvæ- vetur í björgunarsveitarstarfinu. „Það er að hafa drepandi áhuga og láta allt annað sitja á hakan- um,“ segir Kristján. „Þegar áhug- inn þrýtur, þá hættir maður,“ segir Atli að endingu og Kristján tekur undir það. kgk Björgunarsveitin Elliði í Eyja- og Miklaholtshreppi: „Að hafa drepandi áhuga og láta allt annað sitja á hakanum“ Hvert er stofnár sveitarinnar? 1991 Hve margir félagar eru í sveitinni? Ekki vitað Hve margir eru á útkallslista? Um 10 manns Hvert er starfssvæði sveitarinnar? Frá Malarrifi að Hítará Ársæll Dofri Andrésson, Atli Sveinn Svansson formaður og feðgarnir Arilíus Krist- jánsson og Kristján Arilíusson. Allir eru þeir félagar í Björgunarsveitinni Elliða. Atli Sveinn Svansson, formaður Björgunarsveitarinnar Elliða, við flugeldasýn- inguna sem hann var að tengja þegar Skessuhorn bar að garði. Kristján Arilíusson hefur verið félagi í Elliða frá stofnun sveitarinnar árið 1991.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.