Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2020, Page 4

Skessuhorn - 26.08.2020, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 26. áGúSt 20204 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Veðráttan hefur allt að segja Undanfarin kvöld hef ég haldið mig upp í Borgarfirði. Keypti fyrr í sumar gamalt sumarhús, eða kofa öllu heldur, og flutti á lóð á æskuslóðum. Hef svo verið að basla við að koma fúavörn á veggi og mála þak. Óþægilega hef ég verið minntur á það að eftir því sem árin færast yfir og kílóum hef- ur fjölgað, þá hefur að sama skapi dregið úr lipurðinni að príla í þakstig- um við málningarvinnu. Og ekki hjálpar lofthræðslan. Ég var því aldeilis óskaplega glaður við sólsetur á mánudagskvöldið þegar ég náði að ljúka við síðari umferðina á skúrþakinu og búinn að komast heilu og höldnu niður á jafnsléttu. Einstaka strengir og aumir liðir, svokallaður málverkur, skrifast á kyrrstöðuvinnu og ekki við neinn að sakast annan en mig sjálfan. En það sem kom mér mest á óvart þessa fjóra undanfarna daga við máln- ingarstörf var veðrið. Hvílík einmuna veðurblíða dag eftir dag; logn og heiðskír himinn, hátt í tuttugu stiga hiti. Þessu á maður hreint ekki að venjast og þó held ég að vestanvert landið sé í þokkalegu meðallagi hvað veðursæld snertir. Það var gaman að fylgjast með því þarna af mæni skúr- þaksins þegar bændur voru að hirða heim síðustu heyrúllurnar eftir annan slátt og sumir reyndar eftir þriðja. Mófuglarnir voru á förum, stóðu reynd- ar nokkrir á beit í ræktarlegu berjalyngi til að fita sig fyrir utanför. Blátt dritið bar þess allavega merki á nýmáluðu þakinu. Þarna uppi á mæni gafst mér sömuleiðis ágætur tími til hugrenninga. Í fersku minni var vettvangs- ferð upp í Hvítársíðu og Hálsasveit í liðinni viku þegar ég skoðaði ummerki eftir gríðarlegt aurflóð sem varð í Hvítá aðfararnótt þriðjudags. á nokkr- um klukkutímum skilaði Langjökull af sér í ægilegri gusu af uppsöfnuðu leirblönduðu lóni sem safnast hafði fyrir undir jökulröndinni í tímans rás. Þarna höfðu vissulega átt sér stað hamfarir þegar á fjórða milljón rúmmetra af aur braust til sjávar og drap allan þann fisk sem fyrir var í ánni. Vafalítið má í stóra samhenginu rekja þetta til hlýnunar jarðar. Sérfræðingar segja að vegna þynnri lofthjúps snjói sífellt minna en áður og því muni jöklarnir hopa þar sem árleg bráðnun er meiri en nýi snjór- inn hverju sinni. Þessi breytta veðrátta mun áfram valda ýmsum vanda- málum, stundum fyrirséðum, en þó ekki alltaf. Um allan heim segja þessir sömu sérfræðingar að lón myndist eða hverfi og jökulhlaup geti því orð- ið á óvæntum stöðum samfara hopi jökla. Slíkar breytingar geti svo aftur valdið talsverðum vandamálum því ýmis mannvirki og starfsemi miðist við farvegi vatnsfalla eins og jöklarnir voru áður en þetta hlýindaskeið hófst. Þessar veðurfarsbreytingar verða til þess að endurskoða þarf hönnun vega og annarra samgöngumannvirkja, staðsetningu húsa auk annarrar starfsemi í nálægð jöklanna og vatnsfalla frá þeim. Þá má sömuleiðis gera ráð fyrir því að þróunin hafi áhrif á það vatn sem vatnsaflsvirkjanir þurfa til að knýja túrbínurnar. Nú svo af því við lifum á eldfjallaeyju má búast við fleiri eld- gosum af því jökulhettan léttist. Við erum því að lifa breytta tíma hvað veðráttuna varðar. Allavega man ég vel sumur sem ekki hefði verið viðlit að fúaverja hús, ekki einusinni lít- inn kofa. Því geri ég hreint ekki lítið úr umræðunni um áhrif hnattrænnar hlýnunar. Þótt loftmengun sé ekki endilega mikil hér á landi er hún gríð- arleg víða í iðnríkjunum. Mengandi stóriðja eða ökutæki og hvaðeina sem hefur skaðleg áhrif á lofthjúpinn umhverfis jörðina okkar er því ekki einka- mál þeirra sem því valda. Við sem höfum þessa jörð að láni eigum að bera virðingu fyrir henni. Ef okkur er ekki sama hvert stefnir, eigum við að taka undir gagnrýni á skaðlega mengun, hvar sem hana er að finna. Magnús Magnússon Lenging Norðurgarðsins í Ólafs- víkvikurhöfn gengur vel, að sögn Björn Arnaldssonar hafnarstjóra í Snæfallsbæ. Lenging garðsins er 80 metrar og verktakar eru Grjót- verk frá Hnífsdal. „Við áætlum að heildarkostnaður við þessar fram- kvæmdir verði um 170 miljónir króna,“ segir Björn. Hann bætir við að alls fari um 40 þúsund rúmmetr- ar af efni í verkið. Lengingin muni skila meiri kyrrð innan hafnarinn- ar og innsiglingin mun sömuleiðis verða öruggari. Verklok eru áætluð í lok október. af Það var bjart yfir hópi eldri borg- ara á Akranesi sem fór í morgun- göngu á mánudagsmorgun. Sól skein í heiði og óhætt að segja að sál hafi einnig verið í sinni þátttakenda sem hér teygja fyrir morgungöng- una. Hópurinn hittist reglulega á mánudögum og miðvikudögum og finnur sér skemmtilegar gönguleið- ir innan sem utan bæjarins. mm/ Ljósm. Helga Ó Oliversdóttir. Þrátt fyrir Covid 19 þá hefur stjórn Félags skógarbænda á Vesturlandi ákveðið að halda aðalfund félagsins eins og áður hafði verið ráðgert. Í samráði við Hótel Hamar í Borgar- nesi er gert ráð fyrir sóttvörnum og að fundarmenn geti haldið tveggja metra regluna bæði á fundinum og við borðhald. „Mikilvægt er að fundarmenn virði allar sóttvarn- ir og benda má á að sjálfsagt er að nota grímur,“ segir í tilkynningu. Fundurinn verður á morgun, fimmtudaginn 27. ágúst, og hefst klukkan 18. á dagskrá verða venju- leg aðalfundarstörf og kosningar. Gestir fundarins verða Sæmund- ur Þorvaldsson, skógræktarráðgjafi Skógræktarinnar á Vesturlandi, og Hlynur Gauti Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri LSE. mm Starfsmenn fyrirtækisins Verkvík-Sandtak ehf. eru þessa dagana að sandblása vatnstankinn í Grundar- firði. Hvíti liturinn mun víkja fyrir sandblásturs- vélum starfsmanna fyrir- tækisins. Öflugum búnaði hefur verið komið fyr- ir við tankinn sem knýr vélarnar af miklum krafti þegar tankurinn er ryð- hreinsaður. tfk Vatnstankurinn í yfirhalningu Líkamsrækt í góða veðrinu Frá heimsókn skógræktarfólks í Ferstikluskóg fyrr í sumar. Skógræktarfólk heldur aðalfund Framkvæmdir við lengingu Norðurgarðsins í Ólafsvík

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.