Skessuhorn - 09.12.2020, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 202022
„Ef dýr gætu talað, hvaða
dýr væri mesti dóninn?“
Spurning
vikunnar
(Spurt á netinu)
Birgitta Þura Birgisdóttir
Flórída api án efa.
Martha Lind Róbertsdóttir
Rotta - afþví að þær troða sér
upp um klósett og þar vill mað-
ur alla jafnan vera einn. Þær
myndu heldur aldrei segja; „af-
sakið, viltu færa rassinn frá?“
Gísli Einarsson
Geitur, tvímælalaust. Þær eru
óforskammaðar, bera ekki virð-
ingu fyrir neinu, þeirra jarm er
tvírætt og jafnvel klúrt! Svo eru
þær alltaf með eitthvað skíta-
glott.
Helga Guðjónsdóttir
Sennilega kötturinn, hann hefur
þannig framkomu.
Arnbjörg Jónsdóttir
Tvímælalaust hani.
Fyrir átta árum settist Skyrgámur að í
Sauðafelli í Dölum og segist líka það
mjög vel, enda sé besta skyrið í Döl-
unum. „Ég hélt ég væri nú að fara að
setjast í helgan stein en það var nú
öðru nær. En mikið er gott að vera
hér, Suðurdalirnir eru dýrðlegir al-
veg hreint,“ segir Skyrgámur í sam-
tali við Skessuhorn. „Ég öfundaði nú
alltaf Stekkjastaur bróðir því hann býr
í Skessuhorninu með útsýni yfir allan
Borgarfjörð. En ég öfunda henn ekki
lengur, ekki eftir að ég flutti í Sauða-
fellið. Það er svo dásamlegt að vera
hér,“ segir hann.
Góður skyrpotturinn á
Erpsstöðum
„Ég kom nú hingað því það er stutt
að skjótast í skyrpottinn hjá drengn-
um hér á Erpsstöðum,“ hvíslar Skyr-
gámur og hlær. „Hann veit nú ekk-
ert um það samt en skyrið hér er svo
svakalega gott, það er eins og það var
í gamla daga alveg hreint sko. Í kring-
um 1873 komst ég í rosalega gott skyr
á bæ við rætur Heklu, það var dýrðlegt
skyr. En skyrið hér hjá drengnum jafn-
ast alveg á við það, ef það er ekki bara
betra,“ segir Skyrgámur ánægður. Að-
spurður segist hann vera að koma sér
í startholurnar fyrir komandi hátíð-
arhöld. „Ég er til þess að gera nýlega
skriðinn úr hýðinu. Stekkjastaur hef-
ur kíkt aðeins til mín og við tekið smá
törn saman að ná smá nesti fyrir hann.
Það er oft útigangsfé í Sauðafellinu og
við höfum verið að ná aðeins úr því
restunum fyrir hann. Ég hjálpa hon-
um við þetta því ég er sko lipur og næ
niður, annað en hann,“ segir Skyr-
gámur og hlær.
Minna um bókanir í ár
Spurður hvort kórónuveiran hafi ekki
sett strik í reikninginn í hans dagskrá
fyrir jólin segist Skyrgámur ekkert
kannast við neina kórónuveiru. „Ég
þekki enga Kórónu, hún er ekki á mín-
um lista,“ svarar hann. „En þegar þú
segir það hefur verið töluvert minna
um bókanir í ár. Ég er bara kominn
með eina bókun, 19. desember,“ seg-
ir hann og bætir því við að hann fari
venjulega ekki af stað fyrr en um miðj-
an desember. „Ég er enn að hnýta síð-
ustu hnútana og gera allt klárt,“ seg-
ir Skyrgámur en hann er væntanleg-
ur til byggða 19. desember. Spurður
hvort það sé ekki erfitt að fara til allra
barnanna svona á einni nóttu segir
hann það ekki vera. „Þetta eru orðn-
ir svo fáir staðir, þetta er bara mest
suðvesturhornið eiginlega svo mað-
ur er enga stund að þessu núna. Það
munar líka heilmiklu eftir að Horn-
strandir fóru í eyði. Það var oft mikill
barningur að fara þangað, oft hret að
norðaustan og alveg sérstaklega erfitt
ef það skóf af Drangajökli. En nú er
þetta ekkert mál og ég hef meiri tíma
til að dvelja í Árneshreppi en þang-
að er rosalega gaman að koma, það er
einn af uppáhalds stöðunum mínum.
En það er ekki mikið af börnum þar
og langt síðan ég hef farið þangað á
jólaball,“ segir Skyrgámur.
Lifir og hrærist í skyri
Eins og nafnið gefur til kynna elskar
Skyrgámur skyr og segist hann hrein-
lega lifa og hrærast í skyri. „Gámur er
eiginlega bara stórt fat og Skyrgámur
þýðir að ég geti torgað rosalega miklu
skyri þó ég sé ekki mjög belgmik-
ill. Þetta er mikið réttnefni því ég get
étið óendanlega mikið af skyri. Fólk
hefur ekki skilið hvernig ég torga öllu
þessu skyri en það er bara svo ótrú-
lega gott að ég get ekki hætt. Því súr-
ara sem það er og sætari sem rjóm-
inn er, því sælari er ég,“ segir Skyr-
gámur og hlær. „Það eru gömul hjón
sem búa á næsta bæ við mig sem eiga
svo góðan rjóma. Þau láta mig alltaf
fá pela af rjóma fyrir jólin og ég fer
þá og sting nefinu inn í skyrgerðina
hér og næli mér í dýrðlega slettu og
þá eru sko jólin að detta í garð hjá
mér,“ segir Skyrgámur. En hvernig
finnst honum allar þessar nýju gerð-
ir af skyri með allskonar bragðteg-
undum? „Þau eru alveg góð líka. Ég
hef fundið mikið af þeim í ruslagám-
um og þau eru góð. En það er sjald-
an rjómi í gámunum til að setja út á
skyrið en mikið er gott hvað það er
auðvelt að fá skyr. Það sama er ekki
að segja fyrir hann Stekkjastaur, það
er svo erfitt að ná mjólkinni úr ánum.
