Skessuhorn


Skessuhorn - 15.07.2020, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 15.07.2020, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 15. júlÍ 202014 Mjög svo óvenjulegt skip átti við- komu á Grundarfirði um helgina. lúxussnekkjan Ragnar er skráð á Möltu og gaman að rifja upp sögu hennar. útlit Ragnars er mjög framúrstefnulegt. Upphaflega var skipið smíðað 2012 í Hollandi og hét Sanaborg og var ísbrjótur. Það er 68,2m á lengd og 14m á breidd. Ísbrjóturinn hafði svo legið ónot- aður um hríð þegar núverandi eig- andi eignaðist hann 2017 og réðist í að breyta honum í lúxussnekkju og lauk því verki snemma á þessu ári. útlitið er sagt skýrast af áhuga eigandans á miðaldabardögum og vopnum þess tíma. Á yfirbygging- in að svipa til hjálms líkt og menn báru í bardögum þess tíma. Sér- staða Ragnars er að hann er með vottun til að sigla í ís. Á að geta haldið 4 mílna ferð í 50 cm. þykkum ís og athafnað sig í kulda allt niður í -35°C. Um borð er pláss fyrir 16 gesti sem geta gist í átta káetum, þar af eru tvær stórar svítur. Einn- ig er í skipinu að finna sundlaug, nuddpott, límasræktarsal og gufu- bað svo eitthvað sé nefnt. Ragnar er vel búinn ýmsum búnaði. Þar á meðal er þyrla, könnunarkafbátur, rib bátur, tvær sæþotur og Ripsaw EV2 lúxus skriðdreki! Ekki hefur komið fram hverjir ferðast með Ragnari úti fyrir strönd Íslands, en fram hefur komið að vikuleiga er 75 milljónir króna. Það er því ekki á færi nema vel stæðra að leigja slíka lúxussnekkju. mm Starfsemi siglingaklúbbsins Sigur- fara hefur gengið vel í sumar, að sögn Guðmundar Benediktsson- ar formanns. „Siglinganámskeiðin okkar hafa verið fullbókuð og feng- ið góðar undirtektir. Nú eru þrjár vikur eftir. Vikulangar æfingabúð- ir Siglingasambandsins, þær þriðju á fimm árum, voru haldnar í kjölfar Faxaflóamóts kjölbáta sem fór fram 27. og 28. júní. Siglingamenn eru mjög ánægðir með aðstæður hér, á og við Akranes, og það er ljóst að bærinn okkar er orðinn fastur punktur í siglingalífi landsmanna,“ segir Guðmundur. Þá fylgdi kayakfólk frá Sigurfara sundfólki í Helgasundi sem synt var á Írskum dögum til minningar um Helga Hannesson sundkenn- ara. „Hér í bæ er fjöldi sjókayaka en okkur finnst að þeir mættu vera oftar á sjó. Sem liður í að hvetja ka- yakeigendur til dáða ætlum við að bjóða upp á námskeið á næstunni þar sem farið veður í grunnatriðin, hvernig best er að búa sig og hluti sem varða öryggi. Þetta námskeið verður haldið við fyrstu hentug- leika. Siglinganámskeiðin okkar hafa miðast við 10-14 ára því að bátarn- ir okkar henta illa eldri en það. Við viljum samt höfða til fleiri aldurs- hópa og í næstu viku verður hald- ið hér siglinganámskeið fyrir full- orðna í samstarfi við siglingafélagið Brokey úr Reykjavík. Hingað mun koma skútan Sigurvon með kenn- ara, en hún tók þátt í Faxaflóa- mótinu. Námskeiðið verður dag- ana 20., 22. og 23. júlí kl. 18 - 22 og komast fjórir að. Ef undirtekt- ir verða góðar er möguleiki á dag- námskeiði sömu daga,“ segir Guð- mundur og bætir við að það sé von Sigurfarafólks að þetta námskeið muni kveikja siglingaáhuga ein- hverra á Akranesi og efla þann sem fyrir er. mm/ Ljósm. Guðm. Ben. Á fundi Byggðarráðs Borgar- byggðar um miðjan júní var fjallað um niðurrif á tveimur bröggum við Egilsholt í Borgarnesi, ofan við verslunarhús Kaupfélagsins og Húsasmiðjunnar. Braggarnir voru síðast í eigu Kaupfélags Borgfirð- inga en nú í eigu Borgarbyggðar. Þeir hafa í gegnum tíðina gegnt ýmsu hlutverki. Meðal annars sem áburðargeymsla á vegum Áburð- arverksmiðjunnar í Gufunesi. Nú stendur til að rífa braggana til að rýma fyrir nýju skipulagi og hefur byggðarráð falið sveitarstjóra að auglýsa eftir áhuasömum aðila til að fjarlæga þá gegn því að eignast byggingarefnið. Hernámsárin voru viðburðarík- ur tími í Borgarnesi líkt og í fleiri byggðarlögum landsins. Hundruð hermanna dvöldu í Borgarnesi frá hausti 1940 og fram til 1943, fyrst breskir og síðan bandarískir. Frá því er greint á upplýsingasíðu Safna- húss Borgarfjarðar að þegar Bret- arnir komu haustið 1940 voru þeir 580 talsins, en þá bjuggu í Borg- arnesi um 600 manns. Viðbrigðin voru því mikil fyrir Borgnesinga þegar íbúatalan tvöfaldaðist. „Þrjú braggahverfi voru reist í Borgarnesi yfir hermennina. Eitt var á túni jóns Björnssonar kaup- manns frá Bæ í Bæjarsveit, þar sem nú er ráðhús Borgarbyggð- ar, eitt var á túni jóns Björnsson- ar kaupmanns frá Svarfhóli í Staf- holtstungum, þar sem nú er rað- húsalengjan Borgarbraut 35-45, oft kölluð langavitleysan og loks eitt á knattspyrnuvelli ungmenna- félagsins Skallagríms í Neðri- Sandvík, þar sem nú er mennta- og menningarhúsið Hjálmaklettur. Einnig voru reist varðskýli og stak- ir braggar hér og þar um bæinn. Þegar Bandaríkjamenn tóku við af Bretum reistu þeir braggahverfi við Engjaás fyrir ofan Borgarnes. Margir Borgnesingar og nærsveit- ungar unnu við braggagerðina fyr- ir herinn,“ segir í frásögn á síðu Safnahússins. Tveir braggar sem reistir voru á stríðsárunum standa enn. Þeir eru við Egilsholt ofan við Borg- arnes og blasa við þeim sem eiga leið um þjóðveg eitt. Á þessu svæði var einnig skotfærageymsla sem sprengt var inn í klett og loftvarna- byssa þar sem hermenn gættu inn- komuleiðarinnar að Borgarnesi. Tímar gömlu herbragganna verða nú brátt taldir á þessum stað, en spurning hvort áhugasamir ein- staklingar vilja taka að sér rif þeirra og nýta efnið til að reisa þá á nýjum stað mm Sigurfari stendur fyrir námskeiðum í sjókayakasiglingum Ákveðið hefur verið að braggarnir við Egilsholt í Borgarnesi verði rifnir. Þeir eru síðustu vel sýnilegu stríðsminjarnar sem enn standa uppi í Borgarnesi. Ljósm. Þorleifur Geirsson. Síðustu stríðsminjarnar á förum úr Borgarnesi Lúxussnekkjan Ragnar átti viðkomu á Grundarfirði Ragnar við ankeri út af Grundarfirði. Ljósm. Sverrir Karlsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.