Ægir - 2019, Blaðsíða 27
27
mögulegum viðskiptavinum og Nautic
hefur lagt í gríðarlega vinnu og fjárfest-
ingu í þarfagreiningar, hönnun og út-
færslu togara og uppsjávarskipa sem
henta inn á þessa markaði . Meðgangan
frá áhuga að verkefni, sem greitt er fyr-
ir, er löng en nánast undantekningalaust
þarf hönnunarstofan að fullhanna fyrir-
komulag og útlit og selja þar á eftir hug-
myndina útgerðaraðila í þeirri von að
samningar náist um eiginlega smíði og
fjárfestingu útgerðarmanna . Nautic er
því að byggja upp og skipuleggja umtals-
vert safn af vel útfærðum fiskiskipum til
framtíðar sem mæta þörfum markaðar-
ins .
Sérstaða Nautic
„Bárðarbungan eða Enduro-Bow er
vissulega nokkurs konar vörumerki
Nautic í dag . Belgstefnið er niðurtaða
áratuga samstarfs Bárðar Hafsteinsson-
ar, stofnanda Skipatækni annars vegar
og hins vegar Alfreðs Tulinus, stofnanda
Nautic . Hönnun þeirra félaga sem nú
starfa saman hjá Nautic, á skipum Brim,
FISK og Samherja, er landanum þekkt
þegar og sitt sýnist hverjum um útlitið .
Eiginleikar þessara skipa hafa hins veg-
ar sannað ágæti sitt fyrir löngu fyrir
hegðun á hafi úti, aukið nýtanlegt rými
framskips, hagkvæmni í rekstri og hvað
eina sem þarf ekki að tíunda frekar,“
segir Hrafnkell Tulinius, framkvæmda-
stjóri Nautic ehf .
„Það sem minna hefur verið rætt í
þessu samhengi hinsvegar er fyrirkomu-
lag og hönnun vinnsludekksins . Vinnslu-
dekk allra þessara skipa er fullkomlega
opið svæði, án burðarstoða út um allt
millidekk . Kostir þessa eru þeim sem
unnið hafa til sjós, eða vinna við hönn-
un vinnslulína, augljósir . Þetta fyrir-
komulag og hönnun veitir gríðarlegt
frelsi í hönnun millidekksins og vinnsl-
unnar allrar því rýmið er fullkomlega
opið og er haldið uppi með burði að ofan
og stenst allar kröfur um burðarþol sem
augljóslega þarf að uppfylla . Það er ekki
síður þessi eiginleiki okkar hönnunar
sem fellur kaupendum vel í geð – þetta
eru okkar aðalsmerki í dag en við erum
með fleira í ofninum ef svo má að orði
komast,“ segir Hrafnkell .
nautic .is
■ Tillaga Nautic að 67m x 15m ísfisktogara sem útfærður er fyrir háan ísklassa.
■ Hér má sjá að burðarvirki fyrir millidekk eru þilin meðfram togdekki skipsins.
■ Opið vinnsludekk. Betra pláss er fyrir uppsetningu vinnslubúnaðar.