Skessuhorn - 18.03.2020, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 202022
Á fundi sveitarstjórnar Borgar-
byggðar síðastliðinn fimmtudag
spunnust talsverðar umræður um
greiningu á þjónustuferlum sem
Capacent vann fyrir sveitarfélagið
og var lögð fyrir sveitarstjórnar-
fulltrúa 7. nóvember síðastliðinn.
Í þeirri úttekt koma samkvæmt
heimildum Skessuhorns fram at-
hugasemdir um hvað gangi vel og
annað sem mætti bæta í ákveðnum
ferlum stjórnsýslunnar og lagðar
fram tillögur til úrbóta. Ferlagrein-
ing Capacent hefur verið kynnt
kjörnum fulltrúum en ekki ver-
ið birt opinberlega, en fram kom
í umræðum um málið á sveitar-
stjórnarfundi síðastliðinn fimmtu-
dag að meirihluti sveitarstjórnar
segir að unnið sé úr ábendingum
sem þar er að finna. „Ferlagrein-
ing Capacent er ekki heildstæð
stjórnsýsluúttekt heldur greining á
ákveðnum ferlum innan stjórnsýsl-
unnar,“ segir í bókun sem fulltrúar
meirihlutans lögðu fram á fundin-
um. Einnig var ítrekað að birta eigi
skýrsluna almenningi á sama tíma
og úrbótaáætlun verði lögð fram
en hún verður unnin í samráði við
nýjan sveitarstjóra sem hefur störf
26. mars næstkomandi. Samkvæmt
heimildum Skessuhorns er nú ver-
ið að leggja mat á það hvort að fá
eigi frekari ferlagreiningu á öðrum
sviðum innan stjórnsýslunnar, áður
en að lengra verður haldið og í kjöl-
farið að vinna alhliða úrbótaáætlun
út frá þeim veikleikum sem koma
fram. Sú skýrsla sem fyrir liggur í
kjölfar ferlagreiningar og unnin var
á síðasta ári er vinnugagn og tek-
ur fyrst og fremst mið af ferlum á
skipulags- og umhverfissviði.
Hörð gagnrýni
Það var Guðveig Lind Eyglóar-
dóttir, oddviti Framsóknarflokks
í minnihluta, sem hóf máls á því
sem hún kallaði þöggun á niður-
stöðu skýrslunnar. Lagði hún fram
bókun þar sem lýst er vonbrigðum
með að stjórnsýsluúttekt Capacent
skuli ekki enn hafa verið lögð fram.
Hafnaði hún þeim útskýringum
meirihlutans að ferlagreiningu og
úrbótaáætlun sé ekki lokið. Benti
hún á að hvoru tveggja sé þegar
gerð skil í skýrslunni með fullnægj-
andi hætti. Í bókun hennar segir
meðal annars: „Þann 9. maí 2019
staðfesti sveitarstjórn verkefnatil-
lögu Capacent er snéri að grein-
ingu og mótun úrbótaáætlunar á
þjónustuferlum sveitarfélagsins.
Fyrir vinnuna greiddi sveitarfélagið
um 3 milljónir. Markmið verkefn-
isins var að greina og leggja mat á
styrkleika og veikleika í þjónustu,
verkaskiptingu og samstarfi. Greina
hvernig unnt væri að auka skilvirkni
í stjórnkerfi bæjarins með breyt-
ingum á verkferlum og samstarfi,
með sérstaka áherslu á umhverf-
is- og skipulagssvið. Móta úrbóta-
áætlun þar sem fram koma verkefni
eða aðgerðir til að auka samvinnu,
afmá grá svæði og auka afgreiðslu-
hraða og þjónustu sveitarfélags-
ins. Þann 7. nóvember 2019 skilaði
Capacent skýrslunni þar sem gagn-
leg úttekt og greining hefur verið
gerð á stjórnsýslunni, varpað ljósi á
veikleika og greinargóðar tillögur
lagðar fram að úrbótum. Fulltrúar
Framsóknarflokksins telja að engar
frekari tafir megi vera á því að bæta
veikleika í þjónustu, verkaskiptingu
og samstarfi á umhverfis- og skipu-
lagssviði.“
Unnið er að úrbótum
Þeim ábendingum sem fram kom
í bókun Guðveigar svaraði Guð-
mundur Freyr Kristbergsson sveit-
arstjórnarfulltrúi (VG) og formað-
ur umhverfis- og skipulagsnefndar.
