Skessuhorn - 09.12.2020, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 13
GJ málun ehfmálningarþjónusta
Akravellir 12 - Hval arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
„Þetta hefur verið mjög furðu-
legur tími hjá okkur leikurum
sem öðrum og ekki nokkur
maður sem veit nákvæmlega
hvenær þessi óværa gengur
yfir. Þrátt fyrir það hafa vonir
vaknað um að á næsta ári gæti
samkomubanni verið aflétt að
hluta og bjartari tímar fram-
undan fyrir okkur listafólkið
sem og aðra. En í dag tökum
við eiginlega viku fyrir viku
í senn,“ segir Skagamaður-
inn og leikarinn Hallgrímur
Ólafsson í spjalli við Skessu-
horn. Halli Melló er fastráð-
inn leikari hjá Þjóðleikhús-
inu.
Á vinnustað Halla hefur
verið bryddað upp á ýmsum
skemmtilegum nýjungum á
meðan sýningarhald liggur
niðri vegna faraldursins. Allt
til að stytta biðina þar til leik-
húsið getur opnað á ný. Eitt
þessarra verkefna er Aðventu-
vagninn sem ferðast um og
færir fólki jólaandann og heimsækir
í þeim ferðum meðal annars dvalar-
heimili eldri borgara sem hafa þurft
að sæta mjög skertum heimsóknar-
reglum. Þótt Halli taki ekki þátt í
þessu verkefni þá bíður hann færis
ásamt meðleikurum sínum að geta
hafið sýningar að nýju á barnaleik-
ritinu Kardimommubænum.
Uppselt á 60 sýningar
„Við náðum að frumsýna Kardi-
mommubæinn um mánaðamótin
september/október en síðan stöðv-
aðist allt þegar þriðja bylgja kór-
ónveirufaraldsins skall á og enn er
allt lokað. Það var virkilega gam-
an að taka þátt í uppsetningunni á
Kardimommubænum en þar leik
ég Kasper, sem er einn ræningj-
anna þriggja. Við hófum æfingar á
leikritinu í janúar á þessu ári og var
frumsýning áætluð í mars. En ekk-
ert varð af því enda fyrsta bylgjan
þá í hámarki.“
Halli segir áhugi vera mikill á
Kardimommubænum og væri þegar
uppselt á um 60 sýningar. „Þannig
er að Kardimommubærinn er sett-
ur á svið á tíu ára fresti, svo að nýj-
ar kynslóðir geti séð verkið. Sömu
sögu er að segja af Dýrunum
í Hálsaskógi, sem einnig er
sýnd á tíu ára fresti. Kardi-
mommubærinn var fyrst
sýndur í Þjóðleikhúsinu fyr-
ir 60 árum og er nú settur á
svið í sjötta sinn. Auk þessara
tveggja leikrita skrifaði Thor-
björn Egner, Karíus og Bak-
tus og öll eru þessi verk orðin
sígild á leiksviðinu.“
Leikarinn var í öðrum hlut-
verkum í leikhúsinu áður
en faraldurinn stöðvaði allt.
„Ég er með hlutverk í leik-
ritinu Útsending og eru líkur
á að sú sýning muni falla al-
farið niður. Einnig er ég með
hlutverk í Rómeo og Júlíu.
En þrátt fyrir að leiksýning-
ar liggi niðri erum við áfram
með leiklestur. Ýmist er það í
leikhúsinu sjálfu og þar er að
sjálfsögðu öllum sóttvarna-
reglum og fjarlægðarmörkum
kyrfilega framfylgt. Einnig fer
leiklesturinn fram í gegnum
Zoom fjarfundabúnaðinn.“
Hefur haft nóg að gera
„Ég hef þrátt fyrir þetta haft al-
veg nóg að gera. Í sumar lék ég í ís-
lenskri sjónvarpsþáttaröð sem ekki
er komin til sýninga ennþá. Hef
svo leikið í sjónvarpsauglýsingum
og átt innkomu í hinn geysivin-
sæla þátt hjá Helga Björns á laugar-
dagskvöldum, sem bar nafnið Það
er komin Helgi.” Halli segist lofa
því að halda áfram að gleðja lands-
menn þótt ekki verði það á fjölum
leikhússins enn sem komið er. se
„Vonandi bjartari tímar fram-
undan fyrir okkur listafólkið“
Halli Melló í hlutverki sínu sem ræninginn Kasper í
Kardimommubænum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Bæjarstjórnarfundur
1324. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn
þriðjudaginn 15. desember kl. 17:00. Fundurinn fer fram
í gegnum fjarfundabúnað og því útvarpsútsending ekki fyrir
hendi. Bæjarbúar eru hvattir til þess að fylgjast með beinni
útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins haldinn á Zoom, •
laugardaginn 12. desember kl. 10:30.
Bæjarmálafundur Framsókn og frjálsa og Samfylkingar •
fellur niður þessa vikuna.
Litabók og litir
490 KR
Svart höfði
3.990 KR
Vatnsbrúsi
Verð frá 890 KR
Mittistaska
1.490 KR
BARBIE
Verð frá 1.690 KR
Straumpenni
490 KR
Traktor
4.990 KR
Spil
Verð frá 1.490 KR
FISHER PRICE
Verð frá 2.990 KR
UNO spil
2.490 KR
PLAY DOH
Verð frá 390 KR
HOT WHEELS
Verð frá 390 KR
MeIrA dÓtArÍ iNn á wWw.sMaPrEnT.iS
Opnunartími
Alla virka daga 14 - 17
Laugardaga 13 - 16
Merktur bolur
3.590 KR
Merkt handklæði (margir litir)
3.790 KR
Merkt svunta
3.990 KR
Dalbraut 16 | Akranesi
BESTI
FRÆNDINN
Ömmumatur
er bestur