Ægir

Árgangur

Ægir - 2020, Síða 9

Ægir - 2020, Síða 9
9 Nýlega uppgötvuðu starfsmenn Haf- rannsóknastofnunar, ásamt vísinda- mönnum við Náttúrugripasafnið í Lundúnum, áður óþekkta tegund rauðþörunga hér við land. Samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknastofnunar er þörungurinn blaðlaga, getur orðið 30 til 40 cm langur og 10 til 25 cm breiður. Hann er áberandi í fjörum, sérstaklega við Suðvesturland en finnst einnig víða við vesturströnd- ina, við Vestfirði og hefur fundist á einum stað við Norðurland. Fyrst varð vart við þennan þörung við Öndverðarnes, yst á Snæfellsnesi, um aldamótin 1900. Hann var þá talinn tilheyra áður þekktri tegund en það er rangt. Um er að ræða algerlega óþekkta tegund sem á sína nánustu ættingja í Kyrrahafi. Tegundin hefur hlotið nafnið „Schizymenia jonssonii“ á latínu til minn- ingar um Sigurð Jónsson þörungafræð- ing. Á íslensku er hún nefnd klóblaðka. Uppgötvun sem kemur á óvart Í umfjöllun Hafrannsóknastofnunar seg- ir að Norður-Atlantshafið sé sennilega best þekkta svæði heimsins hvað varðar grunnsævislífverur vegna langrar og samfelldrar sögu rannsókna á þörungum og dýrum á grunnsævi í Norður-Evrópu. „Það kemur því verulega á óvart að svo stór og áberandi tegund sem klóblaðkan er, skyldi hafa farið fram hjá rannsak- endum og ekki uppgötvast um hvaða tegund var að ræða, fyrr en nú. Erfða- greining leiddi í ljós að þörungurinn get- ur vaxið ýmist sem skorpa eða verið blaðlaga og er líklega um að ræða mis- munandi ættliði í æxlunarferli tegundar- innar. Þess má einnig geta að klóblaðka er góður matþörungur og að í tilrauna- eldisstöð Hafrannsóknarstofnunar við Grindavík eru um þessar mundir í gangi tilraunir með ræktun klóblöðku til matar, í samvinnu við Hyndlu ehf.“ Nýr rauðþörungur uppgötvast við Ísland ■ Flekkir af rauðleitri klóblöðku neðan til í fjörunni á utanverðum Reykjanesskaga. Ljósmynd: Karl Gunnarsson/Hafrannsóknastofnun Lífríkið

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.