Skessuhorn


Skessuhorn - 15.07.2020, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 15.07.2020, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 15. júlÍ 202012 Samgönguáætlun til fimmtán ára 2020-2034 og aðgerðaáætl- un til fimm ára 2020-2024 voru samþykktar samhljóða á Alþingi skömmu fyrir þinglok. Um er að ræða uppfærða og endurskoðaða samgönguáætlun á grunni þeirrar sem samþykkt var í febrúar 2019. Nýsamþykkt samgönguáætlun er ein sú umfangsmesta sem samþykkt hefur verið og felur í sér framtíðar- sýn og áform um nýframkvæmd- ir og viðhald á vegum, höfnum og flugvöllum um land allt. Bein framlög til samgöngumála nema um 640 milljörðum króna á fimm- tán ára tímabili samgönguáætlunar. Sérstök 6,5 milljarða aukafjárveit- ing fyrir samgönguframkvæmd- ir árið 2020 úr fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar í vor vegna Co- vid-19 hefur verið felld inn í áætl- unina. „Grunntónn samgönguáætlunar er að auka öryggi í samgöngum, stytta vegalengdir milli byggða, efla atvinnusvæði á landinu öllu og markvissar aðgerðir til draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í áætluninni er einnig kappkostað að fjölga og flýta samgöngufram- kvæmdum frá fyrri áætlun en við það skapast fjölmörg ný störf þegar í ár og næstu ár. Alls er áætlað að 8.700 störf verði til á næstu árum vegna framkvæmda vegna samgön- guáætlunar,“ segir í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu. Fjölmörgum framkvæmdum um land allt er flýtt á tímabili áætlun- arinnar með sérstakri áherslu á að bæta umferðaröryggi og tengingar milli byggða. Sérstök áhersla verð- ur lögð á að aðskilja akstursstefnur á umferðarþungum vegum frá höf- uðborgarsvæðinu að Borgarnesi, austur fyrir Hellu og að leifsstöð. Einnig verður einbreiðum brúm fækkað á þjóðveginum. Lög um samvinnuverk- efni samþykkt Þá voru einnig samþykkt ný lög um samvinnuverkefni í vegafram- kvæmdum (PPP) en þau heimila samstarf hins opinbera og einkaað- ila um tilteknar framkvæmdir við samgöngumannvirki og gjaldtöku vegna þeirra. „Markmið laganna er að flýta uppbyggingu mikil- vægra samgönguinnviða enn frek- ar, stytta vegalengdir og auka um- ferðaröryggi. Í öllum framkvæmd- unum munu vegfarendur hafa val um aðra leið og greiða ekki gjald á þeirri leið. Í lok samningstíma telj- ast mannvirki eign ríkisins án sér- staks endurgjalds,“ sagði í tilkynn- ingunni. „Þau verkefni sem falla und- ir löggjöfina eru ný brú yfir Ölf- usá ofan Selfoss, láglendisvegur og göng í gegnum Reynisfjall, ný brú yfir Hornafjarðarfljót, nýr vegur yfir Öxi, önnur göng undir Hval- fjörð og hin langþráða Sundabraut. Allt eru þetta verkefni sem fela í sér verulega styttingu leiða og aukið öryggi en þeir sem vilja ekki nýta sér þessi mannvirki geta áfram farið aðra leið en munu þá verða af þeim ávinningi, fjárhagslegum og varð- andi öryggi,“ segir Sigurður Ingi jóhannsson samgönguráðherra. Höggvið á hnút Þá voru sömuleiðis samþykkt lög sem heimila stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu sam- gönguinnviða á höfuðborgarsvæð- inu en framkvæmdir munu byggj- ast á samgöngusáttmála ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu sem undirritaður var í fyrra. „Með samgönguáætlun og stofnun hlutafélags um uppbygg- ingu samgönguinnviða á höfuð- borgarsvæðisins er stigið stærsta skref sem stigið hefur verið í upp- byggingu á höfuðborgarsvæðinu. Með honum var höggvið á þann hnút sem hefur verið í samskiptum ríkisins og sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu og komið hafði í veg fyrir alvöru uppbyggingu á svæðinu,“ segir ráðherra. Sérstök jarðgangaáætl- un í fyrsta sinn Sérstök jarðgangaáætlun er kynnt í fyrsta sinn í samgönguáætlun. Mið- að er við að jafnaði sé unnið í ein- um göngum á landinu á hverjum tíma. Þar er gert ráð fyrir að fram- kvæmdum við Dýrafjarðargöng ljúki árið 2020. Þá er miðað við það að flýta upphafi framkvæmda við Fjarðarheiðargöng þannig að þær hefjist árið 2022 eða talsvert fyrr en áður hefur verið ráðgert. Í kjölfar- ið hefjast framkvæmdir á göngum milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarð- ar og síðan frá Mjóafirði til Norð- fjarðar og þannig verði komið á hringtengingu á svæðinu. Ný flugstefna og skoska leiðin Með samgönguáætlun er kynnt fyrsta flugstefna Íslands. Markmið flugstefnunnar er m.a. að efla innan- landsflug sem hefur átt undir högg að sækja á síðustu árum. Innanlands- flugið verður nú hluti af almenn- ingssamgangnakerfi landsins. Eitt af því sem flugstefnan felur í sér er skilvirkt kerfi alþjóðaflugvalla hér á landi sem er samþætt og á einni hendi og að stutt verði við mögu- leika á fleiri hliðum inn til landsins til að fjölga svæðum sem geta notið góðs af ferðaþjónustu. Annað sem flugstefnan felur í sér er niðurgreiðsla á flugi íbúa á lands- byggðinni til höfuðborgarinnar þar sem mjög stór hluti allrar þjónustu ríkisins hefur verið byggður upp. Þetta hefur í daglegu tali verið nefnt „skoska leiðin“ en stefnt er að niður- greiðslur hefjist í haust. „Það er mik- ið réttlætismál að þeir sem búa fjarri höfuðborginni og vilja og þurfa að sækja þjónustu þangað fái niður- greiðslur á ferðum sínum með flugi. Þetta er mikilvægt skref í því að jafna aðstöðumun þeirra sem búa annar staðar en á suðvesturhorninu,“ segir ráðherra. Ný stefna um almenn- ingssamgöngur Innan samgönguáætlunar er einnig ný heildarstefna um almenningssam- göngur milli byggða. Þar er gert ráð fyrir að almenningssamgöngur með flugi, ferjum og almenningsvögn- um myndi eina sterka heild og boðið verði upp á eitt leiðarkerfi fyrir allt landið með bættu aðgengi. Í stefn- unni er mikil áhersla á uppbyggingu göngu- og hjólastíga og reiðvega. „Sterkt almenningssamgöngu- kerfi um land allt, sem tengir sam- an byggðakjarna landsins og höfuð- borgarsvæðið við landsbyggðina, er forsenda þess að jafna stöðu lands- manna og færa okkur nær hvert öðru. Nýrri stefnu ríkisins um al- menningssamgöngur sem mótuð hefur verið í fyrsta sinn er ætlað að tryggja að þær verði raunhæfur val- kostur fyrir alla landsmenn,“ seg- ir Sigurður Ingi jóhannsson sam- gönguráðherra. mm/ Ljósm. úr safni. Nýsamþykkt samgönguáætlun boðar framkvæmdir um land allt og fjölmörg ný störf

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.