Ég er alltaf að segja honum að vera
duglegri að borða eitthvað annað eins
og kannski grænmeti. Það er hægt að
fá mikið af því í gámunum, fólk hend-
ir svo miklu grænmeti og líka þó það
sé ekki sumar. Við bræður áttum leið
í gegnum Borgarnes um daginn, bara
28. nóvember held ég, og kíktum í
gám fyrir aftan búðina og það var
alveg með ólíkindum hversu mikið
grænmeti var þar,“ segir Skyrgámur.
Mikið af góðum
krökkum í ár
Aðspurður segir Skyrgámur óvanalega
mikið af góðum krökkunum á listanum
hans í ár. „Ég verð að segja eins og er
að mér sýnist árið 2020 bara hafa verið
rosalega gott ár. Ég get ekki betur séð
en það hafi verið alveg óvenju mikill
kærleikur, meiri en undanfarin ár. Svo
hefur maður orðið var við fólk hefur
meira verið að föndra og gera fallega
hluti, bæði til nytja og bara sem skraut
og það líkar mér. Ég sá um daginn að
það var einn að spyrja hvar væri hægt
að útvega horn til að gera hornspón.
Það er ekki stutt síðan maður sá horn-
pón síðast, ætli það hafi ekki bara verið
um aldamótin 1900 sem ég sá ask með
hornspón. Nú er allt úr köldu stáli og
alveg hundleiðinlegt en þetta gaf mér
von um batnandi tíð. Hornspónn er
kannski bara jólagjöfin í ár,“ segir Skyr-
gámur að endingu. Að sjálfsögðu er
Skyrgámur með Facebooksíðu og þar
er hægt að fylgjast með því sem hann er
að bralla. arg/ Ljósm. aðsendar
Skyrgámur að reyna að planka.
Skyrgámur segir dýrðlegt að búa í Sauðafellinu
Skyrgámur er að koma sér í gang fyrir komandi hátíðarhöld.
Skyrgámur fór að heimsækja Gluggagæi sem býr á Kambsneshálsinum. Þar er
víðsýnt og sést vel til Búðardals.
„KSÍ og Jón Þór Hauksson hafa
komist að samkomulagi um að
Jón Þór láti af störfum sem þjálf-
ari A landsliðs kvenna að hans ósk.
Undir stjórn Jóns Þórs náði liðið
því markmiði að tryggja sér sæti í
lokakeppni EM 2022. Engu að síð-
ur telja KSÍ og Jón Þór það vera
rétt skref að hann stígi til hliðar á
þessum tímapunkti, með hagsmuni
landsliðsins að leiðarljósi. KSÍ
þakkar Jóni Þór fyrir hans framlag
til árangursins og óskar honum vel-
farnaðar í þjálfarastörfum í fram-
tíðinni,“ sagði í tilkynningu frá KSÍ
síðdegis í gær.
Yfirlýsing Jóns Þórs
vegna starfsloka:
„Með sigri á Ungverjalandi náði
íslenska kvennalandsliðið því mark-
miði sínu að tryggja sér sæti í loka-
keppni Evrópumótsins 2022. Ég er
stoltur af því og þakklátur fyrir að
hafa komið að þessum góða árangri
sem þjálfari liðsins síðustu tvö ár.
Eftir sigurinn á Ungverjalandi
var EM-sætinu fagnað af liðinu,
starfsmönnum og fulltrúum KSÍ.
Við þetta tilefni var boðið upp á
áfengi.
Ég hef alltaf lagt áherslu á að
koma hreint og beint fram við þá
leikmenn sem ég hef þjálfað, að
hrósa og gagnrýna með það að
markmiði að hjálpa þeim að gera
enn betur og styrkja þannig liðið.
Slík samtöl eiga hins vegar ekki
heima í fögnuði sem þessum og alls
ekki undir áhrifum áfengis. Þarna
brást ég sem þjálfari liðsins og hefði
ekki átt að ræða frammistöðu og
þjálfun einstakra leikmanna undir
þessum kringumstæðum. Það voru
mistök sem ég tek fulla ábyrgð á
og hef beðið liðið og einstaka leik-
menn afsökunar.
Undanfarna daga hafa samtöl
mín við leikmenn liðsins leitt mig
að þeirri niðurstöðu að erfitt verði
að endurheimta nauðsynlegt traust
á milli mín sem þjálfara og ein-
stakra leikmanna. Liðið og árangur
þess er það sem skiptir öllu máli og
nú stendur það frammi fyrir mikil-
vægum undirbúningi fyrir EM. Við
slíkar aðstæður er skynsamlegast
fyrir alla aðila að nýr þjálfari taki
við og hefji undirbúning fyrir þetta
mikilvæga mót. Ég hef því óskað
eftir og gert samkomulag við KSÍ
um að láta af störfum sem lands-
liðsþjálfari. Ég óska liðinu og leik-
mönnum þess velfarnaðar og trúi
því að liðið geti náð góðum árangri
á EM. Jón Þór Hauksson.“
mm
Jón Þór hættir sem þjálfari A landsliðs kvenna