Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 2020, Qupperneq 20

Ægir - 2020, Qupperneq 20
20 Byrjaði áður fyrr fyrir austan Nú hefur staðan verið sú að ekkert hef- ur orðið vart við loðnu í þorski á Halan- um, en nokkuð fyrir austan, þar sem loðnuleitin hófst. „Það var nú þannig að þegar vertíðir voru og hétu byrjuðum við bara veið- arnar fyrir austan. Þegar ég var með gamla Jón Kjartansson, númer þrjú, skip- ið á undan þessum þá fórum við beint í austur frá Reyðarfirði þegar við fórum á loðnu eftir áramótin 1998/1999. Vorum að koma með hann frá Póllandi úr breyt- ingum og komum í mokveiði. Nú er þetta allt annað. Loðnan er farin að hrygna mikið fyrir norðan. Í hitteðfyrra hrygndi hún mikið á Húnaflóa, á Skagafirði og í Eyjafirði.“ Ekki gott útlit Grétar segir að engar tvær vertíðir hafi verið eins á loðnunni. Veiðin hafi verið ■ Jón Kjartansson er eitt uppsjávarveiðiskipanna, sem myndufara á loðnu verði veiðar leyfðar. Mynd: Þorgeir Baldursson Ungloðnan ljósið í myrkrinu Jákvæðu tíðindin í stofnmælingum loðnu í fyrra voru þau hversu mikið fannst af ungloðnu. Loðna fannst raunar víða á rannsóknarsvæðinu sem var undir. Ungloðna, sem myndar hrygningar- og veiðistofninn á vertíðinni 2020/2021 fannst vestast og sunnantil á mælingarsvæðinu en eldri loðnan var mesta áberandi norðar á landgrunni Grænlands. „Lítið fannst af fullorðinni loðnu innan íslenskrar lögsögu og var útbreiðsla loðnunnar vestlæg, líkt og verið hefur undanfarin ár. Þó var minna um loðnu norðanvert á rannsóknasvæðinu en verið hefur undanfarin ár og ekkert fannst norðan við 71°30. Heildarmagn loðnu mældist 795 þúsund tonn og þar af var metin stærð veiðistofns vertíðarinnar 2019/2020 einungis um 186 þúsund tonn. Töluvert var hinsvegar um ungloðnu og mældust tæplega 83 milljarðar eða 608 þúsund tonn af ókynþroska loðnu en samkvæmt aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2020/2021.“ ■ Fryst loðna er verðmæt afurð, meðal annars fyrir markaði í Austur-Evrópu.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.