Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2020, Side 18

Skessuhorn - 09.12.2020, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 202018 Vísnahorn Allir hlutir eiga sitt upp- gangstímabil, síðan mis- langan hápunkt og að lokum hnignunarskeið. Hinsvegar er tímamæli- kvarðinn nokkuð breytilegur. Þetta gildir að sjálfsögðu einnig um stjórnmálamenn en auð- vitað geta þeir einnig lent í slysum og ótíma- bærum dauðsföllum svo sem aðrar dauðleg- ar persónur. Fyrir nokkrum árum henti það þekktan stjórnmálamann að velta bifreið sinni á þeim stað sem mér er tamast að kalla Ból- staðarhlíðarbrekkuna en aðrir tala um Botna- staðabrekku eða bara brekkuna vestan Vatns- skarðsins. Hvað um það; stórvitrir blaðamenn tjáðu okkur að Steingrímur Sigfússon hefði brotið 13 rif öðrum megin og vöktu þau tíð- indi nokkra undrun enda kvað Hermann Jó- hannesson: Þó sögurnar séu á kreiki og sumt í þeim nokkuð á reiki þá staðfestist hér að Steingrímur er stórbrotinn persónuleiki. Ekki man ég nú hvort það fylgdi sögunni hvaða bifreiðategund það var sem Steingrím- ur velti yfir sig. Gæti hafa verið Volvo, það voru sterkir bílar. Í orðastað gamals Trabants, en sú bifreiðategund var að mestu leyti úr plasti og yfirleitt notast við straujárn þyrfti að rétta beyglur, orti Anton Helgi Jónsson: Menn álíta andvörp mín hátíð því afrekin segja þeir fátíð. Það álit er hart, ég afreka margt en einkum og langmest í þátíð. Káinn blessaður orti líka margt á sinni tíð og um hann kvað Indriði Þórkelsson á Fjalli: Smellið margt hann Káinn kvað. Kænn að beita hnífli. Með því vopni vó hann að vitring jafnt og fífli. Aldrei sást í efni því eiga úr vöndu að ráða. Hafði svona höndum í hann við þessa báða. Það hefur líka lengi verið uppáhaldsiðja okkar að ræða um náunga vora og gera út- tektir á þeirra lífsmáta sem jafnan er öðruvísi en við viljum láta aðra halda að okkar lifnað- arhættir séu og sömuleiðis eru þeirra syndir verulega frábrugðnar okkar (allavega á yfir- borðinu). Um þessa umræðuhefð kvað Ind- íana Albertsdóttir frá Neðstabæ: Gistir lengi grönnum hjá Gróu-fengin saga en til að hengja hatt sinn á hefur hún engan snaga. Jólin nálgast okkur nú óðfluga og nokkuð öruggt að þau verða frábrugðin öllum þeim jólum sem áður hafa komið. Bæði vegna kóvid faraldursins og ýmissa annarra hluta. Hand- skrifuðum jólakortum fer sífækkandi og sá góði og ágæti siður sem margir hagyrðing- ar stunduðu, að yrkja vísur á jólakort til vina sinna, er á verulegu undanhaldi. Einn af þeim sem þetta ástunduðu er Stefán Jóhannesson frá Kleifum og koma hér tvö sýnishorn af jólakortaáritunum hans til vinar síns og skóla- bróður sem um tíma var svínabóndi: Drottinn sem að uppi er engu gleymir svíni. Hann um jólin hygli þér, - helst með brennivíni. Í annað sinn kom svo þessi: Þessi jólin þér svo hæfi, þrjóti ei vín á kútunum. Vona ég þín verði ævi í vetur sem hjá hrútunum. Nokkur ár eru nú liðin síðan Georg heitinn á Kjörseyri sendi mér þessa jólakveðju með rafrænni tækni og ætli megin inntakið sé ekki í fullu gildi enn: Jólanna hátíð heillar á ný með hangiketi og skötunni. Farið er varlega um fjárhúsin því frelsarinn liggur í jötunni. Þetta er nú afmælishátíðin hans, hún er að drukkna í glaumnum og verslunaræði hvers vinnandi manns sem viljugur berst með straumnum. En fögnuður ríkir og friðarins spor fetum við án þess að hræðast. Biðjum um gæsku og gróandi vor þegar guðslömbin eiga að fæðast. Trúmálin hafa löngum verið mönnum hugleikin og valdið hatrömmum deilum um hvort guð sé karlkyns eða kvenkyns og heiti þetta eða hitt eða hvort leyfilegt sé að vinna á laugardögum eða borða slátur og svínakjöt. Mönnum gleymist hinsvegar gjarnan sú ein- falda grunnhugsun að vera bara góðir hver við annan sem er þó lykilatriðið. Eftir ágæta pré- dikun orti Egill Jónasson: Það Drottinn gefur og gefa kann Er gert til að aukist hans dýrð og vegur. Við eigum að tigna og tilbiðja hann. - Töluvert er hann nú hégómlegur. Menn skiptast líka á skoðunum um það hvort hin raunverulegu jól séu fólgin í rjúp- unum eða hamborgarhryggnum eða kannske í sólarlandaferðinni. Kannske rétt að rifja upp vísu Bjarna frá Gröf: Sanna gleði eignast enginn auðs þó fínan leiki trúð. Hamingjan er heimafengin, hún er aldrei keypt í búð. Fyrir nokkrum árum sendi Björn Þórleifs- son skólastjóri á Akureyri ættingjum sínum og vinum jólakvæði sem oftar og þar í mun vera að finna þetta erindi um aðventuna: Sumra athygli beinist að glimmer og greinum, glansandi skrauti og laglausum jólasveinum, sem textalaus jólalög kyrja kynlegum róm og kunna við það að birtast á strigaskóm. Þetta erindi minnir mig á ungan mann sem fyrir mörgum árum var staddur á jólatrés- skemmtun og varð reiður ákaflega því ótæt- is jólasveinninn hafði „stolið bæði gítarnum og stígvélunum hans pabba.