Skessuhorn - 18.03.2020, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 12. tbl. 23. árg. 18. mars 2020 - kr. 950 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
arionbanki.is
Núna getur þú sett þér markmið
í sparnaði í Arion appinu
Tíminn vinnur
með þér í sparnaði
Tilboð gildir út mars 2020
með sweet chili
Deep fried shrimp
with sweet chili
999 kr.
Í síðvetrarstillu við Hvítá í Borgarfirði. Brúin ber aldur sinn vel - af mörgum talin eitt fallegasta mannvirki liðinnar aldar. Ljósm. Ásþór Ragnarsson.
Stjórnvöld virkjuðu síðastliðinn
föstudag heimildir í sóttvarnarlög-
um til að takmarka samkomur á Ís-
landi. Er það gert til að hefta út-
breiðslu Covid 19 veirunnar. Í því
felst sú fordæmalausa aðgerð að
takmarkanir eru settar á allar skipu-
lagðar samkomur. Með samkomub-
anni er átt við skipulagða viðburði
þar sem fleiri en hundrað manns
koma saman. Við öll minni manna-
mót þarf auk þess að tryggja að
nánd milli manna verði yfir tveim-
ur metrum og að aðgengi að hand-
þvotti og handspritti sé gott. Bann-
ið tók gildi á miðnætti síðastliðið
sunnudagskvöld og varir til 13. apríl
næstkomandi, annan páskadag.
Skipulagðir viðburðir sem bann-
ið nær til eru til dæmis ráðstefnur,
málþing, fundir og hliðstæðir við-
burðir, skemmtanir, svo sem tón-
leikar, leiksýningar, bíósýning-
ar, íþróttaviðburðir og einkasam-
kvæmi. Auk þess kirkjuathafnir
hvers konar, svo sem vegna útfara,
giftinga, ferminga og annarra trúar-
samkoma. Varðandi síðastnefnda
þáttinn hefur ákvörðun verið tekin
innan Þjóðkirkjunnar að fresta öll-
um fermingarathöfnum sem á dag-
skrá voru í vor og sömuleiðis hefur
Siðmennt ákveðið slíkt hið sama.
Eðli málsins samkvæmt verða út-
farir sem fara fram þetta tímabil fá-
mennari en ella, en á það bent að
hægt er að senda út frá slíkum at-
höfnum með ýmsum hætti.
Auk þessa þurfa allir aðrir sam-
komu- og vinnustaðir að tryggja
að ekki séu á sama tíma fleiri en
hundrað manns inni í sama rými.
Þetta á t.d. við um vinnustaði,
veitingastaði, mötuneyti, kaffihús,
skemmtistaði, verslanir, sundlaug-
ar, líkamsræktarstöðvar og söfn.
Þessi mörk eiga einnig við um al-
menningssamgöngur og aðra sam-
bærilegra starfsemi. Á samkom-
um, öllum vinnustöðum og í allri
annarri starfsemi þar sem færri en
hundrað eru saman komnir, skal
eins og mögulegt er skipuleggja
rými þannig að hægt sé að hafa að
minnsta kosti tvo metra á milli ein-
staklinga.
Þá var ákveðin takmörkun á
skólastarfi vegna farsóttar og tók
það bann gildi mánudaginn 16.
mars og gildir til 12. apríl. Ákveð-
ið hefur verið að fella niður reglu-
bundið skólastarf í öllum fram-
halds- og háskólum í landinu og
sinna nemendur þessara skóla fjar-
námi. Leik- og grunnskólar verða
þó áfram starfræktir en með veru-
lega breyttu sniði. Það var lagt í
hendur sveitarfélögum sem þeim
Samkomubann mun hafa
víðtæk áhrif næsta mánuðinn
skólastofnunum stýra að útfæra
reglur um hvernig fólk beri sig
að. Síðastliðinn mánudag var víða
starfssdagur í skólum til að skipu-
leggja framhaldið.
Sjá nánar fréttir um áhrif
Covid-19 veirunnar á bls 10-14.
mm
Frá blaðamannafundi síðastliðinn föstudag þegar m.a. var lýst yfir samkomub-
anni og breyttu skólahaldi.
• 2 STÓ
RAR P
IZZUR
AF M
ATSEÐ
LI
• 2 ME
ÐLÆT
I AÐ E
IGIN V
ALI
• 2 SÓS
UR AÐ
EIGIN
VALI
• 2 L G
OS
AÐEIN
S 5.9
90 KR
.