Skessuhorn - 09.12.2020, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 20202
Stekkjastaur er fyrstur bræðra
sinna til byggða og er hann
væntanlegur á laugardag-
inn. Þá er vert að minna alla á
að sýna sínar allra bestu hlið-
ar næstu daga í von um að fá
glaðning í skóinn.
Á morgun, fimmtudag, er spáð
austlægri átt 10-15 m/s og
rigningu eða slyddu með köfl-
um, en lengst af hvassari norð-
austanátt og snjókoma norð-
vestanlands. Hiti 0-7 stig og
hlýjast syðst á landinu. Frá
föstudegi til mánudags er útlit
fyrir að verði ákveðin austlæg
átt og rigning með köflum suð-
austanlands en dálitlar skúr-
ir eða slydduél í öðrum lands-
hlutum. Hiti á bilinu 2-7 stig.
Í síðustu viku voru lesend-
ur á vef Skessuhorns spurðir
hvort þeir ætli að senda jóla-
kort í ár. Það má kannski segja
að sú hefð sé að leggjast af því
aðeins rúmur helmingur, eða
53%, ætlar ekki að senda nein
jólakort. 24% ætla að senda rit-
uð jólakort í ár, 12% ætla að
senda bæði rituð jólakort og
rafrænar jólakveðjur en 11%
þeirra sem svöruðu ætla aðeins
að senda rafrænar jólakveðj-
ur í ár.
Í næstu viku er spurt:
Hlakkar þú til jólanna?
Valgerður Jónsdóttir tónlistar-
kona bar sigur úr býtum í Laga-
keppni Hannesarholts með
lagi við ljóð Hannesar Hafstein;
„Áraskiptin 1901-1902.“ Val-
gerður er Vestlendingur vik-
unnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Jólablað í
næstu viku
SKESSUHORN: Miðviku-
daginn 16. desember kem-
ur Jólablað Skessuhorns úr
prentun og verður dreift til
kaupenda. Að venju verður
blaðið það síðasta sem gef-
ið verður út á árinu. Fyrsta
blað á nýju ári verður svo
gefið út 6. janúar. Þeir sem
vilja koma á framfæri efni og
auglýsingum í árlegu Jóla-
blaði er bent á að hafa sam-
band sem fyrst. Frestur til að
skila efni og auglýsingum er
til föstudagsins 11. desemb-
er. Bendum á netföngin aug-
lysingar@skessuhorn.is og
skessuhorn@skessuhorn.is
en einnig símann 433-5500.
-mm
Tilnefningar
um Vestlending
ársins
VESTURLAND: Að venju
gengst Skessuhorn fyrir vali
á Vestlendingi ársins. Skil-
yrði er að viðkomandi sé bú-
settur/ir í landshlutanum.
Hver eða hverjir hafa verð-
skuldað þetta sæmdarheiti
fyrir árið 2020? Íbúum gefst
kostur á að senda inn tilnefn-
ingar um nöfn og gjarnan má
ein setning fylgja sem styður
þá tillögu. Óskast tilnefning-
ar sendar á netfangið skessu-
horn@skessuhorn.is merkt
„Vestlendingur ársins.“ Úr-
slitin verða kynnt 6. janúar
2021. -mm
Karlalandsliðið
dregið í riðil
LANDIÐ: Á mánudaginn
var dregið í riðla í undan-
keppni HM 2022 í knatt-
spyrnu karla en efsta lið
hvers riðils kemst beint í
lokakeppni HM sem fram
fer í Katar 2022. Liðin sem
lenda í 2. sæti í riðlakeppn-
inni fara í umspil um sæti í
lokakeppninni ásamt þeim
tveimur liðum með bestan
árangur í Þjóðadeild UEFA
sem ekki hafa þegar tryggt
sér sæti í lokakeppninni eða
umspili. Ísland var dregið í J
riðil ásamt Þýskalandi, Rúm-
eníu, Norður Makedón-
íu, Armeníu og Liechten-
stein og hefst undankeppnin
í mars á næsta ári. -arg
Norðan áhlaup einkenndi
veðráttuna síðari hluta liðinn-
ar viku. Veðrinu fylgdi ofan-
koma og hríð með tilheyrandi
ófærð á vegum. Nokkur erill
var af þeim sökum hjá björg-
unarsveitum landsins. Var
ökumönnum, sem lent höfðu
í vandræðum vegna færðar
og veðurs, komið til aðstoð-
ar. Bílar sátu fastir, lentu utan
vegar og einn bíll fór á hlið-
ina. Flest verkefni björgunar-
sveita voru á Norður- og Vest-
urlandi.
