Skessuhorn - 09.08.2020, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 9. SEptEMBER 202014
Fyrstu göngur og réttir á Vestur-
landi eru nú afstaðnar. Um liðna
helgi var t.d. réttað í Nesmels-
rétt í Hvítársíðu og Kaldárbakka-
rétt í Kolbeinsstaðahreppi. Í dag,
miðvikudag, verður svo réttað fé af
Lunddælingaafrétti í Oddsstaðarétt.
Bændur eru nú lagðir af stað í nokk-
urra daga leitir en víða verður rétt-
að um næstu helgi. Bændur halda
því til fjalla og smala fé sínu, ýmist
af afrétti eða heimalöndum. Ein af
fjölmennari heimasmalamennskum
í þessum landshluta er skipulögð
frá Brekku í Norðurárdal. Þar er
Vesturfjall smalað, en leitarsvæð-
ið nær frá Bröttubrekku, að Vikra-
felli og fjallendið ofan við bæina allt
vestur að Borghreppingaafrétti, en
á milli þessara afrétta er ekki girð-
ing. Smalamennskan er skipulögð
af bændum sem landið eiga, þ.e.
á Hvassafelli, Hraunsnefi, Brekku
og Hreðavatni. Safnið er svo rekið
heim til Brekkuréttar, en hún verður
næstkomandi sunnudag.
Þórhildur Þorsteinsdóttir og Elv-
ar Ólason eru bændur á Brekku þar
sem er stærsta fjárbú sveitarinnar.
Þórhildur segir í samtali við Skessu-
horn að samkvæmt álagningareðli
þurfi þau að skaffa tíu manns í fyrstu
og aðra leit ásamt leitar- og réttar-
stjórn. Aðrir bæir sem eiga land að
afréttinum skaffa einn til tvo menn
enda fé á þeim fátt eða ekkert. „En
við látum yfirleitt fleiri menn í
göngur fyrir okkur. Ætli það fari því
ekki 12 til 15 manns í hvora leit fyr-
ir okkur núna,“ segir hún í samtali
við Skessuhorn. Sjálf smalamennsk-
an tekur einn dag. En hvernig hefur
Brekkubændum gengið að manna
svo fjölmenna smalamennsku? „Það
hefur gengið mjög vel undanfar-
in ár. Hér er kominn stór kjarni af
rösku fólki sem er búinn að koma
haust eftir haust og er fólkið farið
að þekkja landið eins og við heima-
fólkið. Þannig erum við heppin. Svo
reynum við að gera vel við smal-
ana okkar í mat og drykk að lokinni
smölun,“ bætir hún við.
mm/ Ljósm. úr einkasafni
Nýtt 1.224 fm gróðurhús hefur
nú verið reist við garðyrkjustöðina
Laugaland í Borgarfirði. Þórhallur
Bjarnason, einn af eigendum, gerir
ráð fyrir að í húsinu verði hægt að
framleiða 200 tonn af gúrkum ár-
lega en fyrir hafa verið framleidd
um 350 tonn á stöðinni á ári. Að-
spurður segir Þórhallur fyrstu upp-
skeruna úr nýja húsinu vera vænt-
anlega snemma á næsta ári. „Við
stefnum á að byrja að planta í húsið
í desember svo það ætti að verða til
uppskera fljótlega á nýju ári,“ seg-
ir hann. Aðspurður segir Þórhall-
ur nýja húsið koma til með að gera
mikið fyrir framleiðsluna. „Húsið
er byggt fyrir gróðurhúsalýsingu
og eru aðstæður til ræktunar og
vinnu mjög góðar miðað við eldri
hús,“ segir hann. arg
Nýtt gróðurhús risið
á Laugalandi
Nýtt gróðurhús byggt á garðyrkjustöðinni Laugalandi.
Feðgarnir Þórhallur Bjarnason og Hjalti Þórhallsson við nýja gróðurhúsið.Þannig er nú umhorfs inni í gróðurhúsinu.
Þessi mynd er frá því haustið 2018. Réttarstjórinn lokar ávalt síðastur hliðinu
þegar safnið er komið inn í hólf.
Brekkubændum hefur gengið vel að manna fjölmenna leit
Hópur smala sem fór af á Bröttubrekku ásamt bílstjóra og aðstoðarbílstjóra.
Myndin er frá haustinu 2018.
Smalarnir frá Brekku hafa allir talstöðvar með í för og geta þannig haft samskipti
sín á milli í fjöllunum. Hér er tækjakosturinn í hleðslu tilbúinn fyrir tíu tíma smala-
mennsku.
Haldið af stað. Allra veðra er von á þessum árstíma. Hér er þokusúld og skyggni
takmarkað.
Haldið í smalamennskur haustið 2017.
Féð komið í aðhald heima á bæ eftir tíu tíma göngur. Mynd frá 2015.