“ Mátti móðir drengsins standa í ströngu að halda honum frá því að ganga í að endurheimta þessa muni en faðir hans hafði einhverra hluta vegna þurft að bregða sér frá augnablik. Nú er ég ekkert sérstaklega vel að mér í bragarháttum en til mun vera sá háttur sem stórskáldin kalla 6u. Þá eru ljóðlínur sex, fimm bragliðir í hverri og svo eitt u í endann og koma hér tvö sýnishorn. Það ég best veit eftir Björn Ingólfsson: Út við höfn er hávella að rugla hún er bæði ástfangin og svöng. Í Höfðaskógi hópur glaðra fugla hefur byrjað æfingar á söng. Gamall karl, í framan eins og ugla, er á sinni föstu morgungöng u. Ef hægt er að láta u-ið búa til óvæntan endi eins og í þessari Stríðsáraflækju hjálpar það verulega: Bill á röndum sífellt elti Ínu, Ína reyndi að veiða Donald Hill, Hill var aftur brjálaður í Bínu en Bína hún sá engan nema Will. Will var sjálfur stórhrifinn af Stínu en Stína hún var ástfangin af Bill u. Bestu þakkir fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is En til að hengja hatt sinn á - hefur hún engan snaga Í hugum margra er laufabrauðið eitt af séreinkennum íslensks jóla- halds. Á vefsíðu Þjóðminjasafns Íslands um jólasiði kemur fram að elstu heimildir sem til eru um laufabrauðsgerð á Íslandi eru frá fyrri hluta 18. aldar þar sem laufa- brauðinu er lýst sem sælgæti Ís- lendinga. Í dag er laufabrauðs- gerð í hugum margra eitt af sér- einkennum íslensks jólahalds á að- ventu. Æ fleiri hafa tekið ástfóstri við kökurnar þunnu og útskornu og í þeirra huga eru engin jól nema kökurnar séu á jólaborðinu við hlið hangikjöts eða hamborgarhryggs og jafnvel með rjúpunum. Skessu- horn heyrði í Laufeyju Skúladóttur á Akranesi sem finnst laufabrauðs- baksturinn ómissandi við jólaund- irbúninginn á aðventunni. „Ég ólst upp við laufabrauðs- bakstur á mínu æskuheimili og hef viðhaldið þeirri hefð sjálf með minni fjölskyldu og systrum mín- um og ætla að gera það áfram og vonandi taka mín börn við þess- ari skemmtilegu hefð okkar,” seg- ir Laufey. Hefð Laufeyjar og upp- skriftin af laufabrauðinu kemur upphaflega af Norðurlandi. „Amma mín og nafna var úr Bárðardal og bjó þar til níu ára aldurs og fluttist svo til Akureyrar þar sem mamma mín ólst upp við þessa norðlensku hefð. Hjá okkur systkinunum var þetta algerlega ómissandi hefð að baka laufabrauðið á aðventunni með móður okkar.” Laufey segir að hér áður fyrr hafi þau gert laufabrauðið alveg frá grunni. Búið til deigið og flatt út og skorið í með hníf. „Við lögð- um mikinn metnað og vinnu í þetta og meðal annars skárum upphafs- stafi okkar í deigið. Allt tók þetta sinn tíma en laufabrauðsjárnin sem notuð eru í dag við munsturgerðina byrjuðum við að nota um 1980 en þau gerðu vinnuna mun auðveld- ari. Ég man eftir því að við vorum oft aum í höndum og öxlum eftir að hafa unnið við það að fletja út deigið.“ Laufey segir að kökurnar sem þau gerðu hafi verið einstak- lega stökkar og mun þynnri en fást til dæmis í verslunum í dag. „Við höldum í hefðina en höfum hin síð- ari ár fengið deigið að norðan. Hver fjölskylda okkar systranna hefur síðan skorið út og síðan höfum við steikt kökurnar á einum stað, ég og Ingibjörg systir mín. Við steiktum um 100 kökur hvor en höfum að- eins minnkað það niður í 80 kök- ur hin síðari ár. Ég man á fyrstu árunum sem við gerðum laufa- brauðið að móðir mín steikti kök- urnar upp úr tólg en síðan breytt- ist það yfir í jurtafeiti og notum við kókosfeiti við baksturinn. Við not- um laufabrauðið með nánast öllum mat um jólin. Á æskuheimili mínu vorum við yfirleitt með lambalæri á aðfangadagskvöld og höfðum við laufabrauðið með því. Þetta passar með öllum hátíðarmat, ekki bara hangikjöti. Hjá minni fjölskyldu, og ég tala örugglega fyrir hönd systkina minna, þá er laufabrauðið algerlega ómissandi um hver jól með hátíðarmatnum,” sagði Laufey að endingu. se/ Ljósm. pó.Girnilegt laufabrauð í stöflum. Jólastemning og hefð að baka laufabrauð á aðventunni Systurnar Laufey og Ingibjörg Skúladætur við laufabrauðsbakstur um síðustu helgi. Nú er steikt upp úr kókosfeiti.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.