Meðfylgjandi mynd var tekin
af félögum í Björgunarsveitinni
Heiðari í Borgarfirði síðastliðið
miðvikudagskvöld. Þeir, ásamt
kollegum sínum í Dölum, fóru á
Bröttubrekku þá um kvöldið til
aðstoðar ökumönnum sem lent
höfðu þar í festum.
mm/ Ljósm. Bj.sv. Heiðar.
Byggingarfélagið Bestla hef-
ur hafið vinnu við að grafa fyrir
undirstöðum undir fjölbýlishúsið
að Þjóðbraut 3. Það er fyrirtækið
Snókur verktakar ehf. sem sér um
uppgröftinn. Áætlað er að þeirri
vinnu ljúki fyrir jól og að upp-
steypa hússins hefjist strax eftir
áramót. Gert er ráð fyrir að íbúðir
í húsinu verði tilbúnar til afhend-
ingar sumarið 2022. Í samtali við
Skessuhorn sagði Jón Ágúst Garð-
arsson, framkvæmdastjóri Bestla
að áætlað sé að framkvæmdir hefj-
ist við Þjóðbraut 5 í framhaldinu
en að of snemmt sé að segja til um
nákvæma tímasetningu.
Mjög vel gekk að selja íbúðir í
fyrsta fjölbýlishúsinu í Dalbraut-
arreit, Dalbraut 4. Þá var salur,
sem ætlaður er fyrir þjónustumið-
stöð og félagsstarf Félags eldri
borgara á jarðhæð Dalbrautar, af-
hentur Akraneskaupstað í sumar.
Unnið er að framkvæmdum við
innréttingar og eru verklok þeirra
framkvæmda áætluð í september
2021. frg
Á árinu 2019 fóru Hollvinasamtök
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
af stað með verkefni sem gengur út
á að safna fé til kaupa á sjúkrarúm-
um. „Frá því að átakið hófst höfum
við fært stofnuninni 25 sjúkrarúm
Hollvinasamtökin hafa nú gefið 25 ný sjúkrarúm
Frá afhendingu gjafabréfs fyrir fimm ný rúm. Þura Björk Hreinsdóttir
framkvæmdastjóri hjúkrunar til hægri og Steinunn Sigurðardóttir formaður Holl-
vinasamtaka HVE.
og nýverið afhenti ég, fyrir hönd
stjórnar, fimm rúm. Andvirði þess-
ara 25 rúma er um 14,5 milljónir
króna. Það voru 19 aðilar sem hafa
komið að fjármögnun þessa verk-
efnis þ.e. einstaklingar, aðstand-
endur, fyrirtæki, verkalýðsfélag,
félagasamtök, kvenfélög, sveitarfé-
lög og sparisjóður,“ segir Steinunn
Sigurðardóttir formaður Hollvina-
samtaka HVE. Hún segir að sam-
tökin stefni að því að ljúka þessu
verkefni á næstu 1 - 2 árum. Til
viðbótar er gert ráð fyrir að safnað
verði fyrir einu gjörgæslurúmi og
sex til átta sjúkrarúmum.
mm
Grafið fyrir undirstöðum Þjóðbrautar 3.
Byrjað að grafa fyrir fjölbýlis-
húsi að Þjóðbraut 3
Björgunarsveitir komu
vegfarendum til aðstoðar
Njótum aðventunnar
Glæsilegt úrval af gjafavöru
og góðum veitingum
Hjartanlega velkomin
Blómasetrið
Kaffi Kyrrð
Skúlagata 13, 310 Borgarnesi
opnunartími
alla daga frá 11:00-18:00
Facebook: blomasetridkaffikyrrd