Lagði hann fram bókun fyrir hönd
meirihluta sveitarstjórnar: „Sveit-
arstjórnarfundir eru ekki vettvang-
urinn til að ræða einstaka starfs-
mannamál. Ferlagreining Capa-
cent er ekki heildstæð stjórnsýslu-
úttekt heldur greining á ákveðnum
ferlum innan stjórnsýslunnar. Ver-
ið er að vinna heildstætt að eflingu
gæða í stjórnsýslu og verklagi sveit-
arfélagsins og í umræðunni er að
láta greina frekari ferla og mögu-
lega móta heildstæða þjónustu-
stefnu í kjölfarið. Því telur meiri-
hlutinn ekki skynsamlegt að birta
einstaka vinnugagn sem lagt verður
til grundvallar í þeirri vinnu. Mik-
ilvægt er að að nýr framkvæmda-
stjóri komi að vinnunni og verð-
ur hún sett í forgang eftir að sveit-
arstjóri hefur hafið störf nú síðar í
þessum mánuði. Þó svo að meiri-
hluti og minnihluti séu ekki sam-
mála um það hvernig best sé að
nálgast verkefnin hverju sinni þá
þýðir það ekki, að ekki sé verið að
vinna í málunum.“ mm
Ungmennafélagið Ólafur Pá í Döl-
um er nú langt komið með undir-
búning fyrir opnun líkamsræktar-
stöðvar. Félagið festi nýverið kaup á
húsnæði fyrir líkamsræktina á Vest-
urbraut 8 í Búðardal. Síðustu vik-
ur hefur fjöldi fólks unnið hörðum
höndum í sjálfboðavinnu við fram-
kvæmdir í húsnæðinu ásamt því að
flytja öll tæki og tól, en starfsemin
var áður til húsa á Vesturbraut 20.
Líkamsræktarsalurinn er nú tilbú-
inn sem slíkur en þessa dagana er
verið að vinna í sturtu- og búnings-
klefum. Gert er ráð fyrir að auglýsa
formlega opnun þegar framkvæmd-
um verður lokið.
sm
Í liðinni viku hófst niðurrif á íbúð-
arhúsi og bílskúrum við Ólafsbraut
62 og Ólafsbraut 64 í Ólafsvík. Á
vef Snæfellsbæjar segir að áætlað sé
að vinna við niðurrif standi næstu
vikurnar og verði lokið í fyrri hluta
aprílmánaðar. Fyrirhugað er að
nýta lóðina til byggingar á íbúða-
kjarna fyrir fatlaða, eins og greint
hefur verið frá í Skessuhorni.
Það er Stafnafell ehf. sem sér
um niðurrif húsanna auk efnis-
töku úr hlíðum sunnanmegin lóð-
anna tveggja og jarðvegsskipti und-
ir nýja byggingu. „Vegfarendur
eru beðnir að sýna sérstaka aðgát
við vinnusvæðið sökum umferðar
vinnuvéla,“ segir í tilkynningu frá
Snæfellsbæ.
mm
Byrjað var að rífa skúrana. Ljósm. Snæfellsbær.
Rýmt fyrir nýjum
þjónustukjarna í Ólafsvík
Húsið Dvergasteinn var rifið fyrir helgina. Ljósm. af.
Jóhanna Vigdís Pálmadóttir
og Katrín Einarsdóttir mættu
á svæðið með feðrum sínum
og fengu að takast á við æf-
ingar á meðan feðurnir unnu
við smíðavinnu í ræktinni.
Ný líkamsræktarstöð að verða
tilbúin í Búðardal
Á góðum framkvæmdadegi. Jón Egill Jónsson og Bergþóra Jóhannsdóttir eru í stjórn Ungmennafélags Ólafs Pá ásamt Ingi-
björgu Jóhannsdóttur, sem var upptekin í öðrum verkefnum þegar myndin var tekin.
Kallar eftir niðurstöðu ferlagreiningar