Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2020, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 26.08.2020, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 26. áGúSt 2020 17 Gunnar Svanlaugsson tók að sjálfsögðu þátt í hlaupinu. Hlupu fyrir Berglindi í Stykkishólmi á laugardaginn Glaðbeittir hlauparar úr körfunni. Hlaupaleiðir voru allar skipulagðar innanbæjar. Berglind og fjölskylda hennar féllust í faðma að hlaupi loknu. Síðastliðinn laugardag var boðað til áheitahlaups í Stykkishólmi til stuðnings Berglindi Gunnarsdótt- ur, 27 ára körfuboltakonu úr Snæ- felli og læknanema við HÍ. Berg- lind slasaðist á hálsi og mænu í rú- tuslysi í byrjun þessa árs og er nú í stífu endurhæfingarverkefni. Mik- ið keppnisskap hefur hjálpað henni í gegnum hennar endurhæfingu, en þó er enn langt í land að hún nái fullum bata. Það var hlaupahópur- inn „Hlaupum fyrir Berglindi“ sem stóð fyrir skipulagningu hlaupsins að frumkvæði þeirra Gunnhildar Gunnarsdóttur og Sigríðar Erlu Sturludóttur. Höfðu þær áður safn- að áheitum fyrir sinn málstað því hópurinn hugðist hlaupa í Reykja- víkurmaraþoninu sem átti að fara fram á laugardaginn, en var slegið af vegna Covid. „Við ákváðum að henda í hlaup í Stykkishólmi fyrst ekkert varð úr maraþoni. Við erum stór og þéttur hópur, sambland af Hólmurum, fjölskyldu og vinum, ásamt góðu fólki úr körfuboltanum og læknisfræðinni,“ sagði Sigríður Erla Sturludóttir forsprakki mál- staðarins, Hólmari og góðvinkona Berglindar, í samtali við Skessu- horn. Um áttatíu manns skráðu sig í hlaupið sem fram fór í einmuna veðurblíðu í Stykkishólmi á laug- ardaginn. Óhætt er að segja að áheita- hlaupið hafi snert við taugum íbúa í Stykkishólmi. Sumarliði ás- geirsson ljósmyndari Skessuhorns fylgdist með hlaupinu og seg- ist aldrei hafa upplifað annan eins samhug meðal íbúa, hvorki fyrr né síðar. Þegar áttatíu hlauparar ýmist hlupu hálft maraþon, tíu kílómetra hlaup eða skemmtiskokk um bæ- inn. Hvarvetna á götuhornum og meðfram hlaupaleiðum voru íbú- ar úti og hvöttu hlaupara til dáða. „Það er engum blöðum um það að fletta að íbúar hér í Stykkishólmi bera hlýjar taugar til Berglindar,“ sagði Sumarliði. Samkennd meðal hlaupara var sömuleiðis mikil og þrátt fyrir að ekki væru allir í góðri æfingu, lögðu menn allt í sölurnar til að ljúka sinni hlaupalengd. „Fólk píndi sig áfram, náði marki og all- ir með bros á vör. Einhvern veginn virkaði þetta því betur en ef sömu hlauparar hefðu verið í Reykjavík- urmaraþoninu, því hlaupið og öll umgjörð þess var svo vel sýnileg bæjarbúum, vinum og fjölskyldu Berglindar. Maður fékk eiginlega gæsahús á hverju götuhorni að finna þá hvatningu sem bæjarbúar sýndu og þann mikla samhug sem hvarvetna mátti sjá og finna. Þann- ig var þetta einstök stund,“ sagði Sumarliði. Hann segir að í hlaupinu hafi ver- ið áberandi einstaklingar úr körfu- boltanum, landsliðskonur í körfu- bolta, vinir og velunnarar. „Veit- ingastaðir bæjarins lögðu hönd á plóg. Narfeyrarstofa, Sjávarpakk- húsið og Skipperinn grilluðu pyls- ur gegn vægu gjaldi þegar hlaupar- ar koma í mark. Svo var frábært að þeir félagar Justin Shouse og Lýð- ur Vignisson mættu með Vængja- vagninn sinn í Skúrinn og seldi yfir tvö þúsund kjúklingavængi og rann allur ágóði af sölunni í söfnunina,“ segir Sumarliði. Fyrir helgi höfðu yfir sjö milljón- ir króna safnast og bættist verulega í þá upphæð um helgina, en söfn- uninni lýkur í dag, 26. ágúst. Mun allur peningur sem safnast renna til að létta undir með Berglindi í kostnaðarsömu endurhæfingar- ferli en einnig til að hjálpa henni að komast aftur út í lífið eftir þetta áfall. Hægt er að leggja söfnuninni lið með að leggja inn á styrktar- reikning; r.nr. 0301-26-012379, kt. 480720-0160. mm/glh Sigríður Erla, sem skipulagði hlaupið ásamt Gunnhildi Gunnars, hér við markið með Berglindi. Heimafólk setti upp drykkjustöðvar fyrir hlauparana á víð og dreif um bæinn. Þá bauð Stykkishólmsbær öllum hlaupurum frítt í sund að hlaupi loknu. Hvarvetna í görðum og á götuhornum var fólk mætt til að hvetja hlaupara til dáða. Móðurbróðir Berglindar veifar hér til ljósmyndara. Helena Sverrisdóttir, fremsta körfuknattleikskona landsins tók þátt ásamt Finni eiginmanni sínum, þrátt fyrir að Helena væri komin langt á leið á meðgöngu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.